Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 16
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is Krakkadagar 25-40% afsláttur af allri barnavöru fram á laugardag Sendum frítt úr vefverslun www.lindesign.is Börnin leika í barnahorninu og fá gefins rúmfatnað fyrir dúkkuna R íkisstjórnin ætlar að svíkja þau fyrirheit að bætur almanna-trygginga og atvinnuleysis hækki í samræmi við hækkun lægstu launa í kjarasamningum. Það er vont,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ. „Gert er ráð fyrir í fjárlögum að bæt- urnar hækki um 3,5 prósent. En það er ljóst að lægstu laun á vinnumarkaði hækka um 11 þúsund krónur, sem er helmingi meira. 3,5% eru ekki nema 5.600 krónur,“ segir Gylfi. Svelt út af bótum Gylfi segir að fólk sé svelt út af atvinnu- leysisbótum með breytingum sem stefnt er á að gera á þeim í fjárlögum. „Það er verið að þrengja að því sem við sömdum um fyrir ári um lengingu bótaréttarins í fjögur ár. Draga á úr þjónustu við atvinnulausa,“ segir hann. „Það á að svelta fólk út. Þetta eru einhver viðhorf um það að fólk sé ekki í vinnu vegna þess að það vilji ekki vinna. Þetta er eins og uppgjöf kerfisins við að glíma við vandann. Því eigi bara að koma fólkinu af bótum. En ástæðan fyrir því að fólkið er atvinnulaust er að það er enga vinnu að hafa. Viðhorfið gagnvart atvinnulausum er vont. Þetta eru fordómar. Það hafa engin efnisleg rök komið fram um það að þetta sé með þessum hætti, nema síður sé.“ Ríkisstjórnin stefnulaus Gylfi segir að meginviðfangsefni ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, fyrir utan ríkisfjármálin, ættu að vera atvinnumál og vextir. „Ég fæ ekki séð í þessum fjárlögum hvernig ríkisstjórnin ætlar að takast á við það. Ekki er búið að birta neina efnahagsstefnu, ekki er búið að birta neina fjárfestingarstefnu, það er ekki klárt með hvaða hætti stjórnvöld ætla að auka hér hagvöxt og fjárfestingu í landinu. Ríkisstjórnin hefur ekki sameinast um stefnu í peningamálum og afnámi gjaldeyrishaftanna. Það eru veigamiklir þættir efnahagsmála í vindinum,“ segir hann. „Ríkisstjórnin hefur haft það sem meginverkefni sitt að ná tökum á efnahagsmálunum. Ef þeim finnst að það hafi tekist og sjái fyrir endann á því verkefni, eins og hún hrósar sér af og segir að alþjóðasamfélagið, Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn og fleiri, klappi þeim á bakið fyrir, þá er kannski hlutverki hennar lokið.“ Gylfi segir ósam- komulagið milli Samfylkingar og Vinstri grænna ástæðu þess að stefnuna vanti. „Þegar menn birta ekki stefnu sína heitir það í daglegu máli stefnuleysi.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Það eru veigamiklir þættir efna- hagsmála í vindinum. Gylfi Arnbjörnsson ASÍ telur fólk svelt út af bótum Gylfi Arnbjörnsson telur ríkisstjórnina svíkja fyrirheit um hækkun bóta á við hækkun lægstu launa. Hann segir að innan hennar sé að finna fordóma gagnvart atvinnulausum. Auk þess sé ríkis- stjórnin stefnulaus og að hlutverki hennar sé hugsanlega lokið. Frumvarp fjár- málaráðherra, Steingríms J. Sigfússonar, um fjárlög var kynnt í byrjun vikunnar. Ljósmynd/Hari Ríkissjóður er tilbúinn að selja hluti sína í Arion banka og Íslandsbanka þegar aðstæður leyfa. Hann er einn- ig tilbúinn að selja allt að þriðjungi í Landsbankanum. Ekki stendur þó til að eignarhald ríkisins verði minna en það í bankanum í nánustu framtíð. Þetta kemur fram í Ríkisbú- skapnum 2012-2015 sem fjármála- ráðuneytið gaf út í byrjun vikunnar. Gísli Hauksson, framkvæmda- stjóri hjá ráðgjafar- og sjóðstýring- arfyrirtækinu Gamma og hagfræð- ingur, segir að hægt sé að líta svo á að aðstæður séu fyrir hendi. „Málið er að við erum í miðjum gjaldeyris- höftum. Lífeyrissjóðir sitja því á fé sínu og vantar fjárfestingarkosti og þeir hefðu ábyggilega áhuga á aðkomu að þessum eignum.“ Gísli bendir þó á að ekki blási ekki byr- lega í alþjóðlegu efnahagslífi og bankar hafi orðið verst úti. „Mér finnst því hæpið að erlendir fjár- festar sýni bönkunum áhuga.“ Ríkið á níu banka Ríkissjóður á eignarhluti í fjórum viðskiptabönkum og fimm spari- sjóðum og vill selja fyrrgreinda eignarhluti „til að ekki þurfi að ráð- ast í frekari skattahækkanir eða lækkun á útgjöldum“. Bankasýsla ríkisins, sem fer með eignarhlutina fyrir hönd ríkisins, vinnur að tillög- um um það hvernig fjármálafyrir- tækin verði seld. Tillagnanna er að vænta á næstu mánuðum. Í skýrslu fjármálaráðherra um áætlun í ríkisf jármálum segir: „Meðal álitamála sem ræða þarf í því sambandi er hvaða lagaramma og hvaða formlega ferli sé æskilegt að skapa um sölu á eignarhlutum ríkisins í fyrirtækjum, og hvenær einstakir eignarhlutar verði boðnir til sölu.“ Þar kemur einnig fram að mikilvægt sé að ríkisstjórnin móti stefnu um hvaða eignarhluta megi selja og hverja ekki. Athygli hefur vakið að Páll Magn- ússon hefur verið ráðinn forstjóri Bankasýslunnar. Hann var aðstoð- armaður Valgerðar Sverrisdóttur þegar Búnaðarbankinn og Lands- bankinn voru seldir í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ás- grímssonar. Hann er því í þeirri stöðu að geta komið að undirbún- ingi og sölu ríkisbankanna í annað sinn. Verðmætið meira en áður Í skýrslunni segir að ekki sé ljóst hvaða verð ríkið fái fyrir hluti sína í Arion og Íslandsbanka en verðmæti eignarhlutanna sé 14.272 milljón- ir króna í Arion og 6.239 milljónir króna í Íslandsbanka. Eignarhlutur ríkissjóðs í Arion er 13% og framlagt hlutafé 9.872 milljónir króna en 5% í Íslandsbanka og þangað hafa 3,25 milljarðar runnið í hlutafé. Í Viðskiptablaðinu í ágúst mátti lesa um mat þess á því hvað fengist fyrir eignarhluti ríkisins í Arion og Íslandsbanka, miðað við heildar- eignir bankanna og eigiðfé þeirra. Það taldi söluna á Arion geta skilað 7,1-14,2 milljörðum króna í kassann en ríkið gæti fengið 3-6 milljarða króna fyrir hlut sinn í Íslandsbanka. Gísli segir mjög erfitt að henda reiður á réttu verði. „Sala þessara fjármálastofnana myndi taka lang- an tíma og kaupandinn þyrfti að fá langan umhugsunarfrest því óvissa er um framtíðarskipan bankanna.“ Einnig segir hann að óvissa sé um lán innan þeirra, eigendur þeirra og niðurstöður málaferla gegn þeim vegna hrunsins. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Vill selja þriðjung Landsbankans líka  FjáRlög Ríkið er tilbúið að selja þriðjung í Landsbankanum og eignar- hluta sína í Arion og Íslandsbanka um leið og aðstæður leyfa. Á næstu mánuðum verða tillögur Bankasýslunnar um söluferlið kynntar. Sérfræðingur í fjármálamarkaðnum segir lífeyris- sjóðina líklega hafa áhuga á að eignast banka. Páll er því í þeirri stöðu að geta komið að undirbúningi og sölu ríkisbankanna í annað sinn. 16 fréttaskýring Helgin 7.-9. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.