Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 68
34 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
U m leið og að fésbókarsíðan Hugmyndir fyrir heimilið opnaði létu nokkur þúsund manns sér líka við hana og er tala þeirra
komin uppí 20 þúsund. Síðan var sett upp sem
hugmyndageymsla fyrir Önnu Lísu en tölvan
hennar var að fyllast af myndum og efni sem hún
þurfti að koma frá sér. Þessar óvæntu vinsældir
urðu til þess að hún fékk Ingibjörgu vinkonu sína
til samstarfs við sig og þær opnuðu vefsíðuna
hugmyndirfyrirheimilid.is. Þar er að finna ara-
grúa af allskyns lausnum í hönnun og skipulagi
heimilsins sem Anna Lísa og Inigbjörg finna
víða á vefnum, taka saman og skipuleggja fyrir
lesendur síðunnar. Að sjálfsögðu luma þær á
nokkrum góðum hugmyndum fyrir jólin.
„Okkur er mikið í mun að gera eitthvað sem
kostar helst ekki neitt án þess að slá af kröfum
um útlit og gæði,“ segir Anna Lísa og sýnir meðal
annars steyptan aðventurkrans. „Þetta er mjög
auðvelt að búa til. Ég notaði gamalt kökuform,
hrærði steypu og hellti í formið. Og, nei, það er
ekkert mál,” segir hún aðspurð. „Maður kaupir
bara steypu í byggingavöruverslun og hrærir
henni saman með vatni í plastfötu.“ Anna Lísa
ráðleggur fólki þó að smyrja mótið með matarol-
íu áður en steypunni er hellt ofan í. „Svo er hægt
að rúlla upp mjólkurfernum og stinga í steypuna
til að gera holur fyrir kerti.“ Svona krans er ekki
nema sólarhring að þorna og þá er hægt að taka
hann úr mótinu og byrja að skreyta
hann. Anna Lísa segir að sniðugt sé
að leita á heimilinu, hvort þar sé
ekki eitthvað sem megi nota til
að skreyta með, til dæmis
má nota einföld pipar-
kökuform.
Næst dregur hún
fram krans sem búinn
er til úr möffinspappa-
formum „Þetta er
einmitt ein hugmynd Aðventukrans sem var steyptur
í gamalt kökumót. Hér er hann
skreyttur með piparkökumótum.
Engillinn er búinn til úr servíettupappír, vír, kreppappír og trékúlu.Jólakrans úr bollakökuformum sem hafa verið límd saman.
Ingibjörg og Anna Lísa
fá heilmikið af skemmti-
legum hugmyndum.
Heim Handavinna jólaskraUt
Okkur er
mikið í
mun að
gera eitt-
hvað sem
kostar
helst ekki
neitt án
þess að slá
af kröfum
um útlit og
gæði.
Nokkrar góðar
hugmyndir
Hráefni í aðventukransa og annað jólaskraut getur leynst víða á
heimilinu og þarf ekki að kosta mikið.
sem ég fann á
netinu,“ segir
Anna Lísa og
lýsir því hvernig
pappírsformin eru
einfaldlega fest á hring.
Hægt er að hengja kransinn
upp eða láta hann liggja á borði og
setja kerti í glasi í miðju hringsins.
„Það er svo ótrúlega mikið af
sniðugu hráefni á heimilinu sem
hægt að er að nýta, jafnvel er hægt
að nota eitthvað sem fólk notar aldrei
eða ætlar að henda,“ skýtur Ingi-
björg samstarfskona Önnu Lísu inní.
Þær segjast alltaf vera að fá góðar
hugmyndir sjálfar og hafi gaman af
því að deila með öðrum. Anna Lísa
finnur ekki bara hráefnið heima hjá
sér heldur einnig allt í kringum sig, í
fjörunni við Þorlákshöfn þar sem hún
býr og víðar. „Ég fann eitt sinn ryðgað
rör með gati og nota það núna sem
kertastjaka úti á palli. Það er hægt að
nýta ótrúlegustu hluti ef maður leyfir
ímyndunaraflinu að ráða för.“
Kristín eva
Þórhallsdóttir
heimili@frettatiminn.is
Jesústytta sem Anna Lísa bjó til
með því að hella steypu í mót sem
hún fékk í Litir og föndur.
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift á heimili á
höfuðborgar-svæðinu og Akureyri og í lausa-
dreifingu um allt land. Dreifing á bæklingum
og fylgiblöðum með Fréttatímanum er
hagkvæmur kostur.