Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 63
jól 29 Helgin 25.-27. nóvember 2011
125 g smjör
350 g púðursykur
2 egg
2 kúfaðar tsk kanill
2 kúfaðar tsk negull
1 msk niðurrifinn sítrónubörkur
1 msk hressandi matarlitur
Hræri í rosa gums
1 dl súrmjólk, abmjólk eða grísk jógúrt
250 g af hveiti
Fullt af rúsínum
Úðið smá Pam Baking í möffinsformin
og setjið 2/3 af deigi í hvert form.
Bakast 170 gráður 25 - 30 mínútur eða
þangað til tannstöngullinn kemur þurr
uppúr eftir pot.
Smjörkrem
300 g smjör
300 g flórsykur
Nokkrir vanilludropar
Litir
Þeytið allt saman þangað til að verður
létt og froðukennt og skiptið niður
skálar fyrir litun. Byrjið á að setja
bara einn dropa til að fá tilfinninguna
fyrir litnum. Þegar liturinn er réttur
setjið smjörkremið í sprautupoka með
skemmtilegum stút við og byrjið að
skreyta.
„Allt í köku í Ármúlanum er besta búð-
in til að fara í þegar maður er byrjandi
í kökuskreytingum. Þar er hægt að fá
næstum alla liti og skraut og góðan
andlegan stuðning og hjálp. Annars
er komið gott úrval af bollakökudóti í
Kost og Hagkaup,“ segir Elísabet.
Arndísar-
kryddmöffins
eftir gamalli
uppskrift
frá Arndísi
frænku
Elísabetar.
En hvernig gengur að forðast
freistinguna að bíta í nýbakaða
kökuna? „Ég hef engan áhuga á
að borða það sem ég baka því mér
finnst deig til dæmis svo ógirni-
legt að það drepur niður alla löng-
un. Ég veit í raun ekkert hvort
ég er góð í þessu en ég er með
heilan her af fólki í vinnunni hjá
manninum mínum sem smakkar
fyrir mig og þau eru yfirleitt
frekar sátt.“ segir hún, hlær og
bætir við: „Jú, veistu, ég er eigin-
lega orðin neyðarlega vinsæl þar
en enginn hinna makanna kemur
reglulega með blá möffins með
fjársjóði inní.“
„Athöfnin við að baka og horfa
á aðra borða og segja namm er
það sem rekur mig áfram, þannig
afla ég mér vinsælda. Ég vil bara
vera elskuð, því það elska allir
bakandi konur,“ segir Elísabet
kímin.
Fyrir jólin ætlar Elísabet að
baka kryddkökumöffins eftir
gamalli uppskrift frá Arndísi
frænku sinni sem hún hún hefur
breytt örlítið . „Ég er orðin mikið
bakstursnörd og ligg yfir You-
tube, fræðist um bakstur og er
sífellt að prófa eitthvað nýtt. Um
síðustu jól gerði ég líka konfekt
sem var mjög gaman að búa til
og fallegt í gjafir. Fyrir mér snýst
þetta um að gefa. Ég baka með
hjartanu.“
ArndísArkryddmöffins
Ég hef engan áhuga á að borða það sem
ég baka því mér finnst deig til dæmis það
ógirnilegt að það drepur niður alla löngun.
Ég veit í raun ekkert hvort ég er góð í þessu
en ég er með heilan her af fólki í vinnunni
hjá manninum mínum sem smakkar fyrir
mig og þau eru yfirleitt frekar sátt.