Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Side 14

Fréttatíminn - 07.10.2011, Side 14
F í t o n / S Í A Verð á mann í tvíbýli 87.900 kr. Nánari upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á góðu hóteli með ríkulegum morgunverði og íslensk leiðsögn. Aðventuferðir til Evrópu! Borgarferðir Wagner-ópera í Berlín Jólaferð til Kaupmanna- hafnar Verð á mann í tvíbýli 76.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í tvær nætur á Wake up Copenhagen með morgunverði og gönguferð um Kaupmannahöfn með Ragnhildi Þórðardóttur.25.–27. nóvember 16.–19. desember Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir 3.–9. desember Fararstjóri: Óttar Guðmundsson Aðventuferð til Varsjár og Berlínar Verð á mann í tvíbýli 128.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum. Flogið til Varsjár og heim frá Berlín. Gisting í 6 nætur á 4* hótelum með morgunverði, allur akstur milli staða, gönguferð og íslensk fararstjórn. Fjárlög n Vantar peninga: A-deild lífeyris- sjóða LSR, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, er neikvæð um 12% eða 47,4 milljónir króna. Leiðrétta þarf stöðuna og er áætlað að hækka þurfi heildariðgjaldið um fjögur prósentustig, úr 15,5% í 19,5%. n Ungir af bótum í nám: Öllum umsækjendum undir 25 ára er tryggt námspláss í framhaldsskólum og hækkun á framfærslugrunni námslána LÍN. Þetta er liður í að fá einstaklinga í atvinnuleit í nám. n Hættum skuldasöfnun: Heildar- skuldir hins opinbera, samkvæmt mati AGS, eru ríflega 100% af vergri landsframleiðslu. Samanborið við önnur lönd jukust skuldir hins opinbera einna mest á Íslandi eftir hrun. Hins vegar hefur skuldasöfn- unin stöðvast og mun verða komin í um 90% árið 2014, en önnur lönd safna áfram skuldum. n Fengum 450 milljarða frá AGS: Um 450 milljarðar króna af lántöku- heimildum ríkissjóðs og Seðlabank- ans hjá AGS og samstarfsþjóðum hafa verið nýttir. Það svarar til þess að lántökuheimild Seðlabankans hafi verið fullnýtt og helmingur heimilda ríkissjóðs. n Tekjubilið mjókkar: Tekjubil á Íslandi minnkaði milli áranna 2009 og 2010, þegar horft er til Gini-stuðuls og fimmtungsstuðuls úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Tekjubilið hafði breikkað árin á undan. Heimild: Ríkisbúskapurinn 22012-2015. Fjárlögin í frumeindum Skattar Laun- þegar geta aðeins lagt 2% af launum sínum skatt- frjálst í viðbótarlífeyrissparnað í stað 4%. Áætlað er að tekjur ríkisins aukist við það um 1,4 milljarða króna. Hvað er til ráða? Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, ráðleggur fólki að greiða ekki meira en 2% í séreignarsjóði sína því að allt umfram það verði tvískattlagt. Einnig segir hann að hægt sé að semja við vinnuveitanda um að hann lækki launin um 2% og setji peningana í staðinn í viðbótarlífeyrissparnaðinn. Þannig geti launþeginn enn sparað skattfrjálst til elliáranna. Lagður verður 10,5% skattur á heildarlaunagreiðslur fjármálafyrir- tækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga. Hefur það áhrif á iðgjöld? „Já, þau hækka þegar til lengri tíma er litið,“ segir Sigurður Viðarsson, forstjóri TM. Hann segir að fyrirtækið þurfi að greiða um 100 milljónir króna til ríkisins við þessa breytingu og undrast að ríkið setji á skatta sem hvetji til upp- sagna. „Laun eru um það bil helmingur af rekstrarkostnaði fyrirtækisins og því er ljóst að skatturinn hefur um 5% áhrif á hann. Við verðum því að skoða hvernig við getum hagrætt.“ Engin ákvörðun liggur þó enn fyrir. „Það er erfitt að hækka iðgjöld vegna samkeppninnar en þar sem þessi skattur leggst á öll fyrirtæki tel ég engan vafa leika á því að á endanum komi þessi skattur fram í verðinu.“ Tekið verður upp viðbótar- skattþrep fyrir auðlegðarskatt, sem er stóreignaskattur, ofar en nú er, en hjón sem eiga 120 milljónir og einstaklingar sem eiga 90 milljónir króna greiða sérstakan skatt af fé sínu. Viðbótar- skatturinn á að skila 1,5 milljarði króna. Hvað gera þeir ríku? „Ég hugsa að margir reyni að koma eignum sínum í form sem ekki telur til skatts,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við HÍ og formaður Félags fjárfesta. Þá segir hann að einhverjir fari í mál við ríkið þar sem brotið sé á eignarrétti stjórnarskrárinnar þegar eignirnar séu rýrðar á þennan hátt. „Ég spyr: Hvar eru mörkin á milli skattlagningar og eignarnáms?“ Vilhjálmur segir að þegar eignir beri ekki tekjur eða ekki nægar tekjur til að standa undir skattgreiðslunum sé að hans mati um eignarnám að ræða og bendir á að hæstaréttarlögmaðurinn Hróbjartur Jónatansson hafi nú í tæpt ár undirbúið málaferli vegna auðlegðarskattsins gegn ríkinu. Kol- efnisgjald hækkar úr 75% af viðmiðunarverði á uppboðsmarkaði losunarheimilda í Evrópu í 100%. Hækka flugfargjöld? „Það er allnokkur óvissa varðandi það hvaða áhrif kolefnisgjaldið og uppboðsmarkaður losunarheim- ilda mun hafa og ennþá virðist þetta ekki hafa haft áhrif á flugfargjöld í Evrópu,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Á endanum skila hækkandi skattar sér þó án efa inn í fargjöldin.“ Veiði- gjald á fiskveiði- heimildir hækkar. Gert er ráð fyrir að útgerðir greiði því 1,5 milljarða á næsta ári en 4,5 milljarða árið 2013. Þarf að segja upp fólki? „Ég skal ekki segja en þetta hefur áhrif á getu fyrirtækja til að fjölga fólki eða fara í nýjar fjárfestingar,“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Fram- kvæmdir Hefja á byggingu fyrsta áfanga nýs Landspítala. Áætlaður kostnaður við spítalann er 40 milljarðar króna til 2017. Hefja á byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði en ekki er búið að ákveða hvort ríkið byggir það eða leigir. Ríkið kaupir skuldabréf af Vaðlaheiðargöngum hf., félagi í eigu Vegagerðarinnar og heimamanna á Norðurlandi, svo að hægt verði að hefja gangagerðina. Göngin kosta 10,4 milljarða króna en ekki kemur fram hve hátt skuldabréf- ið er eða hvernig eignarhluturinn skiptist að öðru leyti í fjár- lagafrumvarpinu. Alls fara 6 milljarð- ar króna í vegafram- kvæmdir og 1,2 milljarðar í ýmsar hafnarframkvæmdir en ríkið greiðir aðeins 2/3 hluta af þessari upp- hæð. Fram- kvæmdir eru hafnar í fimm sveitar- félögum við byggingu hjúkr- unarheimila. Áætlaður bygg- ingarkostnaður er 5,1 milljarður króna. Ekki er tekið fram hvort hann er allur áætlaður á næsta ári í fjárlög- unum. Ríkið greiðir 200 milljónir króna í byggingu stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur. Geta verktakafyrirtæki glaðst yfir þessu? „Nei, þau geta ekki glaðst yfir honum. Listinn endurspeglar áframhaldandi algjört viljaleysi stjórn- valda til að tak stöðu með atvinnu- lífinu o greyna að ýta vagninum úr kyrrstöðunni,“ segir Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmda- stjóri Ístaks. Byggja á nýjan fram- haldsskóla í Mos- fellsbæ. Kostnaður ríkisins verður 840 milljónir króna. 14 fréttaskýring Helgin 7.-9. október 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.