Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 41

Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 41
F orseti Íslands, Ólafur Ragn-ar Grímsson, gerði f rumvarp stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá að umræðuefni í þing- setningarræðu sinni. Það er vel og fengur að því að forseti lýð- veldisins vekji þjóð og þing til umhugs- unar um þetta stór- mál, nýja stjórnar- skrá handa landi og lýð. Ólafur Ragnar gerði einkum emb- ætti forseta Íslands að umræðuefni. Um það fjallar þessi pistill. Þrískipting valdins Allt frá dögum Montesquieus hefur það verið leiðarljós við mótun allrar lýðræðisstjórnskipunar að ríkis- valdið skuli skiptast í þrjá aðgreinda þætti: Löggjafarvald, framkvæmd- arvald og dómsvald. Mörgum hefur þótt sem hjá okkur væri þessi að- skilnaður ekki skýr, að ríkisstjórn- in væri að jafnaði með þingið í vas- anum og jafnvel dómarana líka þar sem þeir voru til skamms tíma skip- aðir af dómsmálaráðherra að eigin hentisemi. Síðast en ekki síst hefur hlutverk og staða forsetans sem ein- hvers konar tengill löggjafarvalds og framkvæmdarvalds verið óskýr. Hefðum samkvæmt hefur þó for- setinn haldið sig til hlés, þótt nú- verandi forseti hafi haft sig meira í frammi en fyrirrennarar hans og beinlínis gripið í taumana. Að margra mati er ekki nóg að þrískipta valdinu heldur þurfi eftir- litsvald að auki. Þar getur forsetinn haft hlutverki að gegna og endur- speglast það að nokkru í tillögum stjórnlagaráðs, þeim sem urðu Ólafi Ragnari umræðuefni. Hvert yrði vald forsetans? Meginatriðin í tillögum stjórnlagar- áðs um hlutverk forseta eru fjögur: · Tillaga um forsætisráðherra: Í upphafi ráðgerðrar stjórnar- skrárgreinar um stjórnarmynd- un segir að „Alþingi kýs forsætis- ráðherra.“ Með þessu er tekinn af vafi um þingræðið, það að ríkis- stjórn verður á hverjum tíma að hafa stuðning Alþingis. Forseti Íslands er falið að gera tillögu um forsætisráðherraefni. Honum ber fyrst að ráðfæra sig við þing- heim enda verður hinn tilnefndi að njóta stuðnings þingsins. For- seti getur ekki skipað utanþings- stjórn að eigin frumkvæði eins og nú. Forsetinn fær tvívegis tæki- færi til að leggja tillögu um for- sætisráðherraefni fyrir þingið. Vilji þingið hvorugan þeirra sem hann tilnefnir er það í höndum þingsins að velja. · Málskotsréttur: Forsetinn getur, allt eins og nú, skotið nýsam- þykktum lögum frá Alþingi til þjóðarinnar til samþykktar eða synjunar. En þjóðin fær líka beina leið til þess sama eins og rakið hefur verið í tveimur síðustu pistl- um. Málskotsréttur forseta er því ein- ungis hugsaður sem neyðarhemill, enda verður forseti að rökstyðja ákvörðun sína og getur hann þá vart vísað til vilja þjóðarinnar. Hún tjáir þann vilja sjálf. Slíkur öryggisventill þjóðhöfðingja tíðk- ast víða og er hugs- aður til að stöðva gerræði meirihluta þings. · Aðild að skipun dómara og ríkis - saksóknara: Hver og hvernig á að skipa dómara er vandaverk. Nýlega hafa verið samþykkt lög sem bæta fyrir- komulagið mjög. Stjórnlagaráð leggur til að andi þeirra laga verði festur í stjórnarskrá en hnykkt á. Lykilatriði er að hæfni og mál- efnaleg sjónarmið verða að ráða við skipun í öll embætti. Í sam- ræmi við gæsluhlutverk forsetans fær hann heimild til að skjóta vali ráðherra á dómaraefni til Alþing- is, þar sem þriðjungur atkvæða nægir til að hafna dómaraefni ráðherra. Fari svo þarf ráðherra að koma með nýja tillögu. · Aðild að skipun æðstu embætta: Forseti kemur við sögu um skip- an þeirra æðstu embættismanna sem Alþingi kann að kveða á um. Hér er hlutverk forseta minna. Honum er einugis ætlað að skipa formann hæfnisnefndar, en að öðru leyti hefur hann ekki að- komu að málinu. Hann væri t.d. að fara út fyrir valdsvið sitt ef hann segði nefndarformanninum fyrir verkum. Aukin völd? Ólafur Ragnar telur að með tillög- um stjórnlagaráðs séu umsvif for- setembættisins efld og ábyrgð auk- in. Um það má deila en skiptir þó ekki höfuðmáli. Að mínu mati fær forsetinn skýrara og markvissara hlutverk en nú. Í þremur síðustu lið- unum fær hann vel skilgreind verk- efni sem öll lúta að öryggiseftirliti. Í fyrsta liðnum heldur hann því óljósa hlutverki sem hann hefur haft við stjórnarmyndun, en settar eru regl- ur um hvernig hann skuli bera sig að. Kjarni málsins er þó sá að það er að lokum Alþingis að kjósa forsætis- ráðherra. Það er ein veigamesta ný- mælið í tillögum ráðsins. Vissulega er forsetaembættið mikilvægt, bæði nú og framvegis, verði tillögur ráðsins að stjórnar- skrá. Því skiptir höfuðmáli hver á embættinu heldur. Þjóðin verður að vanda val sitt. Í því skyni er í svo um kjör forseta búið að tryggt sé að hann njóti stuðnings meirihluta kjósenda, en svo hefur ekki verið við fyrsta kjör forseta ef undan er skilin kosning Kristjáns Eldjárns. Mistakist þjóðinni valið situr hún þó ekki uppi með forseta lengur en í þrjú kjörtímabil samkvæmt tillög- um stjórnlagaráðs. Þetta ákvæði var ekki rakið í samantekt forsetans. Ný stjórnarskrá Forsetinn um forsetann Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði Að mínu mati fær forsetinn skýrara og markvissara hlutverk en nú. Helgin 7.-9. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.