Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 38
4 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
G runnhugmyndin var að nota aðeins hluti sem ég fann til á heimilinu til að skreyta jólatréð. Mig langaði til að þess að það
liti stórkostlega út og vildi sýna að það er alveg
óþarfi að missa sig
í jólakúlu- og ser-
íuskreytingum til
að gera tréð fallegt
og hátíðlegt. Vel er
hægt að fara aðra
leið og skreyta
með fallegum mun-
um sem finnast á
hverju heimili, ein-
földu heimaföndri
og jafnvel leikföng-
um, skartgripum
eða mat,“ segir
Steinunn Vala
skartgripahönn-
uður og eigandi
Hring eftir hring,
en viðurkennir
að hún missi sig
alltaf pínulítið við
að skreyta tréð og
á hverju ári detti
henni eitthvað nýtt
í hug.
„Við fjölskyldan
förum á hverju ári
og höggvum niður
okkar eigið tré í
Heiðmörk og það
er alltaf dásamleg
fjölskylduferð.
Þetta höfum við gert í mörg ár, með örfáum
undantekningum. Það er svo yndislegt að koma
í Heiðmörkina í jólastemmninguna, þar eru
jólasveinar á ferð og piparkökur og kakó í boði.
Eftir góðan göngutúr finnur maður tréð, sagar
það niður og dregur svo heim og skreytir. Það er
dásamlegt,“ segir Steinunn Vala og bætir við að
þetta geri hún með góðri samvisku því hún veit
að þessir fáu aurar sem tréð kostar renna í sjóð
Skógræktarfélags Reykjavíkur sem sér um að
viðhalda skóginum og útivistarsvæðinu í Heið-
mörk, sem Steinunn Vala segir algera perlu sem
hún heimsækir oft.
„Eitt árið fengum við tvíburatréð. Það stóð í
stórum skafli og þegar maðurinn minn burst-
aði snjóinn frá til að saga það niður kom í ljós að
Jólatréð skreytt á frumleGan hátt
Skrautið
segir sögu
Steinunn Vala Sigfúsdóttir og fjölskylda hennar leggja ást og alúð
í jólatréð ár hvert. Tréð höggva þau í Heiðmörk hjá Skógræktar-
félagi Reykjavíkur og Steinunn Vala útbýr frumlegar og skemmti-
legar skreytingar.
annað lítil tré var fast við stofninn.“
Við skreytingu á trénu notast
Steinunn við gamalt og nýtt skraut
og ýmislegt annað sem fellur til.
„Í þetta sinn blés ég úr eggjum
og gerði kúlur úr skurninni, svo
átti ég afganga af leir sem ég nota
við skargripagerð mína og útbjó
skraut úr honum, auk þess sem ég
nýtti gamla skartgripi og fleira,“
segir Steinunn Vala.
„Fallegast er þegar maður nær
að segja sögu með skrautinu, eitt-
hvað gamalt og eitthvað nýtt. Ég
bý alltaf til heildstæðan grunn,
og skemmtilegast er að hafa hann
svolítið skrítin,” segir hún og hlær
og heldur áfram. “Grunnurinn
slær tóninn og svo get ég sett hvað
sem er á tréð.“
Jólatréð sem Stein-
unn Vala hjó sjálf
niður í Heiðmörk á
svæði Skógræktar-
félags Reykjavíkur.
Steinunn Vala Sigfúsdóttir skart-
gripahönnuður vildi skreyta tréð á
einfaldan hátt og sýna að það væri
óþarfi að missa sig í jólakúlu- og
seríuskreytingum.
Skreytt með leirkúlum og merkimiðum. Leikföng úr barnaherberginu rata á tréð. Kanína gægist á milli greina.
Fékkstu ekki
Fréttatímann
heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með
tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is