Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 16
anchester United, Manchester City og Chelsea
eiga öll á hættu að komast ekki í sextán liða úrslit
meistaradeildarinnar. Aðeins er ein umferð eftir af
riðlakeppninni og er Arsenal eina enska liðið sem
er öruggt áfram. Þetta er ekki í samræmi við gengi
ensku liðanna í meistaradeildinni undanfarin ár.
Frá árinu 2005 hefur aðeins einn úrslitaleikur, leik-
ur Inter og Bayern München árið 2010, farið fram
án þess að enskt lið væri að spila. Úrslitaleikurinn
árið 2008 var til að mynda á milli ensku liðanna
Manchester United og Chelsea. Þetta var aðeins í
þriðja sinn sem það gerðist í sögu keppninnar að
lið frá sama landi etji kappi á þeim vettvangi. Áður
höfðu spænsku liðin Real Madrid og Valencia mæst
í úrslitaleik árið 2000 og ítölsku liðin AC Milan og
Juventus árið 2002. Árin 2008 og 2009 voru þrjú
ensk lið í úndanúrslitum en nú er bleik brugðið;
Chelsea, Manchester City og Manchester United eru
öll í hættu á að detta út þegar ein umferð er eftir af
riðlakeppninni. Möguleikar liðanna eru misgóðir.
Þannig nægir Manchester United jafntefli, Chelsea
dugar sigur eða markalaust jafntefli en Manchester
City þarf að sigra og auk þess að treysta á hagstæð
úrslit í hinum leiknum í riðlinum.
Chelsea mætir Valencia á Stamford Bridge
þriðjudaginn 6. desember. Liðin eru jöfn að stigum,
einu stigi á eftir Bayer Leverkusen sem er öruggt
áfram. Ef Chelsea vinnur er öruggt að liðið endar í
öðru af tveimur efstu sætunum og kemst í sextán
liða úrslitin. Ef úrslitin verða markalaust jafntefli
kemst Chelsea einnig áfram þar sem fyrri leikurinn
í Valencia endaði 1-1 – Chelsea kæmist áfram á fleiri
mörkum skoruðum á útivelli í innbyrðisviðureign-
um. Allar aðrar jafnteflistölur sem og sigur Valencia
þýða að Valencia kemst áfram á kostnað Chelsea.
Manchester United mætir svissneska liðinu Basel
á útivelli. United er í öðru sæti riðilsins, stigi á
undan Basel. Þannig dugar Manchester United sigur
eða jafntefli. Tap þýðir hins vegar að Basel kemst
áfram með Benfica sem er þegar öruggt í sextán
liða úrslit.
Verkefni Manchester City er torveldast. Manc-
hester City þarf að sigra Bayern München á heima-
velli og á sama tíma að treysta á að spænska
liðinu Villarreal vinni Napoli á heimavelli. Bayern
München hefur ekki tapað leik í meistaradeildinni á
þessu tímabili en Villarreal hefur tapað öllum fimm
leikjum sínum. oskar@frettatiminn.is
Meistaradeild evrópu
Þrjú ensk lið í hættu
Ensk lið hafa átt frábæru gengi að fagna í meistaradeild Evrópu á undanförnum árum og tvívegis hrósað sigri,
árin 2005 og 2008. Nú er svo komið að fyrir síðustu umferð riðlakeppninnar er aðeins eitt enskt lið öruggt áfram
í sextán liða úrslit. Og það er ekki Manchester City, ekki Manchester United og ekki Chelsea heldur Arsenal.
Stjórarnir þrír Roberto Mancini, Andre Villas-Boas og Alex Ferguson eru undir mikilli pressu fyrir síðustu umferð riðlakeppni meistaradeildar Evrópu sem fer fram eftir tæpar tvær vikur. Nordic Photos/Getty Images
M
Jólahlaðborð 2011
Jólaveisla fyrir einstaklinga og hópa
allar helgar á aðventunni
videyjarstofa@holt.is sími 552 5700 www.videyjarstofa.is
Gallery Restaurant – Hótel Holt
sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu.
Lifan
di
píanó
tónli
st
með
ljúfu
m
jólalö
gum
16 fótbolti Helgin 25.-27. nóvember 2011