Fréttablaðið - 06.02.2013, Síða 46
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
„Ég var að klára fyrstu seríuna af
Game of Thrones og bíð spenntur
eftir að önnur sería komi út á DVD
í þessum mánuði. Svo hlakka ég líka
til þegar þættirnir Walking Dead
byrja aftur.“
Matthías Matthíasson tónlistarmaður
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Hinn 11. mars kemur út önnur
plata bandaríska tónlistarmanns-
ins Johns Grant, Pale Green Ghosts.
Hún var tekinn upp hérlendis á tíu
mánuðum í samstarfi við Bigga
Veiru úr GusGus og kemur írska
söngkonan Sinéad O´Connor við
sögu sem gestur. Fyrsta platan
hans, Queen of Denmark, hlaut frá-
bæra dóma gagnrýnenda og valdi
breska tímaritið Mojo hana bestu
plötu ársins 2010.
Hinn 44 ára Grant, sem er upp-
alinn í Denver í Colorado, varð ást-
fanginn af Íslandi eftir að hann
spilaði á Airwaves-hátíðinni 2011
og hefur verið búsettur hérlendis í
rúmt ár. Hann flutti hingað þegar
mikið gekk á í hans lífi því skömmu
áður hafði hann greinst með HIV-
veiruna og glímdi við veikindi tengd
henni til að byrja með. „Ég þurfti að
venjast því að vera á Íslandi, sem
var ekki auðvelt í fyrstu, þrátt fyrir
að ég hafi verið spenntur fyrir öllu
hér,“ segir Grant. „En það er alltaf
gott að vera á nýjum stað í kring-
um nýtt fólk sem þekkir ekki alla
galla þína enn,“ bætir hann við og
heldur áfram: „Ég kom til Íslands
í janúar og það var mikið myrkur.
HIV-veiran var farin að hafa virki-
leg áhrif á mig og ég var alltaf
mjög þreyttur. Svo fór ég að taka
lyf í mars og mér fór smám saman
að batna. Núna er næstum ár liðið
og mér líður mun betur. Ég er mun
líkari sjálfum mér og á auðveldara
með að fara fram úr á morgnana.“
Skammast sín fyrir veikindin
Þú greindir opinberlega frá veik-
indum þínum á tónleikum í London.
Hvers vegna? „Af því að lagið sem
ég var að fara að syngja fjallaði um
þau. Líklega sagði ég þetta af því að
mér leið eins og ég ætti ekki að gera
það. Ég á samt ekki að vera hræddur
við það þótt ég skammist mín stund-
um fyrir þetta. Ég held að ég hafi
sagt frá þessu af því að þegar ég var
yngri þurfti allt að vera leyndarmál.
Það er mjög mikilvægt fyrir mig að
lifa í raunveruleikanum.“
Ætlar að búa áfram á Íslandi
Queen of Denmark var afar
persónu leg plata þar sem Grant
gerði upp fortíðina og söng um bar-
áttu sína við áfengis- og eiturlyfja-
fíkn, misheppnuð ástarsambönd og
um það hvernig hann tókst á við
samkynhneigð sína. Þar hjálpaði
það honum ekki að vera alinn upp
hjá trúaðri fjölskyldu í Miðvestur-
ríkjum Bandaríkjanna.
Titillag nýju plötunnar er undir
áhrifum frá raftónlist og er mjög
frábrugðið lögunum á Queen of
Denmark. Aðspurður segir Grant
nýju plötuna ekki vera alla þann-
ig því sum lög séu í ætt við lögin á
þeirri síðustu. „Ég er mjög ánægð-
ur með plötuna. Ég er að leyfa fólki
að kynnast mér aðeins betur og
mínum göllum. Þarna er líka eitt
lag sem heitir Black Belt þar sem
ég syng um galla annars manns,
því ég er reiður yfir því að hann
Mikilvægt að lifa í
raunveruleikanum
Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant gefur út nýja plötu í mars. Hann fl utti
til Íslands fyrir rúmu ári eft ir að hafa nýlega greinst með HIV-veiruna.
GEFUR ÚT NÝJA PLÖTU Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant gefur út nýja
plötu í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur Grant verið að semja enska
texta fyrir væntanlega plötu Ásgeirs Trausta fyrir erlendan markað. Upp-
tökum lauk um síðustu helgi og segir Grant Ásgeir vera afar hæfileikaríkan
tónlistarmann. „Hann er mjög sérstakur. Ég get ekki bent nákvæmlega á
hvað það er en honum eru allir vegir færir,“ segir hann. Grant hefur einnig
kynnst verkum Megasar, hefur miklar mætur á honum og segir hann vera
Serge Gainsbourg Íslendinga [hinn sáluga franska tónlistarmann]. Að auki
segist hann hafa áhuga á að vinna með áhrifavaldi sínum Björk en hefur
ekki enn lagt í að ganga upp að henni og óska eftir samstarfi.
Líkir Megasi við Serge Gainsbourg
elskar mig ekki lengur. Það er ekki
skynsamlegt að hugsa þannig en
við gerum það samt stundum enda
erum við öll mannleg.“
Grant hreifst fyrst af Íslandi á
níunda áratugnum, bæði í gegn-
um fyrstu plötu Sykurmolanna og
vegna landslagsmynda sem vinur
hans hafði tekið á Íslandi. Hann
ætlar að búa hér áfram, enda búinn
að fá atvinnuleyfi í eitt ár í við-
bót. Hann segir Ísland hafa verið
áhrifavald á nýju plötunni. „Það
er lag í lok plötunnar sem heitir
Glacier sem er líklega mikilvæg-
asta lagið á henni. Það fjallar um að
halda áfram með lífið, taka ábyrgð
á eigin lífi og lifa því. Ekki hafa
áhyggjur af því sem aðrir halda
heldur gera það sem þú veist að þú
þarft að gera. Það er ekki auðvelt
fyrir mig.“
Vill ekki spila í Denver
Útgáfutónleikar Johns Grant verða
haldnir í Silfurbergi í Hörpu 16.
mars. Eftir það fer Grant í tón-
leikaferð um heiminn með hljóm-
sveit sinni sem er skipuð þeim
Chris Pemberton, Pétri Hallgríms-
syni, Jakobi Smára Magnússyni og
Kristni Agnarssyni. Meðal annars
er förinni heitið til Ástralíu í lok
ársins og á hinar ýmsu tónlistarhá-
tíðir í sumar.
Ætlarðu að spila í Denver? „Ég
veit það ekki. Ég þyrfti að spila
þar en ég kvíði fyrir því. Náunginn
sem mörg laganna minna fjalla um
býr þar og ég veit að hann myndi
líklega mæta á tónleikana mína.
Og það vil ég ekki að gerist. Það
er asnalegt að segja þetta en þetta
er satt.“
freyr@frettabladid.is
kík
tu við
–
við er
um al
ltaf á
sama
stað
í Skip
holtin
u
Vinsamlega athugið að pantanir
þurfa að berast fyrir kl. 15
daginn fyrir afgreiðslu
Skipholt 50 C
Pöntunarsími: 562 9090
www.pitan.is
Minnum á vinsælu
pítubakkana
...allta
f
fer
sk
mini
Við er
um síf
ellt að
hugsa
um þ
ig og
þína
Nýjar
og
spenn
andi
pítur.
..
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12
Gunnar Nelson kemur til með að keppa
sinn annan atvinnumannabardaga í UFC-
deildinni hinn 16. febrúar næstkomandi.
Þá mætir hann Brasilíumanninum Jorge
„Sandman“ Santiago í Wembley Arena
í London. Athygli vekur að veðmála-
sérfræðingar í MMA-bardögum hjá Bets-
son telja meiri líkur á að Gunnar fari með
sigur af hólmi þrátt fyrir að andstæð-
ingur hans sé reynslumeiri og töluvert
stærri en hann sjálfur.
Stuðullinn sem Betsson setur á Gunnar
er 1,57 en á Santiago er settur stuðullinn
2,25, sem þýðir að Gunnar er talinn sigur-
stranglegri. Að sögn Halldórs Halldórs-
sonar, sérfræðings
í MMA-bardögum,
kemur þetta ekki á
óvart.
„Gunni er á mjög
hraðri uppleið og er
töluvert meira en bara
efnilegur, hann er einn
af bestu mönnum í
heimi í gólfglímu. Mér
finnst fólk þó eiga til
að gleyma því að allt
getur gerst í svona bardaga. Það geta allir
tapað,“ segir Halldór, sem hefur mest-
ar áhyggjur af þyngdarmuninum á milli
Gunnars og Santiago, en sá síðar-
nefndi er töluvert stærri og þyngri.
Inntur eftir því hvort hann mundi
sjálfur veðja á Gunnar í umrædd-
um bardaga svarar hann játandi. „Ég
mundi hiklaust veðja á Gunnar. Hérna
megin í Vesturbænum hef ég fulla
trú á því að Gunnar Nelson sé
næsti heimsmeist-
ari í MMA.“ - sm
Mundi hiklaust veðja á Gunnar Nelson
Veðmálasérfræðingar Betsson telja Gunnar Nelson sigurstranglegri í viðureigninni við Jorge Santiago.
SIGURSTRANG-
LEGUR Gunnar Nelson
er talinn líklegur til sigurs í
næsta UFC-bardaga.
DÓRI DNA