Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Síða 30

Fréttatíminn - 07.10.2011, Síða 30
Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is fyrir íslenskt vísindasamfélag Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s. Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Siðareglur H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Rannís óskar eftir samstarfi við vísindamenn, rannsakendur og fræðimenn til að skapa íslensku vísinda- og rannsóknarsamfélagi sterka siðferðilega umgjörð. Rannís hefur að beiðni Vísinda- og tækniráðs sett fram tillögur sem er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir vönduð vinnubrögð í vísindum. Allir sem telja sér málið skylt eru hvattir til að kynna sér það nánar á heimasíðu Rannís, www.rannis.is/sidareglur og koma á framfæri athugasemdum á netfangið sidareglur@rannis.is fyrir 15. október 2011. farin að verða minn akkilesarhæll ætlaði ég að kenna eftir hádegi en þá voru skólarnir tvískiptir en ég fékk síður flog seinnipartinn ef ég hafði sofið vel. Skólarnir urðu hins vegar einsetnir tveimur árum eftir að ég útskrifaðist. Ég reyndi að kenna í fjögur ár en gafst þá upp. Ég vissi að minn tími var liðinn þegar ég var að vakna úr flogi og heyrði skólastjóra dæsa yfir mér. Ég fann að ég var ekki velkomin – og sennilega var ég ekki heppileg- ur starfskraftur.“ Myndi ekki segja satt Nú voru góð ráð dýr, að sögn Unnar. „Eftir þetta sótti ég um eitt starf og þar var spurt um heilsufar. Ég velti því fyrir mér um stund hverju ég ætti að svara ...“ Og hverju svaraðir þú? „Að það væri allt í þessu fína frá Kína! Ég var nefnilega að sækja um starf hjá sjálfri mér og ég hef komist að því að ég er langumburð- arlyndasti vinnuveitandinn sem ég get fundið. En ég er samt algjör harðstjóri.“ En svona almennt, hvernig myndirðu ráðleggja fólki, sem er til dæmis með geðröskun, að svara slíkri spurningu þegar það er í atvinnuleit? „Ég skil vel að starfsmanna- stjórar skoði vandlega eyður í fer- ilskrám og spyrji út í heilsufar því þeir eru að leita að hagkvæmasta starfsmanninum. Þeir sem eru með geðraskanir eru fæstir stanslaust veikir, þeir eiga sín góðu tímabil inn á milli og það er ef til vill á þeim tíma sem þeir eru að sækja um störf. Ég er á því að með því að gefa upp geðröskun væri viðkomandi að minnka möguleika sína, sérstak- lega ef hann hefur ekki verið veikur í langan tíma. Þannig að margir sem segja sannleikann fá bara ekki starf. Það verður hver og einn að eiga það við sína samvisku hvort hann ætlar að segja sannleikann eða ekki.“ Hvað myndir þú gera? „Ég myndi segja ósatt!“ segir hún og brosir „En reyndar verð ég að geta þess að mér var sýndur mikill skilningur á Morgunblaðinu, þar sem ég starfaði í föstu starfi í tæp tvö ár, þannig að maður má aldrei alhæfa.“ Bókarskrif og blaðamennska En hvernig kom það til að þú varðst blaðamaður? „Ári eftir að kennslu var hætt hjá hinum dæsandi skólastjóra eignuðumst við hjónin son. Þegar fæðingarorlofinu var lokið fór ég hana leiðinlega. Þrátt fyrir slæma ritdóma ákvað ég engu að síður, eftir að hafa sótt um starf hjá sjálfri mér, að sækja um hjá tímaritaútgáf- unni Fróða og var þar í nokkur ár og síðan hef ég skrifað fyrir hina og þessa.“ Og þar sem hún var nú á annað borð byrjuð að skrifa ákvað hún að læra blaðamennsku. „Já, það var svo kvenlegt; konum finnst þær þurfa að læra og kunna alla hluti, þetta var svona týpískt. En mér fannst leiðinlegt í Musterinu við Suðurgötu, eins og ég kalla Háskóla Íslands, og var ekkert að fara í grafgötur með það. Ég hélt alltaf að hann væri flottari og betri en Kennaraháskóli Íslands en það reyndist langt í frá. Það var miklu meiri skapandi hugsun í KHÍ en Musterinu þótt það hafi skánað þegar á leið. Mér tókst þó á endanum að klára þrjár gráður þar, eina meistara og tvær diplómur, en það gerði mig líka næstum þunglynda,“ segir hún og hlær. „Merkilegt nokk þá hefur enginn vinnuveitandi spurt um geðslag mitt frekar en gráðurnar mínar, bara flogin, þau fara heldur ekki fram hjá neinum. En fólk hefur allt- af tekið því vel og brugðist rétt við og sýnt mér mikla tillitssemi. Og ég hef alltaf gætt þess vel að skila efni innan tilskilins tíma!“ segir hún kankvís. „Ég hef alltaf verið ákveðin í að láta geðröskunina ekki sigra mig heldur ætla ég að sigra geðröskunina.“ Kraftmikil í uppsveiflum En það er líka önnur hlið á geð- hvörfunum og það eru uppsveifl- urnar. „Það er þó ekki þannig að einn daginn sé ég grenjandi uppi í rúmi og þann næsta í verslunarleiðangri að innrétta stofuna mína upp á nýtt fyrir sjö hundruð þúsund krónur!“ Fyrirgefðu, hvað sagðirðu? Inn- rétta stofu fyrir sjö hundruð þús- und krónur?! „Já, ég gerði það í einni uppsveifl- unni!“ segir hún skellihlæjandi. „Það tók tvo daga. Ég átti fyrir þessu og er alsæl með útkomuna. Það þurfti sko ekkert að skipta um allt í stofunni en mér fannst það meira en bráðnauðsynlegt í þessari uppsveiflu. Ég fór hamförum í tvo daga. Ég tek það fram að ég á engin kreditkort. Þau eru stórhættuleg fólki með geðhvörf.“ Hún segir uppsveiflurnar and- stæðu niðursveiflnanna. „Í uppsveiflunum er lífið sko í lit og manni finnst alveg stór- merkilegt hvað fólk getur hugsað hægt! Á uppleiðinni er ofsalega skemmtilegt, hugurinn er svo frjór, orkan í líkamanum svo mikil, framkvæmdagleðin fram úr hófi en svo kemur að því að allt fer á yfir- snúning ef ekki er gripið í taumana, en oft er hægt að þekkja einkennin og grípa til viðeigandi ráðstafana áður en gamanið kárnar um of. Uppsveiflurnar geta nefnilega ekki síður haft neikvæðar afleiðingar en þunglyndið, þótt það sé í eðli sínu skemmtilegra tímabil meðan á því Geðraskanir eru margs konar og tengjast einni af hverjum þremur fjölskyldum á Íslandi. Geðraskanir geta verið erfiðir sjúkdómar og margir þurfa að leggjast inn á geðdeildir Landspítalans vegna þeirra og fá þar þjónustu til lengri eða skemmri tíma. Þjónusta starfsfólksins þykir mjög góð, en aðbúnaður hefur því miður ekki verið endur­ nýjaður sem skyldi og ljóst að svo mun ekki verða í náinni framtíð, miðað við fjárhag ríkisins. Geðdeildir Landspítala eru orðnar áratuga gamlar og nauðsynlegt að endurnýja bæði innréttingar og hús­ búnað. Umhverfi hefur mikil áhrif á líð­ an fólks og það er þess vegna sem starfsfólk geðdeildanna ákvað að grípa til eigin ráða og stofnaði félagið Brospinna. Tilgangurinn með sölu Bros­ pinnans er að bæta aðbúnað á geðdeildum svo að auka megi vellíðan og lífsgæði þeirra sem þurfa að dvelja á deildunum. Fjórar tegundir Brospinna verða seldar frá og með deginum í dag, 7. október, fram að kvöldi mánudagsins 10. október: Konubros, karlabros, strákabros og stelpubros. Hvert bros kostar aðeins 1.000 krónur og fer allur ágóði í að bæta aðbúnað á þeim níu legudeildum sem heyra undir geðsvið Landspítala. Brospinnar verða seldir víða fyrir utan verslunarmiðstöðvar og á fleiri stöðum á höfuð­ borgarsvæðinu og einnig er hægt að kaupa Brospinna með því að smella á einn slíkan á vefborðum hjá visir.is, dv.is, frettatiminn.is og mbl.is. að líta í kringum mig en það var fátt um fína drætti, sérstaklega þar sem heilsan var ekki upp sitt besta. Þá datt mér í hug hvort ég gæti ekki skrifað. Það var ekki alveg úr lausu lofti gripið því við Jenný B. Olsen, vinkona mín og fyrrverandi samstarfskennari, skrifuðum bók sem heitir „Stríðsárin á Íslandi 1939-1945“ og sú bók er kennd í 9. bekk í grunnskóla og ég hef heyrt að hún þyki gasalega skemmti- leg – eða ekki. Frændsystkin mín sem hafa þurft að lesa hana segja 30 viðtal Helgin 7.­9. október 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.