Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 27
sumar sæki í bótox og fylliefni í
heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem erlend kona starfi og eftir-
litið sé ekkert. Fyrrverandi formað-
ur Læknafélagsins varaði við því.
Spurður um þetta bendir Ágúst á að
bótox sé lyfseðilsskylt efni.
„Aðeins læknar geta skrifað upp
á efnið og ættu að vinna með það.
Því má ætla að allt bótox sem aðrir
höndla með sé þá smyglað til lands-
ins. Fylliefnin eru hins vegar ekki
lyfseðilsskyld. En þar er líka verið
að sprauta efni undir húð. Því geta
komið upp alvarlegar sýkingar svo
grípa þarf til sýklalyfja eða annað
sem bregðast þurfi við með skurð-
aðgerðum. Sá sem framkvæmir
þetta þarf að vita hvað hann er að
gera, “ segir Ágúst.
Spurður um útblásnar Holly-
wood-stjörnur hlær Ágúst og segir
að öllu megi ofgera. „Bótox og fylli-
efni virðast mjög algeng í Banda-
ríkjunum og jafnvel í boði fyrir
börn. En mér finnst að börn eigi
ekki að nota þau,“ segir hann. „Það
er hægt að hjálpa fólki með bótoxi
og fylliefnum en það þarf að stíga
varlega til jarðar.“ Ágúst segir að
hann gripi í taumana teldi hann ein-
hvern koma of oft til sín.
„Já, en ég hef sem betur fer aldrei
þurft þess. Íslendingar eru ekki
eins ginkeyptir fyrir þessu og virð-
ist vera í Bandaríkjunum. Fólk er
yfirleitt mjög upplýst og hér koma
ekki krakkar í bótox heldur eldri,
skynsamir einstaklingar sem hafa
velt þessu fyrir sér, vita hvað þeir
vilja og vilja vera innan skynsam-
legra marka.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ágúst Birgisson,
lýtalæknir, segir að öllu
megi ofgera en bótox
og fylliefni í réttum
skömmtum fari vel.
www.tok.is www.hugurax.is Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík Sími 545 1000
30 ár í þjónustu við íslensk fyrirtæki.
ÞARF
NOKKUÐ
AÐ SEGJA
MEIRA
TOK er íslenskt bókhalds- og launakerfi, sérhannað fyrir
íslensk fyrirtæki.
Í ár fögnum við 30 ára afmæli. Á þessum árum hefur
TOK tekið miklum breytingum, þróast og aðlagast nýjum
aðstæðum. Eitt hefur þó ekki breyst; sú staðreynd að TOK
er eitt vinsælasta bókhalds- og launakerfið á Íslandi sem
þúsundir fyrirtækja nota, meðal annars OSI.
TOK er sveigjanlegt og þjónustan er sérsniðin að þínum
þörfum: TOK stækkar og breytist með fyrirtækinu.
Það er engin tilviljun að við erum enn í fullu fjöri.
TOK er almennilegt kerfi sem virkar.
Það þarf ekki að segja meira!
Hægt er að leigja TOK til uppsetningar á eigin vélbúnað eða í hýsingu. Þú greiðir einfaldlega fast mánaðargjald og tryggir þannig jafnari og lægri útgjöld. Enginn stofnkostnaður!
OSI ehf.
notar TOK
PIPA
R
\TBW
A
• SÍA
• 112494