Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 60
Helgin 7.-9. október 201156 tíska
Fegurðarsamkeppni barna
Ég sat á kaffihúsi í vikunni, drakk kakóið mitt
og fletti blöðum, aðallega bandarískum tísku-
og slúðurblöðum. Ég fletti í gegnum þau,
með hugann ekkert endilega við lesefnið. Eitt
tímaritið vakti þó athygli mína sem hin höfðu
ekki gert. Það var hið virta tímarit People.
Forsíðumyndin var af lítilli stúlku, ekki eldri
en sex ára, málaðri, í glæsilegum kjól og með
kórónu. Hún hafði sigrað í fegurðarsamkeppni
barnanna í Bandaríkjunum.
Undanfarnar vikur og mánuði hafa farið fram
miklar umræður um þessar fegurðar- og
fyrirsætukeppnir barna. Þær hafa sem betur
fer ekki ennþá náð hingað til lands en eru
gríðarlega vinsælar í Bandaríkjunum.
Mömmurnar skrá litlu stelpurnar
sínar, alveg frá þriggja ára aldri,
punta þær, klæða þær í háhæl-
aða skó og ýta þeim svo fram á svið.
Stelpurnar þurfa að sýna góða göngutakta,
dilla mjöðmum og reyna að ná til aðdáenda.
Mömmurnar, sem fyllast stolti, eru yfirleitt
yfir kjörþyngd og upplifa þarna eigin draum
í gegnum litlu stelpurnar sínar. Í sumar vakti
það mikla athygli þegar ein af þessum litlu
fegurðardrottningum, aðeins sjö ára, hafði
fengið bótox í andlitið frá móður sinni. Móð-
irin taldi meiri líkur á að sú litla ynni keppnina
ef hún fengi bótox í andlitið.
Þessi öfgafulli hugsunarháttur, sem einkennir
bandarískt samfélag, ríkir sem betur fer
ekki enn hér á landi. Kannski erum við
of lítil þjóð til að standa í svona asnalegu
keppnisstandi. Vonandi kemur
aldrei að því að við förum að
keppa um hver sé feitasti Ís-
lendingurinn eða hver eigi
fallegasta barnið.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Blandar saman vintage
og nýjum fötum
Föstudagur
Skór: Spúútnik
Buxur: Second hand París
Skyrta: Nostalgía
Peysa: Forever21
Hálsmen: Sautján
Elsa Sól Gunnarsdóttir er 22 ára
viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands
og vinnur samhliða náminu á Osushi við
Lækjargötu.
„Ég myndi segja að stíllinn minn væri
mjög vintage í bland við eitthvað nýtt. Ég
versla mikið í Spúútnik og öðrum second
hand-búðum og svo að sjálfsögðu í H&M,
American Apparell og Urban Outfitters
er í mjög miklu uppáhaldi. Fötin þar
klikka ekki. Fatakeðjan Opening Cere-
mony er verslun sem mér finnst einnig
vera með mjög flott föt og hönnun en
hef ekki tök á að kaupa fötin mín þar.
Leikkonan Chloe Sevigny, sem ég hef
alltaf litið mjög upp til í fatavali, hefur
verið að hanna fyrir Opening Ceremony.
Allt rosalega flottur fatnaður.“
Þriðjudagur
Skór: GS Skór
Buxur: Second hand-búð
Peysa: Topshop
Bolur: H&M
Hálsmen: París
Miðvikudagur:
Skór: Harley
Davidson biker
boots
Buxur: American
Apparel
Skyrta: American
Apparel
Hálsmen: Forever21
Fimmtudagur:
Skór: H&M
Pils: American Apparel
Bolur: H&M
Pels: Spúútnik
Hálsmen: Spúútnik
Vertu vinur okkar á Facebook
Erum með frábært úrval
af klæðilegum buxum
í stærðum 34-46.
ÁTT ÞÚ ERFITT
MEÐ AÐ FINNA
ÞÉR BUXUR SEM
PASSA VEL?
Verð 13.990 kr.
Mánudagur
Skór: Topshop
Buxur: Amercain Apparel
Jakki: Spúútnik
Bolur: París
Hálsmen: Forever21
Fagnar tuttugu
ára afmælinu
Snyrtivörurisinn Bobbi Brown mun fagna tuttugu ára afmæli
sínu í næstu viku og í tilefni af því frumsýnir hann nýju línuna
Lip Palette. Sú lína samanstendur af tuttugu ólíkum augn-
skuggum og eru tíu þeirra frá árinu 1991 og slógu rækilega í
gegn á þeim tíma. Hinir tíu eru glæný hönnun og ekkert síðri
en sú eldri. Settið af augnskuggunum á að kosta 60 dollara í
verslunum Bobbi Brown og munu fylgja með gömul uppköst
sem hönnuðurinn teiknaði upp fyrir tuttugu árum.
Hugo Boss hannaði
einkennisbúninga nasista
Þýska tískuhúsið Hugo Boss var stofnað árið 1924
og átti erfitt uppdráttar fyrstu árin. Nú er þetta eitt
af helstu tískumerkjum samtímans og á dögunum
var upplýst hvernig vinsældir þess jukust á nokkr-
um vikum á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Á
þeim tíma hóf fyrirtækið
framleiðslu á einkennis-
búningum nasista og var
það Hitler sjálfur sem
sóttist eftir samvinnu við það. Það sem fáir vissu
þangað til fyrir nokkrum dögum er að Hitler og Hugo
voru miklir vinir og samstarfsfélagar.
Tískuhúsið sendi frá sér í vikunni opinbera yfirlýs-
ingu þar sem það baðst afsökunar á þátttöku sinni í
stríðinu.
Snookified fær
góðar viðtökur
Hin smáa raunveruleikastjarna
Snooki hefur í nógu að snúast
þessa dagana og mun hefja sölu á
nýju skólínunni sinni, Snookified,
í byrjun næsta mánaðar. Stjarnan
frumsýndi línuna sína á Facebook-
síðu sinni fyrr í þessari viku og
hefur hún
hlotið
óvenjumikla athygli fyrir.
Línan samanstendur aðallega af
söndölum sem henta vel fyrir
sumarveður og eru þeir flestir
þykkbotna því sjálf nær
stjarnan ekki yfir 150
sentimetrana.