Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 92
Helgin 25.-27. nóvember 201156 tíska
Gleðidagur á mun-
aðarleysingjahælinu
Í dag kvaddi ég munaðarleysingjahælið, þar
sem ég hef verið að vinna síðustu vikur hér
í Úganda, með heljarinnar kveðjupartíi. Við
sjálfboðaliðarnir splæstum í sparimat handa
börnunum, bökuðum kökur sem þau gæddu
sér á og gáfum hverju einasta barni nýjan
fatnað frá toppi til táar.
Alls eru áttatíu og
þrjú börn sem dvelja
á heimilinu og það
tók okkur heilan dag
á markaðinum að
finna fatnað fyrir þau
öll. Stelpurnar fengu
kjóla, pils, boli og skó
og strákarnir stutt-
buxur, boli og skó.
Þetta var heljarinnar
magn af fötum sem
við fjárfestum í, en
kostaði okkur lítið.
Þegar kom að því að
deila fötunum köll-
uðum við inn fimm börn inn í einu sem völdu
sér klæðnað. Ekki var að sjá neina öfund,
meting eða afbrýðsemi. Þau voru þakklát.
Þökkuðu fyrir sig og dönsuðu, hoppuðu og
sungu í nýju flíkunum.
Þetta var gleðidagur hjá krökkunum. Til til-
breytingar fengu þau eitthvað annað en maís
og baunir í matinn. Sjö daga vikunnar, 365
daga ársins, í öll mál, er sá réttur á boðstóln-
um. Fötin sem þau eiga eru notuð frá eldri
krökkunum og eiga þau enga persónulega
hluti sem þau geta kallað sitt eigið. Þetta
var í fyrsta skipti sem krakkarnir nutu sín
í splunkunýjum fatnaði. Gleðidagur á munað-
arleysingjahælinu.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Kolla með börnum +a
mundaðarleysingja-
hælinu. Ljósmynd/Haa-
kon Broder Lund
Jólailmur frá
Rihönnu
Söngkonan
Rihanna vinnur nú
hörðum höndum að
sínum öðrum ilmi
sem væntanlegur
er í desembermán-
uði, rétt fyrir jólin.
Ilmurinn mun
heita Rebelle
og segir söng-
konan þetta
vera ilm
sem
Elísabet Gunnars í miklu uppáhaldi
Arna Jónsdóttir er sautján ára nemi í
Verslunarskóla Íslands. Samhliða náminu
æfir hún ballett hjá Ballettskóla Sigríðar
Ármann og kennir þar einnig ásamt því að
kenna fimleika í Fjölni.
„Ég myndi kannski ekki segja að ég sé
með einhvern ákveðin stíl. Ég kaupi bara
fötin mín út um allt, þar sem ég finn þau. Ég
dregst ekkert endilega að einhverri sérstakri
búð en kannski svona í grunninn versla ég
mest í Topshop, H&M og Monki. Einnig versla
ég mikið á netinu og þá sérstaklega hjá
Elísabet Gunnars. Hún er með rosalega flott
föt og mikið úrval.“
5
dagar
dress
Star Wars-skór
frá Adidas
Íþróttavörufyrirtækið Adidas kynnti í
vikunni nýja skó sem eru sérstaklega
ætlaðir Star Wars-aðdáendum. Útlitið er í
stíl við þau föt sem Luke Skywalker, ein af
aðalpersónum kvikmyndanna, klæddist.
Línan samanstendur af aðeins tvennum
skópörum; brúnum og grænum og í
báðum pörunum má finna mynd
af Luke á utanverðri tungunni.
Skórnir verða seldir í versl-
unum Adidas í Banda-
ríkjunum og mun
parið kosta um
sautján þúsund
krónur. -kp
Vorlínu Marc
Jacobs stolið
Vorlína hönnuðarins Marc
Jacobs, sem hann sýndi á
tískupöllunum fyrr í
haust í London, var
stolið í vikunni úr
höfuðstöðvunum Ja-
cobs í London. Línan
samanstendur af 46
fallegum flíkum sem
metnar hafa verið á
sjö og hálfa milljón
króna. Hönnuður-
inn er miður sín
vegna þessa og
hefur boðið vegleg
fundalaun. -kp
Marc Jacobs.
Ljósmynd/
Nordicphotos
Getty-Images
veitir konum aukinn
kynþokka; á að vera
rómantískur og
dularfullur og laða
til sín karlkynið.
Ilmvatnsflaska
Rebelle verður
rauð, rómantísk
og jólaleg, í laginu
eins og fyrsti
ilmur söng-
konunnar, Reb'l
Fleur. -kp
Mánudagur
Skór: Rokk og rósir
Sokkabuxur: Oriblu
Stuttbuxur: Topshop
Bolur: Gyllti Kötturinn
Hálsmen: Marc Jacobs
Þriðjudagur
Skór: Converse
Buxur: Cheap Monday
Peysa: Topshop
Jakki: H&M
Hálsmen: Topshop
Miðvikudagur
Skór: Monki
Stuttbuxur: Monki
Skyrta: H&M
Vesti: Vila
Bolur: Topshop
Trefill: H&M
Fimmtudagur
Skór: Elísabet Gunnars
Buxur: Topshop
Bolur: Elísabet Gunnars
Jakki: Gina Tricot
Hálsmen: Indiska
Föstudagur
Skór: Manía
Buxur: Topshop
Skyrta: Gina Tricot
Loð: Elísabet Gunnars
Hálsmen: H&M
www.kolors.is
Gerðar úr sælgætisbréfum, tímaritum,
dagblöðum, strikamerkjum o.fl.
Fyrir hverja selda tösku er plantað tré
Fair Trade framleiðsla
Jólagjöfin í ár !!
Umhverfisvænar og flottar töskur
Varist eftirlíkingar!
Töskurnar fást einnig í:
Duty Free Fashion Store Fríhöfninni
Hrím Akureyri
Póley Vestmannaeyjum