Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 4

Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 4
Michelsen_255x50_A_0811.indd 1 04.08.11 15:46 E lle með svörtum stöfum á hvítum fleti. Ella með hvítum stöfum á svörtum fleti. Elle eða Ella. Er munur? Það finnst for- svarsmönnum heims- fræga tískutímaritsins Elle ekki og hafa lög- menn þess gert athuga- semdir við að Elínrós Líndal öðlist einkarétt á merkinu Ella. Elínrós er kölluð Ella og hannar ásamt fleirum fata-, skart- gripa- og ilmvatn undir þessu merki. Elínrós segir engar sér- stakar tilfinningar hafa myndast þegar hún frétti af at- hugasemd Elle. „Ekki aðrar en þær að ég yrði að vernda og berjast fyrir eigin vörumerki sem er sjálfsagt viðbúið þegar þú reynir að ná árangri og eftir þér er tekið.“ Ásdís Kristmundsdóttir, sviðs- stjóri vörumerkja- og hönnunar- sviðs Einkaleyfastofu, segir stofnunina hafa skráð vörumerki Ellu eftir eigin skoðun og auglýst í Els tíðindum í janúar. Þá hafi öðrum gefist tveir mánuðir til and- mæla. „Þau bárust 15. mars frá lögmönnum Elle,“ segir hún. Tíu úrskurðir af svip- uðum toga hafa fallið hjá Einkaleyfastofu það sem af er ári. „Umboðsskrifstofur sjá um að vakta merki erlendra og láta vita ef þeir telja að eitthvað gæti skarast á við önnur vörumerkið,“ segir hún. „Þeim þykir merki Ellu einfaldlega of líkt merkinu sínu.“ Málið sé í ferli, at- hugasemdir berist fram og til baka og ljóst að engin niðurstaða fæst fyrir ára- mót og óljóst um frekari fresti þá. Elínrós getur notað merkið sitt þar til úrskurður falli og áfram falli hann henni í vil. Verði annar hvor deilenda ósáttur geti hann áfrýjað úrskurðinum til Áfrýjunarnefnd- ar hugverkaréttinda hjá efnhags- og við- skiptaráðuneytinu. Fréttatíminn náði ekki á Valborgu Kjartansdóttur hjá lögmannsstofunni Sigurjónsson og Thor, sem fer með mál Elle. Í viðtali Fréttatímans við Elínrós í byrjun apríl segir að hönnun hennar sé í anda „slow-fashion“-hreyfingarinnar. Þar sem fötin séu vönduð, endingargóð, uppruninn auðkenndur og aðbúnaður starfsmanna góður. Ella hefur vakið mikla athygli og kallar hönnun sína Ella by El úti í löndum, til aðgreiningar frá allt annarri Ellu. Spurð hve við- brögð hennar verði fái hún ekki að nota nafnið segir hún: „Við skoðum það þegar úrskurð- að verður í málinu. Ég hef engar áhyggjur af þessu máli enda er Elle fornafn sem merkir hún, en Ella gælunafn mitt.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Aflaverðmæti eykst milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 98,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins 2011 samanborið við 92,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,4 milljarða króna eða 6,9 prósent á milli ára, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Aflaverðmæti botnfisks fyrstu átta mánuði ársins nam 60,5 milljörðum króna og dróst saman um 5,8 prósent sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 28,9 milljarðar og dróst saman um 4 prósent. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum og dróst saman um 31,8 prósent, en verðmæti karfaaflans nam 8,4 milljörðum, sem er 9,9 prósenta aukning. Verðmæti ufsaaflans jókst um 1,9 prósent milli ára í 5,7 milljarða. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 6,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins sem er 2,9 prósenta samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti upp- sjávarafla jókst um 48,2 prósent milli ára og nam 28,5 milljörðum króna. - jh  VörumErki ÁgrEiningur Á tískumarkaði Tískutímaritið Elle reynir að stöðva Ellu Hönnuðurinn Elínrós Líndal gæti þurft að skipta um nafn á vörulínu sinni því hið heims- þekkta tískutímarit Elle er ekki par sátt við að hún kalli línuna sína Ellu. Málið er í meðferð hjá Einkaleyfastofunni. Vert er fyrir forsvarsmenn fyrirtækja að fylgjast með Els- tíðindum, segir Ásdís Kristmunds- dóttir, sviðsstjóri vörumerkja og hönnunarsviðs Einkaleyfastofu. Blaðið er rafrænt og kemur út 15. hvers mánaðar. „Vörumerki er eign og það getur verið dýrt að fylgjast ekki með eign sinni,“ segir hún og vísar í virði orðspors fyrirtækja. Slóð vefsíðu Einkaleyfastofu er www.els.is Elínrós Líndal á í stappi við Elle sem vill ekki að hún kalli hönnun sína Ellu. Dæmi um úr- skurði á árinu  Skráning vörkumerkis veitingastaðarins Santa María var felld úr gildi eftir að sænska Santa María kvartaði vegna ruglingshættu - með að- stoð Sigurjónson & Thor ehf.  Sautján ehf. sótti um að skrá nafnið Karakter. Sigurjónson & Thor ehf. andmælti því fyrir hönd ítalska tískufyrir- tækisins Miroglio sem á CARACTÉRE vegna ruglingshættu. En Sautján fékk að halda nafninu.  Flugstoðir skiptu um nafn og kalla sig Isavia. Því andmælti eigandi Iceavia vegna ruglingshættu en fékk ekki í gegn. Tískutíma- ritið Elle er heims- þekkt. Hér má sjá vörumerkin Ellu og Elle. Lík? Aukinn kaupmáttur launa 0,7% HæKKun LAunAVÍSITöLu Milli september og október 2011 Hagstofa Íslands Launavísitala í október hækkaði um 0,7 prósent frá september. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,9 prósent, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Þar kemur einnig fram að kaupmáttur launa hefur aukist um 3,4 prósent síðustu 12 mánuði. Vísitala kaupmáttar launa í október hækkaði um 0,4 prósent frá fyrri mánuði. - jh Fundað um börn flóttamanna Börn flóttamanna, sem hafa fengið skjól á Íslandi, munu lýsa reynslu sinni á fundi í Odda í næstu viku. Í áranna rás hafa flóttamenn frá ýmsum löndum sest að hér á landi og síðar eignast börn sem sum eru uppkomin í dag. Hvernig var flótti foreldranna og koma þeirra til landsins og hvaða áhrif hafði þetta á næstu kynslóð fyrir neðan? Þetta er meðal spurninga sem verður leitast við að svara. Tvær dætur flótta- manna sitja fyrir svör. Anna Kristine Magnúsdóttir-Mikulcaková, er þekkt blaðakona en færri vita að hún er dóttir flóttamanns frá fyrrum Tékkóslóvakíu. Foreldrar Tinnu Davíðsdóttir, lyfja- fræðings, flúðu hins vegar til Íslands frá Víetnam. Fundurinn verður í Odda, stofu 101, miðvikudaginn 30. nóvember milli klukkan 12.25 og 13.20. Fundar- stjóri: Guðni Th. Jóhannesson, sagn- fræðingur. VEður Föstudagur laugardagur sunnudagur HæGlátt veður, él suðvestAnlAnds oG eins norðAustAntil frAmAn Af deGi, en AnnArs léttskýjAð. Hiti um eðA undir frostmArki. HöfuðborGArsvæðið: SMÁ ÉL AnnAð VEIFIð, En BJART Á MILLI. HITI uM FROSTMARK. n-átt, strekkinGur AustAntil. él við norður- oG AusturströndinA, en AnnArs bjArt. frost um lAnd Allt. HöfuðborGArsvæðið: nORðAn KuL OG nÁnAST HEIðRÍKT MEð FROSTI. él oG jAfnvel snjókomA vestAntil á lAndinu frAmAn Af deGi í HæGum vindi. AnnArs HæGlátt en Hvessir með úrkomu um kvöldið. HöfuðborGArsvæðið: HæG V-ÁTT OG ÉLJABAKKAR AF HAFI, En VAxAnDI SA-ÁTT uM KVöLDIð OG HLýnAR. kólnandi og með frosti um helgina Við megum teljast heppin þessa dagana á meðan óveðurslægðir renna sér hér fram hjá fyrir austan land. Þær ná vart að hafa hér áhrif annars staðar en allra austast. Hérlendis kólnar með tiltölulega hæglátu og björtu veðri. Fyrirtaks útivistarveður og vel lítur út með veður “síðasta í rjúpu”. Él verða þó víða með ströndinni og á stöku stað gæti jafnvel snjóað nokkuð. Almennt verður þó léttskýjað og hægt og bítandi vex frostið. Á sunnudag er síðan spáð lægð upp að landinu með versnandi veðri um kvöldið, fyrst suðvestanlands. 1 2 1 0 2 3 3 7 5 4 1 4 5 8 5 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 28-29 og á www.miðborgin.is Gefðu góða gjöf Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Mediflow heilsukoddinn Einstakur heilsukoddi með mjúku yfirlagi og vatnsfyllingu. Stillanlegur vatnspúði sem veitir fullkominn stuðning Minnkar verki í hálsi. Eykur svefngæði 9.750 kr. 4 fréttir Helgin 25.-27. nóvember 2011
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.