Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 57
Bakaður jólagrautur með
eplum og pekanhnetum
jól 23 Helgin 25.-27. nóvember 2011
2 dl hafrar
2 dl vatn
1 msk mulin hörfræ
1 msk hlynsíróp
20 pekanhnetur (geymið nokkrar heilar
til að toppa grautinn með)
1/2 rautt epli (geymið nokkra bita til að
toppa grautinn með)
1 vanillustöng (skerið langsum með
fínum hníf og strjúkið kornin innan úr
með oddinum á hnífnum)
1/2 tsk kanill
1/16 tsk malaður negull
Sjávarsalt á hnífsoddi
Aðferð:
1. Hrærið saman í miðlungsstórri skál
höfrum, hörfræum og vatni, látið
standa í 5-10 mínútur svo grjónin og
fræin nái að draga vökvann svolítið
í sig.
2. Saxið pekanhneturnar gróft og skerið
eplið í hæfilega munnbita og bætið
í skálina ásamt restinni af innihalds-
efnunum.
3. Hellið yfir í betri skál, toppið
grautinn með nokkrum eplabitum og
pekanhnetum og bakið í ofni við 150
gráður C í 25-30 mínútur.
4. Njótið grautsins með mjólk, möndlu-
mjólk eða álíka eða einfaldlega eins
og hann er.
Þessi grautur er dásamlega jólalegur og
yljar manni á köldum vetrarmorgnum
þegar maður hefur innbyrt aðeins of
mikið að súkkulaði og rjóma og þarf
að fá almennilega næringu til að byrja
daginn á.
Hann inniheldur flott gróf kolvetni,
góðar trefjar, fín prótein og flottar fitur
sem halda blóðsykrinum í jafnvægi og
manni mettum í góðan tíma.
Uppskriftin er fyrir 1-2.
„Ég hangi yfirleitt
mikið í eldhúsinu
yfir jólahátíð-
irnar þar sem
mér finnst
gaman að
prófa og
þróa nýjar
uppskrift-
ir, baka
og hlusta á
fallega jóla-
tónlist.“
Sennilega eru fáir sem hafa heyrt
um Arne og Carlos, tvo Norðmenn
sem hafa ástríðu fyrir prjónaskap
og jólunum. En hver sá sem deilir
þessari ástríðu með þeim ætti að
hafa gaman af því að kynnast þeim.
Í bókinni 55 Christmas Balls to Knit
eru þeir, eins og nafnið gefur til
kynna, með prjónauppskriftir af 55
jólakúlum með sígildu norsku og
skandinavísku mynstri auk nokkurra
uppskrifta að öðru jólaskrauti. Bókin
fæst í Nexus og kostar 3745 krónur.
Jólaföndur
Karlar kunna líka að prjóna
UPPLIFÐU JÓLIN
Í EINUM GLÆSILEGASTA SAL LANDSINS
Verð 7.900 krónur á mann
Innifalið: Jólahlaðborð, fordrykkur
og boðsmiði í Bláa Lónið
„Við viljum þakka fyrir alveg einstaklega vel
heppnað jólahlaðborð. Við vorum alsæl með allt
sem þessu kvöldi tengdist, maturinn var alveg æði,
þjónustan framúrskarandi og veitingastaðurinn
sjálfur svakalega flottur.“
Starfsfólks Frímerkjasölu Íslandsspósts
www.bluelagoon.isBókanir í síma 420 8800 eða sales@bluelagoon.is
A
N
TO
N
&
B
ER
G
U
R
Jólahlaðborð á LAVA - Bláa Lóninu
25. nóvember, 2. desember, 9. & 10. desember
og 16. & 17 desember
Fullbókað 26. nóvember og 3. desember
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift á heimili á
höfuðborgar-svæðinu og Akureyri og í lausa-
dreifingu um allt land. Dreifing á bæklingum
og fylgiblöðum með Fréttatímanum er
hagkvæmur kostur.