Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Side 8

Fréttatíminn - 07.10.2011, Side 8
Jólahlaðborð Iðusala hefjast þann 18. nóv. Tilboð jólahlaðborð, fordrykkur og vín ásamt kaffi verð frá kr.8.000.- Bókanir í síma 561-1111 eða idusalir@idusalir.is Þ að verður söguleg stund þegar þess-ir tveir menn hittast í fyrsta sinn, horfast í augu og takast í hendur 67 árum eftir þennan sorglega atburð,“ segir Óttar Sveinsson rithöfundur en næst- komandi miðvikudag verður fundur þeirra Sigurðar Guðmundssonar, sem var háseti á Goðafossi þegar skipið var skotið niður af þýskum kafbáti, U 300, út af Garðskaga 10. nóvember 1944 og Horst Koske, sem var loftskeytamaður á þýska kafbátnum í þess- ari örlagaríku för. Sigurður er 85 ára en auk hans lifa enn fjórir úr áhöfn Goðafoss. Horst Koske er 84 ára en ekki er vitað til þess að aðrir úr áhöfn kafbátsins séu á lífi. Óttar, sem er höfundur Útkalls-bók- anna, skrifaði árið 2003 um örlög Goðafoss og þeirra tuga manna sem voru um borð, komnir upp undir landsteina eftir för í skipalest frá Bandaríkjunum þegar hilla var farið undir stríðslok. 25 Íslendingar fórust en 19 björguðust eftir margra klukkustunda hrakninga á björgun- arflekum í miklum kulda á Faxa- flóa. Auk þess töpuðu lífinu breskir skipbrotsmenn sem skipverjar á Goðafossi höfðu bjargað eftir árás sama kafbáts. Harmleikurinn, nán- ast við bæjardyr Reykjavíkur, var mesta áfall Íslendinga í allri heims- styrjöldinni. Bókin, sem upphaflega hét Útkall – árásin á Goðafoss, er nýkomin út í Þýskalandi og verður kynnt í íslenska sýningarskálanum á bókasýningunni í Frankfurt þar sem Ísland er heiðursgestur. Óttar segir að þýsk útgáfa bókarinnar sé mjög vel endurunnin og komi út í tilefni sýningarinnar í Frankfurt. Sigurður Guð- mundsson fer utan með Óttari þar sem hann hittir loftskeytamann kafbátsins. „Þessi atburður hefur auðvitað fylgt báð- um þessum mönnum allt þeirra líf,“ segir Óttar. „Sigurður hélt á ungum dreng þegar skipið hvarf í hafið. Horst Koske hefur vaknað upp með martröðum svo áratugum skiptir. Þegar hann minnist þessa atburðar við Íslandsstrendur hefur hann sagt, með tárin í augunum, að þeir hafi ekki ætlað að drepa konur og börn.“ Kafbátsmenn áttuðu sig ekki á því fyrr en of seint að um farþegaskip var að ræða. Óttar segir að Sigurður hafi aldrei borið kala til kafbáts- mannanna. Þeir hafi verið að sinna því sem þeim var gert að gera. Í mörg ár eftir stríð fór Sigurður í frí til Þýskalands og naut gestrisni Þjóðverja. „Fundur þessara tveggja manna verður á mannlegum nótum,“ segir Óttar. „Hann mun skipta þá miklu máli, ekki síst þýska kafbátsmanninn. Þetta verður erfitt fyrir hann en hann getur þá dáið sáttari eftir að hafa hitt mann af Goðafossi sem sýnir honum vináttu. Sigurður er tilbúinn til fararinnar.“ Útkallsbækur Óttars Sveinssonar eru orðnar átján á jafnmörgum árum. Ný bók í flokknum, sem kemur út í fyrri hluta nóvember næstkomandi, fjallar um flug- slys í Ljósufjöllum í apríl árið 1986. „Frá- sögnin þar byggist á þeim sem komust lífs af og aðstandendum þeirra og ekki síst frá- sögn björgunarsveitarmanna en í bókinni er komið mikið inn á starf þeirra. Það liðu hátt í ellefu klukkustundir frá því að vélin hvarf þar til flakið fannst,“ segir Óttar. Í bókinni er einnig fjallað um lífshættulegt fallhlífarstökk tíu karla og kvenna yfir Grímsey árið 1983, þremur árum fyrir slysið í Ljósufjöllum, en sá atburður tengist björgunarsveitarmanni sem kom fyrstur á vettvang flugslyssins og raunar fleiri björgunarsveitarmönnum. Stokkið var úr fimm kílómetra hæð yfir Grímsey en háloftavindar báru fallhlífarstökkvarana af leið. Margir lentu því í sjónum og ein kona fórst. Þessu stökki er lýst nákvæmlega og baráttu upp á líf og dauða við að ná landi. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Hagfræðistofnun metur áhrif krafnanna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að fela Hagfræðistofnun HÍ að meta áhrif krafna Hagsmunasamtaka heimilanna á þjóðarhag, en einnig á afkomu og efnahag heimila, lífeyrisþega í nútíð og framtíð, hins opinbera, fyrirtækja og fjármálastofnana, að því er fram kemur í tilkynningu forsætisráðu- neytisins. Formaður hagsmunasamtakanna afhenti forsætisráðherra undirskriftalista með nöfnum 33.525 einstaklinga þar sem krafist er afnáms verðtryggingar og leiðréttingar á stökkbreyttum lánum til heimilanna. Með þessum kröfum fylgja fjórar mismunandi leiðir til leiðréttingar á lánum. Reiknað er með því að greinargerð Hagfræðistofnunar geti legið fyrir í næsta mánuði. - jh Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 217.600 samanborið við 190.500 í ágúst 2010, að því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands. Gistinætur erlendra gesta voru um 86% af heildarfjölda þeirra á hótelum í ágúst og fjölgaði gistinóttum þeirra um 12% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði einnig, voru 30.850 samanborið við 24.150 í ágúst 2010. Gistinóttum á hótel- um í ágúst fjölgaði á öllum landsvæðum samanborið við ágúst 2010. Á Norðurlandi voru 23.500 gistinætur í ágúst sem er um 21% aukning frá fyrra ári. Á Suður- nesjum voru 10.150 gistinætur sem er 17% fjölgun. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur 133.600 í ágúst sem er aukning um 15% og á Suðurlandi voru gistinætur 30.000 sem eru 12% fleiri gistinætur en í ágúst 2010. Á Austurlandi voru 11.200 gistinætur í ágúst, fjölgaði um 9%, og á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 9.300 sem er 2% aukning. - jh Gistinóttum fjölgaði á öllum landsvæðum 12% FJölGuN GiStiNóttA Á HóteluM Milli ágústmánaða 2010 og 2011 Hagstofa Íslands Atburðurinn hefur fylgt báðum þessum mönnum allt þeirra líf.  árás Háseti af Goðafossi oG loftskeytamaður Þýsks kafbáts Horfast í augu í fyrsta sinn 67 árum eftir harmleikinn Horst Koske er nú 84 ára, sá eini sem eftir lifir af áhöfn þýska kaf- bátsins u300 sem skaut Goðafoss niður. Goðafoss- bók óttars Sveinssonar kynnt á bóka- sýningunni í Frankfurt. Söguleg stund á miðvikudaginn þegar eftirlif- andi skipverji Goðafoss hittir eina eftirlif- andi kafbáts- mann u-300 sem skaut íslenska skipið niður nánast við bæjardyr Reykjavíkur. Sigurður Guðmundsson, sem var háseti á Goðafossi þegar hann var skotinn niður af þýskum kafbáti árið 1944, hittir á miðvikudaginn loftskeytamann þýska kafbátsins, þann eina sem vitað er að sé á lífi úr áhöfn bátsins. Hér er hann með óttari Sveinssyni rithöfundi en Goðafossbók hans er nýkomin út í Þýskalandi og verður kynnt á bókasýningunni í Frankfurt – en þar er Ísland heiðursgestur. Ljósmynd/Hari 8 fréttir Helgin 7.-9. október 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.