Fréttatíminn - 07.10.2011, Side 6
www.skjargolf.is / 595-6000
TIGER
SNÝR AFTUR!
FRYS.COM OPEN
FRAMUNDAN Í NÓVEMBER:
Í BEINNI UM HELGINA:
Föstudagur kl. 21:00 – 24:00
Laugardagur kl. 21:00 – 24:00
Sunnudagur kl. 21:00 – 24:00
Bók og brúða sem
forvörn gegn einelti
Á næstunni kemur út á íslensku bók Ásthildar Bj.
Snorradóttur, talmeinafræðings og rithöfundar, um
engilinn Rafael. Bókin er komin út í Bandaríkjunum á
vegum bandarískrar útgáfu, Strategic Book Group, og
er hún forvarnarbók fyrir börn. Höfundur mun kynna
hana á bókasýningunni í Frankfurt. Engillinn Rafael
kennir börnum að takast á við ýmsar erfiðar kringumstæður; einelti, ótta og fleira.
Einelti gagnvart börnum hefur verið mjög í fréttum að undanförnu eftir sviplegt
fráfall 11 ára drengs í Sandgerði. Í viðtali við Fréttablaðið í vikunni sagði Ásthildur að
bókin væri hugsuð sem forvörn gegn einelti. Ensk útgáfa bókarinnar er komin í sölu
á netinu hjá Barnes and Noble og Amazon. A4 Skrifstofa og skóli mun dreifa íslensku
útgáfunni. Gerð hefur verið brúða eftir aðalpersónunni, englinum Rafael, sem notuð
verður í kennslu og þjálfun fyrir börn. Bók Ásthildar kallast á ensku Raphael: The
Angel Who Decided to Visit Earth eða Engillinn sem valdi að koma til jarðarinnar.
Ásthildur Snorradóttir starfar sem talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur. - jh
L
jó
sm
yn
d/
Te
itu
r
Þ etta er of mikið – meira en ég vil sjá,“ segir Sigurgrímur Skúlason, próffræðing-ur og sviðsstjóri prófadeildar Námsmats-
stofnunar, um þá staðreynd að ákveðið hefur
verið að fella út þrjú dæmi í samræmdu stærð-
fræðiprófi 10. bekkjar sem haldið var í síðasta
mánuði.
Sigurgrímur segir að verið sé að fara yfir
vinnubrögð í tengslum við gerð prófanna. „Við
þurfum að skoða hvort við setjum dæmin of
seint í uppsetningu og hvort yfirferðin yfir
prófin er nægileg áður en þau eru tekin,“ segir
Sigurgrímur.
Hann játar því að stærðfræðiprófið hafi verið
of þungt eða „kannski frekar of tímafrekt.
Krakkarnir lentu í tímahraki, sem er ekki nógu
gott,“ segir Sigurgrímur.
Í íslenskuprófi 10. bekkjar þurfti að fella út
eitt dæmi sem metið var of þungt fyrir krakka
sem eru að hefja nám í 10. bekk. „Þegar um er
að ræða atriði sem eiga að reyna á þau bestu er
hætta á að skotið sé yfir markið. Það gerðist í
þessu dæmi í íslenskunni,“ segir Sigurgrímur.
Hann segist geta glatt tíundu bekkinga með
því að niðurstöður í samræmdu prófunum liggi
fyrir í síðasta lagi um miðja næstu viku. „Við
erum á fullu að fyrir yfir prófin. Það verður
allt klárt á miðvikudaginn í næstu viku,“ segir
Sigurgrímur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Skólamál Samræmd próf
Þrjú dæmi felld
út úr stærðfræði-
prófi 10. bekkjar
Námsmatsstofnun hefur ákveðið að fella út þrjú dæmi úr
samræmdu prófi 10. bekkjar í stærðfræði og eitt atriði í íslensku.
Þessi atriði voru felld út
Fyrir liggur að fjögur prófatriði verða felld út. Í reynd þýðir það að allir fá stig fyrir
þau atriði. Um er að ræða þrjú atriði í stærðfræði og eitt í íslensku. Prófatriði 4 og
47 verða felld út úr stærðfræði vegna mistaka í uppsetningu. Atriði 44 í stærðfræði
er fellt út vegna ónákvæmni í forsendum sem endurspeglast í svörum nemenda. Í
íslensku er atriði 54 fellt út vegna þess að svör nemenda benda til þess að þar reyni
um of á námsefni 10. bekkjar eða eldri.
Dæmi 4 á stærðfræðiprófinu er eitt þeirra sem felld voru út. Fremsta sviganum
var ofaukið. Stærðfræðiáhugamenn geta spreytt sig á dæminu og sent svarið á rit-
stjorn@frettatiminn.is
Þegar
um er
að ræða
atriði sem
eiga að
reyna á
þau bestu
er hætta á
að skotið
sé yfir
markið
Helgin 7.-9. október 2011