Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 40
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Ökum undir bleikum merkjum enn á n‡ Ekki mitt fólk „Mér fannst það vera svartur blettur á mótmælunum yfir höfuð en það er eins og venjulega; það eru lang flestir mættir til að mótmæla með friðsam- legum hætti og hitt er undantekning, en engu að síður mjög leiðinlegt.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hvatti sjálfstæðisfólk til þess að fjölmenna á Austurvöll við þingsetninguna og mótmæla friðsamlega. Hann harmaði því eðlilega eggið sem lenti í höfði Árna Þórs Sigurðarsonar. Þegar það er búið með kökurnar ... „Fær fólkið ekki örugglega lýsi?“ Dorrit Moussaieff sótti Fjölskylduhjálpina heim, ræddi við fólk sem neyðist til að sækja þangað matvæli og spurði forstöðukonuna, Ásgerði Jónu Flosadóttur, hvort fólk fengi ekki lýsi. Lýsið er hins vegar of dýrt en orð Dorritar vega þungt og Lýsi ætlar að gefa Fjölskylduhjálpinni vænan slatta af þessum töfravökva. En þið eruð alltaf of seinir „Við ræddum hins vegar um það, þar sem við erum tveir af þremur stjórnarmönnum staddir í erlendis, að við fengjum ráðrúm til þess að komast heim seinnipartinn á morgun  Vikan sem Var og tilkynna þetta með viðeigandi hætti.“ Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarmaður hjá Iceland Express, hljóp í skarðið þegar nýráðinn forstjórinn, Birgir Jónsson, hætti óvænt eftir tíu daga starf. Ekki ráðlegt að espa þennan „Ég er ekki að fordæma bókina sem slíka en ég fordæmi vinnubrögðin. Ég hef grun um að hún sé að búa til deilu við okkur Björk til að fá auglýsingu fyrir bókina, en því markmiði er þá náð.“ Guðmundur Gunnarsson, faðir Bjarkar, er ekki átakafælinn og vandar ekki norska rithöfundinum Mette Karlsvik kveðjurnar, en hún er búin að skrifa skáldsögu um Björk og fjölskyldu hennar. X-B! „Ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli.“ Helgi Hjörvar alþingismaður fordæmdi ráðningu framsóknarmannsins Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslunnar. Upprisa holdsins er ekki niðurgreidd „Það er hinsvegar mikilvægt að fram komi að Viagra er aldrei niðurgreitt af ríkinu.“ Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, bendir á að þeir fangar á Litla-Hrauni sem fá stinningarlyfið Viagra fyrir makaheimsóknir greiði fyrir pilluna úr eigin vasa. Nú er ekki hægt að tefja lengur „Ég held að réttarsálfræðirannsókn í málinu sé æskileg jafnvel þótt liðin séu 36 ár frá því þessir atburðir áttu sér stað. Ég er ekki í vafa um að það er hægt að afla upplýsinga og fá góða innsýn í málið sem hægt yrði að hagnýta ef málið yrði tekið upp aftur.“ Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur telur fulla ástæðu til að Gunnars- og Geirfinnsmálið verði tekið upp að nýju en málið komst í fréttir i vikunni eftir að dagbækur Tryggva heitins Þórs Leifssonar komu fram í dagsljósið en í þeim lýsir hann sakleysi sínu. Grimmileg hefnd! „Nei þetta er ekki persónulegt. En það er verið að refsa mér fyrir að hafa sjálfstæðar skoðanir. Við því er ekkert að segja.“ Þingmaðurinn Atli Gíslason er með böggum hildar eftir að hann var skipaður í leiðinlega þingnefnd sem hann langar ekkert að sitja í. 36 viðhorf Helgin 7.-9. október 2011 Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á valdimar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgar- svæðinu og Akureyri og í lausadreifingu um allt land. Dreifing á bækl- ingum og fylgiblöðum með Fréttatímanum er hagkvæmur kostur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.