Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 25.11.2011, Qupperneq 12
F átt er eins skemmandi og einelti. Skaðsemi langvinns eineltis getur varað alla ævi,“ segir meðal ann- ars á vef Kolbrúnar Baldursdóttur sálfræðings. Þar kemur fram að sjálfsmat barns sem orðið hefur fyrir ítrek- uðum árásum eða hunsun og fyrirlitningu annarra barna í langan tíma verður fljótt eins og rjúkandi rúst. „Þeir sem þetta hafa þolað, án þess að tekist hafi að grípa inn í og stöðva, leggja iðulega af stað út í lífið með skadd- aða sjálfsvirðingu,“ segir enn fremur en til- finningar eins og reiði, vanmáttur og höfn- un fylgir þessum einstaklingum ævilangt. Líðan geranda eineltis er heldur ekki góð en ein helsta orsök þess að einstaklingur meiðir annan, telur Kolbrún vera, lágt sjálfsmat og vanlíðan. Þegar rætt er um einelti er um að ræða ámælisverða eða endurtekna ótilhlýðilega háttsemi, það er athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, sniðganga, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Það er því að vonum að leitað sé allra leiða til að fyrirbyggja einelti og stöðva það sem er í gangi. „Hagsmunir allra barna í eineltismál- um eru í húfi hvort heldur þolanda, geranda eða fylgismanna,“ segir Kolbrún. Í nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur að- ila skólasamfélagsins í grunnskólum kemur meðal annars fram að allir skólar skulu setja sér heildstæða stefnu til að fyrirbyggja og bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri einangrun. Skólar skulu setja aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltis- mál í skólanum. Kostnaði þarf að fylgja árangur Tugir skóla taka þátt í Olweusaráætluninni gegn einelti og andfélagslegu atferli en aðrir nota aðrar aðferðir. Áætlunin er kennd við norska prófessorinn Dan Olweus en á síðu þess verkefnisins kemur fram að það sé rekið á fjárhagslega sjálfstæðum grunni með styrk frá menntamálaráðuneytinu og með stuðningi Háskóla Íslands og Námsgagnastofnunar. Út er komin skýrsla eða greining eftir Al- mar Miðvík Halldórsson, hjá Skólapúlsinum: „Einelti og líðan nemenda í grunnskólum sem vinna samkvæmt Olweus áætluninni gegn einelti skólaárið 2010-2011“. Greiningin var unnin að beiðni Kolbrúnar Baldursdóttur en staða í skólunum var metin eftir því hvort þar var unnið eftir Olweusaráætluninni gegn ein- elti eður ei. Kolbrún sagði í viðtali við Fréttatímann að Olweusarverkefnið kostaði skólana og hið opinbera umtalsverða fjármuni. „Í skýrslunni koma fram upplýsingar fyrir skólastjóra til að moða úr, hvort heldur þeir fylgja Olweusar- áætluninni eða ekki. Um leið bendi ég á að til eru aðrir valmöguleikar til að koma sér upp aðgerðum gegn einelti sem eru ekki kostn- aðarsamir. Þegar verið er að borga mikið fyrir eitthvað þarf að fylgja árangur yfir heildina. Í skýrslunni kemur fram að 7. bekkur grunn- skóla nýtur góðs af þátttöku í verkefninu og það virðist einnig skila sér til yngri barnanna en unglingarnir, það er 8. og 9. bekkur, eru, samkvæmt þessari greiningu, ekki að njóta neins sérstaks góðs af þessu verkefni ef borið er saman við aðra skóla sem ekki styðjast við Olweus. Það þarf þá að gera eitthvað annað fyrir þann aldurshóp ef marka má þessar nið- urstöður. Með þessar upplýsingar getur hver og einn skólastjóri metið stöðuna hjá sér og athugað leiðir til að mæta þörfum allra ár- ganga,” segir Kolbrún. Munur en þó lítill Í könnun Almars eru 70 skólar, 32 þeirra voru í Olweusaráætluninni en 38 skólar ekki skráð- ir í hana. Kynjahlutfall var jafnt en skólarnir misstórir, frá 25 nemendum til 349 nemenda. Í samantekt greiningarinnar kemur fram að í heild sýnir rannsóknin að einelti er mark- tækt minna í skólum sem vinna eftir Olweus- aráætluninni en í skólum sem gera það ekki en munurinn er þó lítill. Hann tengist aldri nemenda og aldurskiptingu skólans. Svo virð- ist sem jákvæðari áhrifa áætlunarinnar njóti ekki við í 6. og 7. bekk ef eldri nemendur eru í skólanum. „Áberandi mest áhrif eru af áætl- uninni í 7. bekk í skólum án unglingastigs en mun minni í 7. bekk skóla með unglingastig. Hafa ber í huga að í þessum skólum eru nem- endur í 7. bekk elstir í skólanum og einelti þar eingöngu bundið við jafnaldra, en í skólum með unglingadeild geta nemendur í 7. bekk orðið fyrir einelti bæði af hendi jafnaldra og eldri nemenda í skólanum. Í Olweus skólum eru tengsl eineltis við líðan nemenda ekki frá- brugðin því sem gerist í öðrum skólum,“ segir í samantekt Almars. Hann segir niðurstöð- urnar benda til þess að með Olweusaráætl- uninni takist að draga úr neikvæðum áhrif- um eineltis á líðan í 7. bekk en ekki í öðrum bekkjum. Kolbrún segir að miðað við þetta megi vel spyrja hvort Olweusaráætlunin hafi verið að gefa nógu góða raun þótt hún sé viss um að það hafi gert okkur gott að innleiða hana á sínum tíma. „Það hjálpaði okkur að kortleggja þessa hluti en síðan má benda fólki á að aðrir valmöguleikar eru fyrir hendi sem eru ekki eins kostnaðarsamir. Þetta er vissulega allt spurning um forgangsröðun og nýtingu pen- inga. Við erum svo glöð þegar við byrjum á einhverju, borgum og borgum en skoðum ekki hvernig fjármagnið nýtist. Ég hefði viljað sjá að skólar með Olweusaráætlunina væru að koma verulega betur út til að réttlæta kostn- aðinn en skýrslan er gagnleg fyrir Olweusar- skólana til þess að sjá hvar eru styrkleikar og hvar eru veikleikar með notkun Olweusar- áætlunarinnar. Það þarf því svona rýningu, helst árlega, til þess að skólarnir og ríkið viti í hvað pening- arnir fara. Ég bendi á mikilvægi þess að gera svona úttekt, sérstaklega þegar verið er að leggja fé í eitthvað, að ekki sé bara skrúfað frá krana og látið renna án þess að skoða áhrifin.“ Tíðni eineltis tengist skólabrag Kolbún bendir á að hún sé með upplýsinga- vef um einelti og fleiri hafi komið með góðar ábendingar fyrir skóla. Á vef Kolbúnar, kol- brunbaldurs.is, „Höldum saman gegn einelti“ er aðgangur frjáls og frír. „Skólar geta tekið af vefnum upplýsingar, meðal annars hug- myndafræði, hvernig hægt er að byggja upp og viðhalda jákvæðum skólabrag, verklag og viðbragðsáætlanir sem og aðra fræðslu um aðgerðir gegn einelti. Við þekkjum afleiðingar eineltis og því er til mikils að vinna. Á þennan vef hef ég sett inn atriði sem skiptir máli að gera þegar svona mál koma upp og hvað þarf að varast ef þessi mál eiga ekki eftir að verða að martröð. Þarna fær fólk aðferðafræðina og leiðbeiningar um verkferla. Á síðunni er efni flokkað, hvort um er að ræða vinnustaði, skóla, íþrótta- og æskulýðshreyfingar og einn- ig efni sérstaklega ætlað foreldrum. Það er fullt af skólum sem vinna ekki eftir Olweusaráætluninni sem eru með fyrirmynd- arvinnubrögð. Sama má segja um marga skóla sem starfa eftir Olweusaráætluninni. Víða má nú sjá samskiptareglur, tilkynningareyðublöð um einelti og viðbragðsáætlanir, allt aðgengi- legt á heimasíðum skóla,” segir Kolbrún. Hún segir það meðal annars tengjast skóla- brag hvort eineltismál séu tíð eða ekki. „Þar sem er góður skólabragur og ef skólinn er góður vinnustaður þar sem kennurum og starfsfólki líður vel og þar sem reglur eru skýrar og börnin upplýst um þær með reglu- legu millibili tel ég að eineltismálum hafi fækkað,“ segir Kolbrún um leið og hún leggur áherslu á að kallað sé eftir góðum tengslum foreldra og skóla og samvinnu við nemendur. „Hver og einn verður að taka ábyrgð á þeim þætti sem að honum snýr. Samvinna og sam- hugur er það eina sem gildir í þessu sem svo mörgu öðru sem lýtur að manneskjunni og velferð hennar.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Birtingarform: Hroki (valdhroki), fyrirlitning. Ókurteisi. Óljós eða tvíræð skilaboð. Óraunsæjar eða ósanngjarnar kröfur um markmið eða tíma- áætlanir. Upplýsingastreymi takmarkað markvisst til starfsmanns. Birtingarform eineltis geta verið dulin: Slúður. Undirróður. Baktal. Neikvætt tal eða níð sem er til þess fallið að kasta rýrð á manneskju, bæði persónulega og faglega, í augum samstarfs- manna. Athugasemdir um: Klæðaburð. Mataræði. Líkamsburð, stíl, venjur, siði eða hátt. Húðlit, menningu eða trúarbrögð. Gróf stríðni, hæðni. Kerfisbundin útskúfun, hunsun, horfa ekki í augu (þolandi upplifir sig ósýnilegan). Aðili markvisst einangraður frá félagslegum samskiptum. Endurteknar skammir sem beinast meðal annars að frammistöðu. Óréttmæt gagnrýni á faglega hæfni. Rafrænt einelti Þegar neikvæð skilaboð eru send rafrænt/á Netinu eða farsíminn notaður til að senda neikvæðar upplýsingar um einhvern. Þegar Facebook, spjallsíður eða aðrar rafrænar leiðir eru notaðir til að tala illa um eða níða skóinn af einhverjum einum einstaklingi. Birtingarmyndir eineltis Samantekt Kolbrúnar Baldursdóttur Hefði viljað sjá að skólar með Olweusaráætlunina væru að koma verulega betur út til að réttlæta kostnaðinn. Einelti minna ef skólabragur er góður Ný greining sýnir að einelti er marktækt minna í skólum sem vinna eftir Olweusaráætluninni gegn einelti en í skólum sem gera það ekki. En munurinn er lítill. Kolbrún Baldursdóttur sálfræðingur bendir á aðra möguleika sem ekki eru dýrir. Hún segir málið snúast um forgangsröðun og nýtingu peninganna. Jónas Haraldsson gluggaði í nýja skýrslu og kynnti sér skoðanir Kolbrúnar. Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur. Hún segir að hver og einn skólastjóri verði að meta stöðuna gagn- vart einelti, hvort sem skólinn styðst við Olweusaráætlunina eða ekki. Ný greining sýnir að 7. bekkur grunnskóla nýtur góðs af þátttöku í Olweusaráætluninni en ekki 8. og 9. bekkur. Ljósmynd Hari 12 fréttaskýring Helgin 25.-27. nóvember 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.