Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Qupperneq 31

Fréttatíminn - 07.10.2011, Qupperneq 31
HOT FITNESS Heitt djúpvöðva fitness er 6-vikna námskeið sem hefur slegið rækileg í gegn! Æfingakerfið fer fram í heitum sal og byggist á rólegum styrktaræfingum ásamt djúpum teygjum. Eingöngu er unnið með eigin líkamsþyngd. HD fitness-kerfið er byggt á æfingum sem stjörnur á borð við Jennifer Aniston og Gwyneth Palthrow stunda. Sérstakar áherslur eru á styrkingu djúpvöðva í kvið og baki og djúpar teygjuæfingar sem lengja og styrkja alla vöðva líkamans. Hitinn í salnum auðveldar að ná djúpum teygjum og líkaminn hitnar fljótt og vel. NÝTT - fyrir lengra komna! Hot fitness er glænýtt 6-vikna námskeið fyrir þær sem vilja gott alhliða krefjandi æfingakerfi með áherslu á styrktarþjálfun, teygjuæfingar og slökun. Einnig er í boði fræðsla, upplýsingar og aðstoð við að breyta yfir í hreinna og heilnæmara mataræði. Lifandi markaður er samstarfsaðili Hreyfingar á þessu námskeiði og mun veita ítarlega fræðslu um fæðuþáttinn á námskeiðinu. Æfingarnar fara fram í heitum sal og æft er með litla bolta sem virka eins og létt lóð. Ólíkt átaksnámskeiðunum er ekki áhersla á vigtun og mælingar heldur er lögð áhersla á vellíðunarþáttinn bæði hvað varðar æfingar og mataræði. HD fitness 32°C Hot fitness 35°C Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu, verð og skráningu finnur þú á www.hreyfing.is Fáðu fría uppskriftabók! Farðu á www.hreyfing.is/betrikostur og náðu í fría uppskriftabók með léttum kjúklingaréttum. Skráðu þig núna í vefverslun Hreyfingar eða í síma 414 4000 stendur. Hvort tímabil stendur yfir­ leitt yfir í langan tíma en það getur komið jafnvægi á milli. Geðhvörf hafa mjög margar og mismunandi birtingarmyndir.“ Enn þora margir ekki að koma fram Unnur segir að vissulega hafi dregið úr fordómum en enn megi gera betur. „Það var síðast í dag sem ég spurði manneskju með geðröskun hvort hún myndi treysta sér í viðtal við dagblað og hún kvað já við en treysti sér ekki til þess með mynd­ birtingu. En á þessum 22 árum sem ég hef lifað með geðröskun hafa breytingarnar verið gífurlegar. Það er ekki sama þöggunin í kring­ um þennan sjúkdóm og áður. Það verður ekki sigrast á þessum for­ dómum nema með fræðslu og sem betur fer hafa hugrakkar hetjur stigið fram og sagt sína sögu. Fyrir tíu árum kom út fyrsta og eina bók fyrrum samstarfskonu minnar og hetju, Þórunnar Stefánsdóttur, þar sem hún lýsir baráttunni við eigin þunglyndi. Sú bók hlaut tilnefn­ ingu til Íslensku bókmenntaverð­ launanna og ég veit að hún er biblía margra sem glíma við þau veikindi. Það var aðdáunarvert af Þórunni að stíga þetta skref. Þetta er ennþá sjúkdómur sem fólki finnst niður­ lægjandi að vera með og því þarf að breyta. Oft er það einnig svo að við sem erum veik erum með mestu fordómana gagnvart sjálfum okkur. Þá eru ættingjar oft hræddir um að við verðum fyrir aðkasti ef við segjum frá því eða að það minnki möguleika okkar í lífinu. Þannig að það er sagt: „Passaðu þig – segðu ekki of mikið!“ Það myndi hins veg­ ar aldrei vera sagt við krabbameins­ sjúkling: „Passaðu þig – segðu ekki of mikið um krabbameinið sem þú ert með. Það gæti minnkað möguleika þína í lífinu.“ Þetta eru fordómar sem við eigum enn eftir að vinna á. Geðraskanir eru eins og hver annar sjúkdómur. Vissulega eru engir tveir eins en sjúkdómar fara ekki í manngreinarálit og for­ dómar eins og þessir íþyngja og gera þeirri manneskju sem er með gerðröskun lífið enn erfiðara. Það á ekki að vera þannig.“ Er eitthvert viðhorf sem fer í taugarnar á þér við heilræði sem þér eru gefin? „Já, þegar fólk segir mér að rífa mig nú upp úr þessu og fara í lík­ amsrækt. Og þegar ég var eitt sinn í viðtölum hjá deildarlækni sem fór að segja mér frá sínum eigin líkamsræktarplönum – þá var ég nú ekki lengi að skipta um lækni!“ segir hún og hlær sínum glaðværa hlátri. „En það er annað sem hefur hjálpað gífurlega í baráttunni gegn fordómum og í að efla sjálfsmynd og sjálfstraust fólks með geðrask­ anir. Það eru notendahreyfingar eins og Hugarafl, Geysir og Hlut­ verkasetur. Sjálf var ég rög við að „koma út úr skápnum“, svo að ég fái lánað þetta orðalag frá samkyn­ hneigðum, en þetta er ákveðið ferli. Ég tíndi til fjölmargar ástæður, og fólkið í kringum mig ekki síður, fyrir því að koma ekki út úr skápn­ um. Fólk gæti talið að dómgreind mín væri ekki í lagi, það gæti efast um skynsemi mína, spurt sig hvort það gæti treyst manneskju með geðröskun til að vinna fyrir sig og annað í þessum dúr. Ég segi já, það er allt í lagi með þetta allt hjá mér og ef ég er ekki viss þá fæ ég bara, eins og aðrir, ráð frá öðrum. Það er ekki bara fólk með geðröskun sem stundum þarf að fá að láni dóm­ greind hjá öðrum. Svo er annað sem fólk verður að muna: Fólk með geðröskun er ekki alltaf stanslaust veikt, það getur verið hresst í tíu ár á milli veikindakasta. Ég hef ekki verið sjúklingur í 22 ár; ég hef átt mjög góð tímabil inn á milli. Þannig að – eins og við vitum – ekkert er einfalt, og við verðum að taka ýmis sjónarhorn inn í umræðuna.“ Brospinni til að bæta aðbúnað á geðdeildum Hún segir að veikindin hafi þroskað sig mikið og hún hafi lært heil­ mikið. „Ég hef lært að heilsan er ekki sjálfsögð, ég hef lært þolinmæði og ég hef lært að það er ekki sjálfsagt að hafa vinnu. Ég hef líka lært hvað vinnan er mikilvæg í lífi sérhvers manns og að við, sem samfélag, eig­ um að leggja áherslu á að allir geti unnið eitthvað, hvort sem þeir eru með einhvers konar skerðingu eða ekki. Samfélagið tapar hæfileikum og færni þessa fólks og fólkið tapar tengslum við samfélagið ef það er ekki í vinnu.“ Eins og sagði hér í upphafi var það ekki ætlun Unnar að koma í viðtal, heldur eingöngu að kynna átakið Brospinnann með því að láta fjölmiðla vita, skipuleggja sölustaði og annað. „Brospinninn varð til í fyrra þegar starfsmaður á geðdeild var að róa sjúkling og segja honum að lífið yrði fljótlega betra. Hann teikn­ aði broskarl á blað, klippti út og límdi á tunguspaða. Upp úr þessu var stofnað félagið Brospinnar – áhugafélag um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítalans og salan í fyrra gekk svo vel, miðað við hinn stutta undirbúning, að hægt var að kaupa langþráða flatskjái og sófa á nokkrar deildir. Það er starfs­ fólk geðsviðs Landspítalans sem stendur að baki þessari söfnun fyrir skjólstæðinga sína en það er misjafnt eftir deildunum níu hvað vantar helst. Það vantar húsgögn eins og borð, skrifborð, stóla, sófa, flatskjái og fleira. Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Land­ spítalans, hefur verið okkur mikill stuðningur í þessu átaki – eins og hann er reyndar við alla sjúklinga og starfsmenn deildanna – en hann hefur sko verið yfiryfirlesari Bros­ pinnanna. Ég verð að fá að segja þér eina virkilega brossögu í lokin. Þannig var að ég var að hringja á sölustaði og kanna hvort við gætum fengið leyfi til að selja og það gekk svona bærilega. Svo hringi ég í IKEA með þá mjög óbroslegu hugs­ un í höfðinu: „Við megum áreiðan­ lega ekki selja í anddyrinu þar, þeir leyfa aldrei svoleiðis.“ Þá svarar Þórarinn Ævarsson, framkvæmda­ stjóri IKEA: „Já, þið eruð velkomin og ég ætla líka að gefa ykkur tíu sófa.“ Ég verð ekki oft orðlaus en ég tafsaði bara í símann og sá fyrir mér nýja sófa á hverri einustu deild og hljóp um alla sjö hundruð þús­ und króna stofuna mína tafsandi þakklæti í símann. Ég var svo fegin að þetta var ekki myndsími. Og verði draumurinn um tíu milljónirn­ ar að veruleika mun ég ekki hugsa mig lengi um ef svo færi að ég þyrfti að leggjast inn aftur. Mikið hlýtur allt að verða huggulegra! Ég er bara að spá í hvort ég fengi að fara með í kaupleiðangrana.“ viðtal 31 Helgin 7.-9. október 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.