Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 20

Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 20
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi. Mitsubishi Pajero 4x4 árg. 2007, ekinn 147 þús. km. 2900cc, dísil, sjálfsk. Verð 5.190.000 kr. Kia Sorento 4x4 Eigum úrval notaðra Kia Sorento sportjeppa, dísil eða bensín. Nánar á askja.is Verð frá 2.880.000 kr. Nissan Patrol 4x4 Elegance útf./Leður árg. 2007, ekinn 80 þús. km. 3000cc, dísil, sjálfsk. Verð 4.590.000 kr. Hyundai Tuscon 4x4 árg. 2008, ekinn 93 þús. km. 2656cc, bensín, sjálfsk. Verð 2.390.000 kr. Mercedes-Benz E 240 árg. 2005, ekinn 64 þús. km. 2400cc, bensín, sjálfsk. Verð nú 3.990.000 kr. Nissan Note árg. 2006, ekinn 26 þús. km. 1600, bensín, sjálfsk. Verð 1.850.000 kr. Mercedes-Benz ML 500 árg. 2006, ekinn 130 þús. km. 5000cc, bensín, sjálfsk. Verð nú 4.990.000 kr. Mazda Tribute 4x4 Verð áður 5.690.000 kr. Verð áður 1.590.000 kr. árg. 2006, ekinn 67 þús. km. 3000cc, bensín, sjálfsk. Verð 1.990.000 kr. TILBOÐSBÍLL Verð áður 4.790.000 kr. 4MATIC/TILBOÐSBÍLL frábærri aðstoð, nema í opinberum veislum, þá var maturinn ekki á minni könnu. Þá var þörf fyrir okk- ur bæði frammi í sal til að stjórna þar. Það skiptir mjög miklu máli að allt gangi vel á þessu heimili.“ Sá sem heillaði mest var... Hvaða þjóðhöfðingja hafið þið hitt og þjónað á þessum árum? „Púff – þeir eru nú margir! For- setar Þýskalands, Eistlands,Tékk- lands, Lettlands, Svíakonungur, Indlandsforseti, Bill og Hillary Clin- ton, George Bush eldri – við getum bara ekki talið þetta upp!“ Einhver sem heillaði mest? „Jáhá, ég get nú alveg sagt þér það,“ segir Kristín brosandi. „Það var reyndar ekki þjóðhöfðingi heldur söngvarinn Harry Bela- fonte. Hann heillaði okkur öll upp úr skónum. Þegar hann gekk inn um dyrnar var eins og kveikt hefði verið á öllum ljósum. En allt þetta fólk sem kom á Bessastaði, hvort sem það voru forsetar, kóngar og, drottningar eða hvað, er bara ná- kvæmlega eins og við. Ein af þeim sem ég minnist með mikilli hlýju er fyrrum forsætisráðherrafrú Bret- lands, Cherry Blair, mjög hlý mann- eskja. Það er ekki til snobb í þeim því fólki.“ „Ég er svo mikill royalisti í mér,“ segir Jóhann, „að ég held óskaplega mikið upp á dönsku krónprins- hjónin, Mary og Friðrik. Þau eru falleg að utan sem innan. Ég hafði meira af þeim að segja en mörgum öðrum gestum og eru þau mér mjög minnisstæð.“ Þetta mátti til með að koma fram, vegna þess að Katrín Ósk og Mar- grét Hörn eru sestar hjá okkur og augun í Margréti glampa þegar talað er um dönsku krónprinshjón- in, og segir: „Veistu að hún var með svo rosa- lega gott ilmvatn og þegar þau voru farin heim til Danmerkur og pabbi var að skipta á rúmum og taka til í gestabústaðnum, þá stalst ég inn í herbergið þeirra, lagði höfuðið á koddann hennar Mary sem ilmaði af þessu góða ilmvatni og mér leið eins og prinsessu!“ Dæturnar einangraðar á Bessastöðum Yngri dæturnar voru þriggja og fimm ára þegar þær fluttu á Bessa- staði. Enn fá þær spurninguna sem ég spyr þær nú. Hvernig var að búa á Bessastöðum? „Það var var stundum eins og að vera í fangelsi, það var svo langt til vinanna,“ segir Margrét Hörn. „Við vorum mjög einangraðar.“ Katrín Ósk bætir við: „Mamma og pabbi voru að vinna mjög mikið og við vorum stundum einar heima. Við gátum ekkert farið og hitt vinkonur okkar á kvöldin eða skroppið út í sjoppu. En auðvitað var mikil upp- lifun að búa þarna, fara út í hólm- ann og sækja egg. Þetta er æðisleg- ur staður til að búa á á sumrin. Við þekkjum alls konar fuglategundir sem aðrir á okkar aldri þekkja ekki. Það sem var dýrmætast var þó að kynnast starfsfólkinu þarna, sem er yndislegt fólk og miklir vinir okkar.“ Kristín og Jóhann Gunnar fóru í nokkrar ferðir með forsetahjón- unum. Kristín fór með þeim þegar Albert Mónakóprins var krýndur árið 2004 og þá var Ólafur Ragnar æðstur gesta. „Mér leið eins og prinsessu,“ segir hún brosandi. „En það er hörkuvinna að vera aðstoðarmaður. Við fáum þykkar möppur afhentar við komu yfir allt sem við eigum að gera og það er ekki lítið. Við þurfum að vita nákvæmlega í hvaða bíl þau eiga að fara, klukkan hvað hann kemur að hótelinu, hvar í röðinni þau eiga að standa og fleira. Stundum höfðu þau klukkutíma milli þess að vera í „casual“ fatnaði yfir í að þurfa að skipta yfir í gala- dress og þá þurfa aðstoðarmenn- irnir að hafa allt tilbúið, ekki einn hlutur má fara úrskeiðis. Ég fylgdi þeim í afmæli Noregskonungs og Svíakonungs og það var mjög skemmtileg upplifun líka. Þessi ferðalög standa upp úr í þessari vinnu. Þetta var auðvitað ævintýri.“ „Kannski einfaldast að segja það þannig að í svona ferðum er gert ráð fyrir aðstoðarmönnum,“ segir Jóhann Gunnar. „Það er mikil vinna sem liggur á bak við þetta. Ég fór með þeim í opinbera heimsókn til Kína, í brúðkaup Viktoríu krón- prinsessu í fyrra og svo í sumar þegar Albert krónprins giftist.“ Afhverju bjargaðirðu ekki brúður- inni? Hún vildi greinilega ekkert giftast honum? „Ég held að fólk sé nú að lesa þetta í gulu pressunni, maður upp- lifði þetta allt öðruvísi í kirkjunni. Ég stóð við dansgólfið þegar þau byrjuðu að dansa brúðardansinn og sá ekki betur en þarna væri ham- ingjusamt fólk að stíga sinn fyrsta dans. Þetta brúðkaup var ólíkt Svíþjóðarbrúðkaupinu, þar sem Carola og Roxette sungu. Það var í rauninni absúrd að dansa við hlið konunga og drottninga þegar ég hugsa um þetta núna!“ segir hann skellihlæjandi. Brytinn fer til sjós ... En svo kom nýtt tækifæri upp í hendurnar á Jóhanni Gunnari. Hon- um bauðst brytastaða á varðskipinu Þór og enn og aftur ákvað hann að taka stökkið og prófa eitthvað nýtt. „Jói er sko sjóveikasti maður á Íslandi!“ segir Kristín. „Þegar við förum til Vestmannaeyja er honum orðið flökurt í Þrengslunum!“ „Amma mín kenndi mér að mað- ur lifir bara einu sinni og á að grípa Jóhann Gunnar og Kristín með dæturnar. Það var upplifun fyrir þær að búa á Bessastöðum en því fylgdi talsverð einandgun. Ljósmynd/Gunnar Vigfússon. – Lifið heil Fyrir þig í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 72 59 1 1/ 11 Omega3 DHA – góð fyrir augu, heila og andlega heilsu Omega3 DHA er ný vara frá Lýsi hf. sem inniheldur ríkulegt magn af lífsnauðsynlegu fitusýrunni DHA. 20 viðtal Helgin 25.-27. nóvember 2011
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.