Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 07.10.2011, Blaðsíða 66
L eikritið Listaverkið eftir Yasmina Reza er meistara-lega vel skrifað, enda marg- verðlaunað. Það er áhugavert, marg- brotið og heimspekilegt stykki sem býður upp á alls konar túlkunar- möguleika og skemmtilegar pæling- ar og svo er það líka fyndið. Þetta er ekki algeng blanda. Verkið er sett upp á Stóra sviði Þjóðleikhússins og kallast þar á við sýningu sömu að- standenda á Litla sviðinu fyrir fjór- tán árum, sýningu sem er mörgum í fersku minni. Efni verksins á áreiðanlega jafn vel við nú og þá – sagan greinir frá þremur vinum og brestum sem koma í samband þeirra þegar einn tekur upp á því að fjárfesta í lista- verki fyrir fúlgur fjár. Það leiðir til býsna líflegra umræðna um vinátt- una, þroska mannsins, meðvirkni og sjálfselsku og svo óumflýjanlega til uppgjörs. Allt er þetta afar grát- broslegt og eftirminnilegt – svo mjög að sumar setningarnar sitja hreinlega ennþá í mér. Leikararnir þrír, Ingvar E. Sig- urðsson, Hilmir Snær Guðnason og Baltasar Kormákur njóta sín vel í hlutverkunum. Ingvar er orkumik- ill og sjarmerandi í hlutverki Serge og Hilmir er frábær Ivan – hin grát- gjarna lurða sem illa þolir ósætti. Sérstaklega eftirminnileg er ein- ræða Ivans um ofríki kvennanna á heimilinu; Hilmir rúllaði þeirri senu upp með glæsibrag. Það varð hins vegar hvimleitt hversu ítrekað hann þurfti að hysja upp um sig bux- urnar. Baltasar leikur Mark, sem er líkt og tifandi tímasprengja. Mark er skoðanaglaður skaphundur sem þó er óttalega lítill og vansæll inni við beinið og Baltasar gerir honum eftirminnileg skil þótt framsögn hans líði fyrir samanburð við hina leikarana tvo. En allt um það. Á sviðinu eru þrír hæfileikaríkir og reynslumiklir listamenn með frábæran texta að vinna með. Þetta ætti að vera stór- kostleg sýning en ég varð fyrir mikl- um vonbrigðum með umgjörð henn- ar. Leikmyndin (Guðjón Ketilsson) hentar Stóra sviðinu frekar illa og hún virkar á mig eins og óttalegur samtíningur. Hún þjónar sviðshreyf- ingunum ekki vel – enda nýta leikar- arnir hana næstum ekkert – og þeg- ar þeir þurfa að gera það vinnur hún gegn þeim, til dæmis þegar Mark tekur trylling og situr síðan aftar á sviðinu, þá breytist hljómburðurinn mikið og mjög illa heyrist í honum. Í lýsingunni (Lárus Björnsson) er áberandi notkun á kösturum frá hlið sem veldur því að miklir skuggar myndast bæði af munum og leik- urum. Af fjórða bekk sést einnig greinilega í gulteipaðan kastara hægra megin sem er frekar óþægi- legt. Búningarnir (Leila Arge) voru heldur ekki til þess fallnir að bæta miklu við. Þeir voru kannski viljandi óklæðilegir en líka á köflum óþarfir – eins og til dæmis rykfrakkarnir. Í heildina finnst mér eins og sjón- rænn þáttur sýningarinnar hafi ver- ið „unninn með einari” – mögulega var freistandi fyrir leikstjórann Guð- jón Pedersen að setja traust sitt á þrælgóða leikara og þrusufínt verk en mér finnst að bæði verkið og leik- ararnir eigi meira skilið. Ég sá ekki sýninguna fyrir fjórtán árum en mér finnst þetta spennandi framtak, að leyfa listamönnum að koma aftur að þessu verki nú. Leik- ritið virkar, leikararnir líka en mér finnst að Guðjón og félagar hafi mátt nota verkfærakassa Þjóðleikhúss- ins betur. Kristún Heiða Hauksdóttir Eiga meira skilið  Listaverkið Höfundur: Yasmina Reza Leikstjórn: Guðjón Pedersen Þjóðleikhúsið gæðamál háskóla H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Þriðjudaginn 18. október kl. 9:30-17:00 á Grand hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni verður nýtt gæðakerfi fyrir íslenska háskóla formlega kynnt. Nánari upplýsingar og dagskrá má nálgast á heimasíðu Rannís www.rannis.is Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast skráið þátttöku á rannis@rannis.is Ráðstefna um Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s. Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.  Leikdómur Listaverkið, sýnt í ÞjóðLeikhúsinu  tónList sigurður bragason gerir Það gott Tyrkjaránið sló í gegn s aga Hallgríms Péturssonar sálmaskálds og Guðríðar Símonardót tur var v ið - fangsefnið á tónleikum Ensamble Sarband í Bayreuth og Bonn í ágústlok. Ensamble Sarband sam- anstendur af tónlistarmönnum frá Mið-Austurlöndum og Vestur- löndum sem leika á þjóðleg hljóð- færi frá þessum heimshlutum. Með hljómsveitinni komu fram Sigurður Bragason barítónsöngvari og hin þekkta sænska söngkona, Miriam Andersén. Tónleikar Ensamble Sarband voru þáttur í tónlistarhátíð ungs fólks í Bayreuth og fengu þeir góða dóma. Að loknum tónleikunum í Bayreuth fóru tónlistarmennirnir til Bonn og héldu þar tónleika á vegum Bonnborgar í tónleikasal- DeutscheWelle-útvarpsstöðvar- innar. Tónleikarnir voru fluttir fyr- ir fullu húsi áheyrenda og fengu góða dóma í dagblaðinu Köln- ische Rundschau í Köln og sagði þar m. a. um söngvarana: „... sem og Sigurður Bragason frá Íslandi. Með barítónröddinni túlkaði hann vel  trúarhita sálmalaganna.“ -óhþ Ingvar, Hilmir og Baltasar eru frábærir en umgjörðin dregur sýninguna niður. Ensamble Sarband á sviðinu í Bayruth. Galdrakarlinn í Oz – HHHHHKHH. FT Fim 6.10. Kl. 19:30 1. aukas. Fös 7.10. Kl. 19:30 5. sýn. Fös 7.10. Kl. 22:00 2. aukas. Lau 8.10. Kl. 16:00 6. sýn. Lau 8.10. Kl. 19:30 7. sýn. Sun 9.10. Kl. 19:30 8. sýn. Fim 13.10. Kl. 19:30 1. sérst. Fös 14.10. Kl. 19:30 9. sýn. Fös 14.10. Kl. 22:00 3. aukas. Lau 15.10. Kl. 16:00 10. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 11. sýn. Fim 20.10. Kl. 19:30 2. sérst. Fös 21.10. Kl. 19:30 3. sér. Lau 22.10. Kl. 16:00 12. sýn. Lau 22.10. Kl. 19:30 13. sýn. Sun 23.10. Kl. 19:30 14. sýn. Lau 29.10. Kl. 16:00 15. sýn. Lau 29.10. Kl. 19:30 16. sýn. Listaverkið (Stóra sviðið) Svartur hundur prestsins (Kassinn) Fim 6.10. Kl. 19:30 1. au. Fös 7.10. Kl. 19:30 9. sýn. Lau 8.10. Kl. 19:30 10. sýn. Sun 9.10. Kl. 19:30 11. sýn. Fim 13.10. Kl. 19:30 2. auks. Fös 14.10. Kl. 19:30 12. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 13. sýn. Fim 20.10. Kl. 19:30 3. auks. Fös 21.10. Kl. 19:30 14. sýn. Lau 22.10. Kl. 19:30 15. sýn. Fim 27.10. Kl. 19:30 4. auks. Fös 28.10. Kl. 19:30 16. sýn. Lau 29.10. Kl. 19:30 17. sýn. Fim 3.11. Kl. 19:30 18. sýn. Mið 9.11. Kl. 19:30 19. sýn. Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Sun 9.10. Kl. 14:00 37. sýn. Sun 16.10. Kl. 14:00 38. sýn. Hreinsun (Stóra sviðið) Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 6.10. Kl. 22:00 6. sýn. Lau 15.10. Kl. 22:00 7. sýn. Lau 29.10. Kl. 22:00 8. sýn. Fim 27.10. Kl. 19:30 Frums. Fös 28.10. Kl. 19:30 2. sýn. Fös 4.11. Kl. 19:30 3. sýn. Lau 5.11. Kl. 19:30 4. sýn. Lau 12.11. Kl. 19:30 5. sýn. Sun 13.11. Kl. 19:30 6. sýn. Lau 19.11. Kl. 19:30 7. sýn. Sun 20.11. Kl. 19:30 8. sýn. Fim 24.11. Kl. 19:30 9. sýn. Fös 25.11. Kl. 19:30 10. sýn. Fös 2.12. Kl. 19:30 11. sýn. Lau 3.12. Kl. 19:30 12. sýn. U Ö Ö Ö Ö Ö Ö U U U U U Ö U Ö Ö Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 7.10. Kl. 19:30 2. sýn. Lau 8.10. Kl. 19:30 3. sýn. Fös 14.10. Kl. 19:30 4. sýn. Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 16.10. Kl. 21:00 Frums. Fös 21.10. Kl. 22:00 2. sýn. Lau 22.10. Kl. 22:00 3. sýn.U U Ö U U U Ö U U Ö U Ö Ö U Ö U Ö Ö Ö U U Ö Sögustund - Hlini kóngsson (Kúlan) Lau 8.10. Kl. 13:30 Lau 8.10. Kl. 15:00 Síðustu sýningar! Stórskemmtileg ævintýrasýning fyrir yngstu börnin Næstu sýningar: Laugard. 8. okt. kl. 13.30 Laugard. 8. okt. kl. 15.00 Sími í mið asölu 5511200 www.leikhusid.is | midasala@leikhusid.is HLINI KÓNGSSON Sögustund í Kúlunni 62 menning Helgin 7.-9. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.