Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 102
Jójó mögulega á svið
Nýjasta skáldsaga Steinunnar Sig-
urðardóttur, Jójó, hefur ekki aðeins
fengið frábæra dóma gagnrýnenda
heldur mun bókin mögulega verða
sviðsverk að auki í náinni framtíð.
Tekist hafa samningar milli rétt-
indastofu Bjarts, útgefanda Steinunnar,
og Borgarleikhússins, um að leikhúsið
skoði hvort skáldsagan henti til leik-
gerðar. Það er einvalalið sem stendur
að athuguninni, sami hópur og valdi
óvæntasta hittara síðustu jólavertíðar,
Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein
Birgisson, til uppsetningar en þar fer
leikgerðarhöfundurinn Ólafur Egill
Egilsson fremstur í flokki. Svar
við bréfi Helgu verður einmitt
frumsýnt í Borgarleikhúsinu í
vor og er uppsetningarinnar
beðið með mikilli eftirvænt-
ingu.
Nýtt lag Páls Óskars
fyrir UNICEF
Strax eftir helgi fer í spilun glænýtt lag með
konungi íslenskrar dægurtónlistar: Páli Óskari
Hjálmtýssyni. Lagið er samvinnuverkefni
hans og lagahöfundana í Redd Lights, sem hafa
meðal annars samið vinsæl lög fyrir Steinda
Jr. og Friðrik Dór, og er tileinkað Degi rauða
nefsins, en þá fer fram landssöfnun fyrir UNI-
CEF, Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna. Stóri dagurinn er 9.
desember. Páll Óskar fór fyrr í
haust til Afríkuríkisins Síerra
Leóne fyrir UNICEF og
mun textinn að hluta
til vera byggður á
miklum áhrifum sem
hann varð fyrir í
ferðinni.
F yrsta módel fitness mótið á Íslandi var haldið árið 2006 en Eva Lind byrjaði að æfa í janúar á þessu ári og segist vera
orðin alveg háð sportinu. „Ég keppti fyrst í
apríl og þetta er orðið alveg sjúklegt áhuga-
mál núna,“ segir Eva Lind sem keppti síðast
á WBFF-mótinu í Hörpu í byrjun þessa mán-
aðar. „Ég ætla að keppa aftur í júní og stefni
á að standa mig vel enda vonast ég til þess
að geta einhvern tíma orðið atvinnumann-
eskja í þessu. Klippið hefur samt forgang og
fitnessið er meira áhugamál en ég á mér mjög
lítið líf fyrir utan vinnuna og æfingarnar.“
Vinnutími klipparans er óreglulegur og
Eva Lind hefur svo mikið að gera núna að
hún vinnur þrettán klukkustunda vinnudag
og getur því lítið sinnt áhugamálinu. „Ég
æfði tvisvar á dag í þrjá mánuði en nú næ ég
ekkert að æfa og verð þá bara að borða hollt á
meðan, þá hefur þetta ekki áhrif á formið. Ég
vil vera með mjúkar línur og langar ekkert að
vera helköttaður djöfull í drasl. Ég lyfti bara
lóðum. Alveg stanslaust og brenni ekki neinu.
Margir misskilja þetta og halda að maður
eigi að vera á hlaupabrettinu eða skíðatækinu
stanslaust. Ég rétt hita upp í fjórar mínútur
og afgangurinn fer bara í lyftingar. Þannig
komst ég í það form sem ég er í.“
Eva Lind segir markmiðið með módel
fitness ekki vera að massa sig þannig upp að
kvenlegar línur hverfi. „Ég er alveg mössuð
en samt mjúk. Ég er alveg með rass, mjaðmir
og brjóst. Ég er ekkert köttuð og er hvers-
dagslega bara eins og venjuleg stelpa en
ef þú ferð með mér á æfingu þá sérðu hvað
vöðvarnir tútna út. Sá er munurinn. Stelpur
eru oft hræddar við að lyfta lóðum og halda
að þær verði massaðar en ég er búin að æfa
tvisvar á dag nánast síðan í janúar og ég er
ekki meira mössuð en raun ber vitni. Margar
stelpur þora bara ekki að koma við lóðin og
maður er að reyna að laga þetta viðhorf vegna
þess að það er í raun bara rugl að vera alltaf
á hlaupabrettinu. Það er ekki rétta leiðin til
þess að komast í form að mínu mati. Ekki
nema auðvitað að þú sért rosalega þéttur, þá
náttúrlega þarftu að brenna líka. En að mínu
mati er þetta besta leiðin og það er varanleg
losun á fitu að láta vöðvana éta þetta.“
Eva Lind lærði klippingu í Danmörku og
fór síðan í tíu daga einkakennslu í New York.
Hún útskrifaðist 2007 og hefur unnið í faginu
síðan. Hún hefur meira en nóg að gera. Er
núna að klippa Skaupið og stuttmynd. Hefur
nýlokið við heimildarmynd og í byrjun næsta
árs dettur bíómynd á klippiborðið. Hún er
klippari hjá Kukli og telur sig heppna að hafa
kynnst Eyrúnu Helgu Guðmundsdóttur
þar. „Hún er eiginlega eini klipparinn á Ís-
landi fyrir utan mig sem hefur áhuga á þessu
sporti þannig að við erum eins og síamství-
burar þessa dagana. Við erum báðar með
próteindunka í vinnunni, borðum eftir klukk-
unni og erum saman á æfingum. Mér líður
bara eins og ég hafi hitt sálufélaga minn. Það
munar rosalega að eiga góðan æfingafélaga
og við styðjum og hvetjum hvor aðra áfram.“
toti@frettatiminn.is
Stelpur eiga ekki
að óttast lóðin
Eva Lind Höskuldsdóttir klippir kvikmyndir og sjón-
varpsþætti myrkranna á milli en notar sínar fáu frí-
stundir til þess að lyfta lóðum í því sem kallast módel
fitness. Hún fékk Edduverðlaunin fyrir klippinguna
á Draumlandinu, vann með Valdísi Óskarsdóttur við
klippingu Brims og er núna að klippa Áramótaskaupið.
En í líkamsræktinni vill hún ekki vera of „köttuð“ og
passar uppá mjúku línurnar.
Eva Lind „Köttaður“ KLippari
v ið hjónaleysin ætl-uðum að eiga stund
saman þegar verslunin
opnaði, enda höfðum við
staðið á haus í undirbún-
ingi og töldum að þá gæfist
tóm, en svo er bara helm-
ingi meira að gera,“ segir
Albert Þór Magnússon
sem á sænsku fatakeðjuna
Lindex á Íslandi ásamt
konu sinni Lóu Dagbjörtu
Kristjánsdóttur.
Albert er kampakátur
með frábærar viðtökur.
Eins og frægt er tæmd-
ist verslunin fyrstu þrjá
dagana. Þau urðu að loka.
Nú getum við landsmenn
notið jólaútstillingar sem
Svíar sjá ekki fyrr en eftir
nokkra daga. „Já, nú erum
við aðeins á undan vegna
góðra undirtekta.“
Fleira starfsfólk, nýr
lager og glimrandi gangur.
Albert veitti sænsku sjón-
varpsstöðinni SVT viðtal
á miðvikudag. Spurt var
hvort Ísland væri að ná sér
úr kreppunni?
„Ætli það sé ekki tákn
um nýja tíma að við erum
farin að gera það sem aðrar
þjóðir gera; versla, byggja
upp og bæta við,“ segir
Albert. Jólaverslun landans
í útlöndum sé að flytjast
heim.
Þau Albert og Lóa eiga
tvo stráka. „Sá eldri hefur
endrum og sinnum hjálpað
til í versluninni, þótt hann
sé aðeins níu ára. Sá yngri
er geymdur hjá ömmu og
afa í Vatnsholti, rétt utan
við Selfoss.“ Fjölskyldan
býr á Selfossi. „Ég hef nú
ekki gist margar nætur þar
síðustu vikur,“ segir Albert
og hlær.
„Þakklæti er eina orðið
sem okkur kemur í huga til
að lýsa hvernig okkur líður.
Við hefðum ekki getað ósk-
að eftir betri móttökum. Ég
segi það eins og er. Þetta er
hreint út sagt ótrúlegt.“
gag@frettatiminn.is
LindEx ÓtrúLEgar Fyrstu viKur sænsKu vErsLunarKEðjunnar hér á Landi
Albert í viðtali við sænsku sjónvarpsstöðina SVT
Albert og Lóa í
Lindex. 1.000 gestir
heimsóttu verslunina
á miðvikudagsmorg-
un. Mynd/Hari.
„Ég vil
vera með
mjúkar línur
og langar
ekkert að
vera helkött-
aður djöfull í
drasl.“
Þegar ég hef unnið með strákum
eru alltaf pizzur eða Hlöllar í
hádegismat eða jafnvel kleinuhring-
ir,“ segir Eva Lind sem segist hafa
frelsast þegar hún byrjaði að vinna
með æfingarfélaga sínum, Eyrúnu
Helgu, en þær klippa og lyfta lóðum
saman í gríð og erg.
Eva Lind á WBFF-
mótinu í nóvember.
Rappað að sjóarasið
Rithöfundurinn Eyvindur P. Eiríksson hefur
gefið út á tveimur bókum, undir safnheitinu
Sjálfgefinn fugl, smásögur sínar og leikrit.
Leikritin og sögurnar spanna nokkuð langt
tímabil og elstu smásögurnar eru frá þeim
tíma er Eyvindur var að byrja að fikta við
skrif en hann er nú að nálgast áttrætt.
Honum var þá legið á hálsi fyrir að vera
frekar orðljótur og jafnvel með klámkjaft
sem skýrðist af því að hann notaðist við
kjarnyrt sjómannamál sem hann kynntist
á sjómannsárum sínum. Sonur Eyvindar,
rapparinn, Erpur Eyvindarson, þykir með
kjaftforari mönnum samtímans og í ljósi
eldri verka föður síns reynir hann nú að
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum
í síma 562 2772 og á ostabudin.is
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
skýra munnsöfnuð sinn með því að
hann hafi erft hann í karlegg. Ey-
vindur segir þetta hins vegar af og frá
og kjafturinn á syninum sé með öllu
sjálfsprottinn.
66 dægurmál Helgin 25.-27. nóvember 2011