Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 56

Fréttatíminn - 25.11.2011, Side 56
22 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011 Þ egar jólahátíðin gengur í garð þá fer rútínan og mataræðið úr skorðum; fólk fer seinna að sofa, vaknar seinna og morgunmaturinn samanstend- ur oft á tíðum af konfektmola, jólaöli, afgangi af hamborg- arhryggnum og brún- uðum kartöflum,“ segir Rakel Sif Sigurðar- dóttir næringar- og heilsuráðgjafi. Rakel Sif býr og starfar í Lúxemborg en margir þekkja hana í gegnum Facebook- síðuna Nær- ing og heilsa. Hún útbjó fyrir lesendur uppskrift að bragðgóðum og næringarríkum jólagraut sem gott er að byrja daginn á. „Það er ekkert launungarmál að jólin koma á hverju ári og því ætti að vera hægt að vera búinn að skipuleggja sig, halda sig við sína rútínu, leyfa sér konfekt- mola og jólaöl inni á milli án þess að þyngdaraukning upp á fimm kíló sé afleiðingin. Janúar er líka alveg helm- ingi leiðinlegri ef maður situr uppi með sárt ennið sökum aukakílóa, með skammdegið og í ofanálag að vinna úr kreditkorta skuldum og jólatimbur- mönnum. Lífið verður einfaldara ef maður getur stjórnað að minnsta kosti einum þessara þátta.“ Rakel Sif er mikið jóla- barn og finnst dásam- legt að eyða jólunum heima hjá foreldrum sínum að æskuheimili sínu þar sem jólahefðir ríkja. „Ég hverf aftur í tímann til barnæskunnar þegar jólatónlistin byrjar og mamma kveikir undir pottunum. Ég hef alltaf átt yndisleg jól heima hjá foreldrum mínum.“ En í ár eyðir Rakel Sif jól- unum í Lúx- em- borg þar sem hún hefur verið búsett síðastlið- inn sex ár. „Við hlökkum mikið til að byrja að skapa okkar eigin jól og jólahefðir með börn- unum okkar sem verða brátt tvö, en dóttir okkar fær lítið systkini í aðventugjöf í ár.“ „Ég hangi yfirleitt mikið í eldhúsinu yfir hátíðirnar þar sem mér finnst gaman að prófa og þróa nýjar uppskriftir, baka og hlusta á fallega jólatónlist. Svo er ekkert betra en að klæða sig vel upp, fara í góðan göngutúr í kuldanum með fjölskyldunni, draga dóttur okkar á snjóþotu ef veður leyfir og búa til snjókalla. Rölta um í bænum, upp- lifa jólaljósin og stemmninguna og fá sér ekta heitt súkkulaði inni á huggulegu kaffi- húsi þegar hrollurinn sækir að. Svo er það náttúrulega bara besta jólastemmningin að kyssa manninn sinn mikið, knúsa börnin sín og fjölskyldu og vera þakklátur fyrir allt það sem maður á. Ég er alltaf voðalega þakklát fyrir líf mitt og fjölskyldu og þann stað sem ég er á en svo hleypur einhver hiti í hjartað á manni yfir jólin og þá verður maður sér- staklega þakklátur.“  Jólagrauturinn Hangir í eldhúsinu yfir jólin Rakel Sif Sigurðardóttir útbjó jólagraut sem gott er að byrja daginn á í stað þess að narta í hamborgarhrygginn og konfektið frá deginum áður. Bakaður jólagrautur með eplum og pekanhnetum. Rakel Sif eyðir miklum tíma í eldhúsinu yfir jólahá- tíðina, þar sem hún þróar nýjar uppskriftir. Laugavegi 26 | s.512 1715 www.ntc.is | erum á Jólin eru yndisleg... DKNY | BY MALENE BIRGER | GERARD DAREL | BRUUNS BAZAAR | KRISTENSEN DU NORD | FRENCH CONNECTION | VENT COUVERT | UGG | FREE LANCE | STRATEGIA | BILLI BI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.