Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 44
10 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
V ið bökum oft saman,“ segja frænkurnar og vinkonurnar Margrét
Kristjánsdóttir Wiium, 9 ára, og
Bryndís Guðmundsdóttir, 14 ára.
Þær hafa verið góðar vinkonur frá
því þær voru pínulitlar og bralla
oft eitthvað skemmtilegt saman.
Þegar Fréttatíminn tók á þeim
hús voru þær að baka súkkulaði-
bitakökur og piparkökur fyrir jól-
in. „Við erum reyndar ekki saman
yfir jólin en föndrum stundum eða
bökum fyrir jól,“ segja þær. „Við
erum reyndar ekki alltaf sammála
um hvað á að baka og þá endar
stundum með því að við gerum
eitthvað tvennt,“ segir Bryndís og
lítur brosandi til Margrétar sem
svara um hæl. „Eins og til dæmis
núna,“ og bætir við: „Annars
bökum við ekki bara kökur. Einu
sinni settum við upp pitsastað í
eldhúsinu og tókum við pöntunum
frá fjölskyldunni.“
Þær gjóa oft augunum til hvor
annarrar og önnur þeirra spyr
manstu? Og það er allt sem þarf
til að kveikja á minningu og þær
skella upp úr. „Auðvitað erum við
ekkert alltaf að baka eitthvað, við
förum líka í tölvuna og horfum á
eitthvað á Youtube,“ segir Mar-
grét.
Eldhúsreglurnar eru skýrar
hjá þeim frænkum og ganga þær
alltaf frá eftir sig. „Já auðvitað
gerum við það,“ segir Bryndís.
„En það er samt leiðinlegast að
ganga frá,“ segir Margrét og þær
hlæja báðar. „En á meðan við bök-
um spilum við tónlist og hlæjum
mikið. Það er svo skemmtilegt,“
segir Bryndís.
„Mér finnst svo gott að hafa
Bryndísi með mér í bakstrinum,
því hún er eldri og getur stjórnað
mér,“ segir Margrét og lítur til
frænku sinnar.
En heppnast alltaf allt sem þær
gera? Nú skella þær báðar upp-
úr „Allsekki. Einu sinni vorum
við að gera marengstoppa og
bætum fjólubláum matarlit
út í og það varð allt að
klessu. En svo höfum
við líka gert margt
sem er erfitt að gera
en hefur heppnast
vel. Til dæmis stóran
bleikan prinsessukas-
tala. Stundum heppnast
kökurnar vel og stundum
misheppnast þær, en það er í
góðu lagi því oftast er hægt að
borða þær og þær eru góðar á
bragðið og útlitið skiptir engu
máli.“
Jólabaksturinn
Útlitið skiptir ekki öllu máli
Frænkurnar og vinkonurnar Margrét og Bryndís baka mikið saman og opnuðu einu sinni pitstustað í eldhúsinu
Deigið hnoðað af reynslu og nákvæmni, en þrátt fyrir ungan aldur eru stelp-
urnar þaulvanar að baka saman án aðstoðar frá fullorðnum.
Margar hendur vinna létt verk þar sem deigið er skorið út í
jólatré, hreindýr og stjörnur og önnur skemmtileg jólamynstur.
Margrét og Bryndís fylla bökunarplötu af piparkökum sem eru tilbúnar að
fara í ofninn. Það er áður en þær tóku við að baka súkkulaðibitakökur.
CINTAMANI AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ, S. 533 3805
CINTAMANI BANKASTRÆTI 7
101 REYKJAVÍK, S. 533 3390
CINTAMANI KRINGLUNNI
103 REYKJAVÍK, S. 533 3003
ÓLA
Primaloft-úlpa á
stráka og stelpur.
Flott og létt úlpa,
hlý og góð og hentar
vel í alla útivist og
íþróttir. Fullkomin
í mjúka pakkann.
Verð:
21.990 kr.
ELFA
Dúnvesti á konur úr
polyester sem hrindir
frá sér vatni. Ekta
skinn á hettu sem
hægt er að taka af.
Stingdu höndunum
djúpt í flísfóðraða
vasana í vetur.
Verð:
36.990 kr.
DODDI
Krakkaúlpa með
léttri dúnfyllingu,
90% gæsadún og 10%
fiðri. Sterk og með
flísklæðningu innan
á hettu, kraga og
vösum. Það kemur
sér vel þegar kólnar.
Verð:
29.990 kr.
JÓNÍNA
Vinsælasta peysan
okkar er heilrennd
með hettu. Efnið er
Tecnostretch® sem
gerir hana bæði hlýja
og þægilega. Hringir
það einhverjum
jólabjöllum?
Verð:
19.990 kr.
ELNA
Hlý dúnúlpa fyrir
konur, kvenlegt snið
og hægt að þrengja
í mittið. Skinn innan
á hettu sem hægt er
að taka af. Góðir
vasar með notalegri
flísklæðningu verma
á köldum dögum.
Verð:
54.990 kr.
JÓLIN ERU Að KOMA
Ekki ber á öðru. Glóandi perur farnar að vaxa á
ólíklegustu stöðum, niður úr trjám, grenilengjum
og þakskeggjum. Allar þessar litríku díóður
breyta myrkrinu í ævintýraveröld. Skammdegið
og frostið ná ekki að taka völdin.
Brostu út að eyrum með rjóðar kinnar í kuldanum.
Komdu við í verslunum okkar og finndu hvernig
jólaspenningurinn verður meiri og meiri. Hjá okkur
finnur þú gjafir sem koma sér alltaf vel.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
C
IN
5
71
45
1
1.
11