Fréttatíminn - 25.11.2011, Blaðsíða 21
Verslun
Ármúla 26
522 3000
Opið:
virka daga
9.30–18
laugardaga
12–17
NÝTT Í HÁTÆKNI
KYNNINGARVERÐ Á TÖLVUM
Spjallaðu við starfs-
menn okkar til að
fræðast meira um
þessi frábæru
greiðslukjör.
VAXTALAUS
Á VÖLDUM
VÖRUM
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 113126
Nýjasta vélin frá Asus með 13,3" LED-
skjá, 2.2 Ghz i3 Intel örgjörva og 500
GB hörðum diski. Gott þráðlaust netkort
ásamt BlueTooth 3.0 stuðningi.
Verð frá:
79.995
ASUS 13,3" i3-2330 m
2.2 GHz
Acer Aspire er öflug heimavél með
17,3" stórum og björtum skjá. Hentug
vél í alla helstu heimavinnu og sem
margmiðlunarvél. Frábært verð fyrir
17,3" vél.
ACER Aspire 17.3"
2.1 GHz 500GB
Ný og endurhönnuð MacBook Air.
Skjár með hárri upplausn og hröðu
flash-minni í stað harðs disks.
1.6 GHz dual-core Intel Core i5 með 3
MB deildu L3 minni, 64 GB flash,
2 GB vinnsluminni. Aðeins 1kg.
Apple MacBook Air
11“ 64 GB
Frábær létt og nett fartölva með
13,3" LED-skjá, 500 GB hörðum diski,
góðum Intel-örgjörva, öflugri 2 Mpixla
netmyndavél, DVD-skrifara og góðu
þráðlausu netkorti ásamt BlueTooth
stuðningi.
LENOVO IdeaPad Z370 13,3"
Motorola Xoom er sú spjaldtölva sem vakti
mesta athyggli á CES 2011 tæknisýningunni.
Android stýrikerfi, 1 GHz örgjörvi, HD-myndavél,
GPS og fleira og fleira. Til í Wi-Fi og 3G útgáfu.
Motorola Xoom 10,1“
spjaldtölva
Verð frá:
229.995
2,5 GHz fjögurra-kjarna Intel Core i5
4 GB DDR3 vinnsluminni, 500 GB
harður diskur, AMD Radeon HD,
6750 M 512 MB. Þráðlaust íslenskt
lyklaborð og mús. Fleiri stærðir
fáanlegar.
Apple iMac 21,5“
2.5 GHz Quad i5
Acer TravelMate er 15,6" fartölva
með skýrum og björtum LED-skjá.
Er með öllu því helsta sem prýðir
góða fartölvu til daglegra nota.
Frábært verð!
ACER TravelMate 15,6"
Jólagjöfin í ár!
Örfáar
eftir!
Örfáar
eftir!
Verð:
169.995
Verð:
129.995
Verð:
69.995
Verð:
129.995
Verð:
109.995
Fullt verð:
149.995
Fullt verð:
94.995
Fullt verð:
149.995
Fullt verð:
149.995
Fullt verð:
234.995
Fullt verð:
179.995
tækifærin þegar þau koma. En ég
hugsaði líka það sem afi kenndi
mér: Þetta er allt í huganum,“ segir
Jóhann Gunnar. „Auðvitað var ég
sjóveikur á þessari löngu leið frá
Chile til Íslands, en stóð mínar
vaktir og eldaði alla daga morgun-
mat, hádegismat, eftirmiðdags-
kaffi, kvöldmat og kvöldkaffi. Ég
var auðvitað vel birgur að sjóveiki-
plástrum, töflum og armböndum!
En ég er forlagatrúar og þar sem ég
ólst mikið upp með ömmum mínum
og öfum lærði ég að þegar maður
tekur ákvörðun þá stendur hún og
maður á ekki að líta til baka. Það er
alltaf einhver sem beinir manni inn
á réttar brautir. Þau kenndu mér
að maður á aldrei að sjá eftir neinu.
Það skiptir mig engu máli hvort
ég er að elda fyrir fjölskylduna,
skipverja, kónga eða hefðarfólk –
mitt markmið er alltaf að gera eins
góðan mat og ég get með það hrá-
efni sem ég hef hverju sinni.“
Nafnið Þór tengist lífi Jóhanns á
ótrúlega margan hátt.
„Amma fæddist á Þórshöfn;
ömmubróðir minn, Þór Steingríms-
son, var yfirvélstjóri á Tý lengi og
þannig tengist ég Gæslunni á ská,
afi minn heitinn, Einar Jónsson
var sjómaður í Vestmannaeyjum
og varðskipið Þór sigldi inn í Eyjar
á afmælisdegi hans, 26. október,
bróðir pabba, Hermann Einarsson,
var einn af hvatamönnum þess að
sett var upp minnismerki um fyrsta
Þór og skrúfan úr skipinu sett upp
í Friðarhöfn. Svo var ég Þórsari á
Akureyri og skömmu áður en pabbi
minn dó var hann farinn að skrifa
sögu íþróttafélagsins Þórs í Vest-
mannaeyjum.“
… og þjónninn á fasteignasölu
Kristín hafði ráðið sig sem þjón á
Grand hótel til að hafa umsjón með
morgunverðinum og hafði ráðið
sig á tólf tíma vaktir. Óskaði eftir
að byrja eftir að þau hefðu komið
sér fyrir í nýju íbúðinni og fara
með Margréti Hörn á danskeppni í
útlöndum.
„Áður en að því kom að ég byrj-
aði að vinna á Grand hóteli var mér
boðin vinna sem sölufulltrúi á fast-
eignasölu. Ég fann að það var eitt-
hvað sem mig langaði til að gera.
Samdi við Grand hótel að ég ynni 6
tíma vaktavinnu, frá 6 til 12 og færi
þá á fasteignasöluna, þannig að
dagarnir eru oft mjög langir. Ég hef
kynnst mörgu góðu fólki, starfs-
andinn er góður og mér finnst
lærdómsríkt að sitja hjá fólki sem
er að selja heimili sín. Þar heyri ég
ótrúlegustu lífsreynslusögur – sem
ég geymi hjá mér.“
Dæturnar grétu af gleði
Það er gaman að heyra hvaða við-
brögð stelpurnar sýndu þegar þær
mamma þeirra sagði þeim að þau
væru búin að segja upp og væru að
flytja til Hafnarfjarðar:
„Þær fóru að hágráta af gleði,
titruðu og skellihlógu, allt í senn!“
segir Kristín. „Þá kannski skynjuð-
um við fyrst hvað þessi einangrun
hafði hvílt á þeim. Þær kvörtuðu
aldrei. En reyndar vildu þær bíða
með að við hættum ef ske kynni að
Justin Bieber kæmi í heimsókn!“
En sakna systurnar einhvers frá
Bessastöðum?
„Já við söknum náttúrunnar
og útsýnisins, fólksins og Sáms,
hundsins á Bessastöðum. En það
er mjög gott að vera kominn til
Hafnarfjarðar, komnar í skóla hér
og búnar að eignast marga vini.“
„Auðvitað myndast sterk tengsl
við samfélagið og staðinn,“ segir
Jóhann. „Fjórir störfuðu á skrifstof-
unni; bílstjórinn og umsjónarmaður
fasteigna auk okkar. Við vorum
einmitt í hádeginu í dag í plokkfiski
á forsetaskrifstofunni með fyrrum
samstarfsfólki. Við erum mjög stolt
af starfinu okkar á Bessastöðum og
við fundum alveg fyrir að forsetinn
og Dorrit kunnu að meta okkar
störf. Forsetinn sæmdi okkur
heiðurpeningi forseta Íslands,
þeim fyrstu sem hann sem forseti
afhendir og stórt leiregg, unnið af
Höllu Ásgeirsdóttur sem aðeins
þjóðhöfðingar hafa fengið að gjöf.
Þetta er áletrað með nöfnunum
okkar og þökkum.“
Eftir að hafa skoðað heiðurspen-
ingana fór blaðamður á Netið og las
þetta um þá þar.
„Heiðurspeninginn getur forseti
Íslands, án atbeina annarra aðila,
afhent íslenskum sem erlendum
mönnum fyrir þjónustu látna í té
við forseta.“ Það er því ljóst að for-
setahjónin kunnu vel að meta störf
þeirra hjóna.
Helblátt fólk á Bessastöðum
Þegar Kristín og Jóhann Gunnar
voru ráðin að Bessastöðum hringdu
einhverjir í símatíma útvarpsstöðv-
ar og sögðu að þarna hefði nú verið
klíkuskapur, þau væru samherjar
forsetar í pólitík. Þau skellihlæja að
þessu og segja svo:
„Já, já, við fengum sko alveg að
heyra það að við hefðum verið í
Alþýðubandalaginu, en það fyndna
er að það finnst ekki blárri taug í
nokkrum en okkur! Við erum gall-
harðir Sjálfstæðismenn bæði tvö og
höfum verið áskrifendur að Mogg-
anum frá því við vorum innan við
tvítugt! Það var semsagt helblátt
fólk við vinnu á Bessastöðum!“
Þau eru bæði virk í Oddfellow-
hreyfingunni og komu með þá
hugmynd, þegar jarðskjálfti reið
yfir Pakistan árið 2005, að skreyta
leiðisgreinar og kaupa kerti og selja
til styrktar fórnarlömbunum þar.
„Þessari hugmynd var vel
tekið og við höfum síðan safnað
til góðgerðarmála, en eftir hrunið
þá höfum við einbeitt okkur að ís-
lenskum börnum. Við verðum með
sölu á þessum vörum nú í desemb-
er og getum þá aðstoðað fjölskyld-
ur í vanda. Þeir eru margir sem
koma að þessu verkefni í dag, enda
gætum við þetta ekki ein. Odd-
fellowreglan vinnur mikið og gott
góðgerðarstarf sem við erum stolt
að fá að vera hluti af.“
Leitið upplýsinga á
auglýsingadeild Fréttatímans
í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift
á heimili á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri og
í lausadreifingu um allt
land. Dreifing á bækl-
ingum og fylgiblöðum
með Fréttatímanum
er hagkvæmur kostur.
viðtal 21 Helgin 25.-27. nóvember 2011