Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Síða 2

Fréttatíminn - 14.01.2011, Síða 2
Átján milljarðar á átján mánuðum Verðmæti smásölurisans Haga lækkaði um milljarð á mánuði frá miðju ári 2008 til loka árs 2009 ef mið er tekið af árs- reikningi móðurfélags þess, 1998 ehf. Félagið var stofnað um mitt ár 2008 þegar Fjárfestingafélagið Gaumur, í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, Eignarhaldsfélagið ISP, í eigu Ingibjargar S. Pálmadóttur, og Bague SA, í eigu Hreins Loftssonar, keypti tæpan 96% hlut í Högum út úr Baugi á 30 milljarða með lánsfé frá Kaupþingi. Í árslok 2008 var hluturinn metinn á 22 milljarða og samkvæmt ársreikningi 2009 er hann metinn á tólf milljarða. Arion banki tók félagið yfir í september 2009 en Hagar hafa að undanförnu verið í söluferli innan bankans. -óhþ 18 mIlljArðA læKKun á VIrðI HAGA 1.6 2008 til 31.12 2009 1998 ehf. Ú tgáfufélagið Birt-íngur, sem gefur meðal annars út Séð og heyrt, Nýtt líf, Gest- gjafann og Hús og híbýli, hefur ákveðið að herða reglur varðandi notkun annarra miðla á fréttum og greinum úr blöðum félags- ins. Einhverjir miðlar, þar á meðal DV, hafa fengið bréf þess efnis frá Birtíngi. Í bréfinu er bent á að allt efni sem birtist í úgáfuritum félagsins sé eign þess og óheimilt sé að birta efni án skriflegrar heimildar út- gefanda. Slík heimild verði veitt gegn greiðslu sam- kvæmt gjaldskrá. Miðað við þá gjaldskrá sem Frétta- tíminn hefur undir höndum mun það kosta fréttamiðla í það minnsta 75 þúsund krónur að vitna í frétt úr Séð og heyrt eða völvu Vikunnar. Ef reglur Birtíngs eru ekki virtar áskilur fé- lagið sér rétt til að krefjast skaða- og miskabóta. Sverrir Arngríms- son, framkvæmdastjóri Birtíngs, segir í samtali við Fréttatímann að það sé sjálfsögð kurteisi að fá leyfi fyrir birtingu efnis úr þeirra blöðum. „Þetta er orðið alþjóðlegt vandamál. Vefmiðlar leyfa sér að nota annarra manna efni frítt. Það er hreint og beint sjálf- sagt að menn verndi sitt efni,“ segir Sverrir. Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir að hann skilji ekki hvert Birtíngur sé að fara með þessum aðgerðum. „Vilja þeir ekki að það sé vitnað í fréttirnar þeirra og einhver sjái þær? Þeir um það,“ segir Reynir. oskar@frettatiminn.is V ið höfum tryggt okkur útgáfurétt-inn að þessari bók og erum afar ánægð með það,“ segir Pétur Már Ólafsson hjá Veröld um bókina Wikileaks – Stríðið gegn leyndarhyggju eftir blaðamenn á breska blaðinu Guardian sem kemur út í febrúar í níu löndum. „Við fréttum af þessu rétt fyrir jól og síðan þá höfum við verið í samningavið- ræðum um útgáfuréttinn,“ segir Pétur Már en stefnt er að því að hún komi út í kilju á sama tíma í öllum löndunum níu um miðjan febrúar. Pétur Már segir bókina stórmerkilega enda sé hún unnin af bestu blaðamönnum stórblaðsins Guardian sem hafa unnið náið með Julian Assange við birtingu gagna. „Þetta er unnið með samþykki Assange og ég held að Kristinn Hrafnsson hafi verið tengiliður Wikileaks við blaðamennina,“ segir Pétur Már. Það var David Leigh, ritstjóri rannsókn- arblaðamannesku á Guardian, sem stýrði vinnunni við bókina en hann hefur verið í nánustum samskiptum við Assange og Wikileaks. Stutt er þó síðan snurða hljóp á þráðinn í samskiptum Leighs og Assanges þar sem Assange var ósáttur við umfjöllun Guardian um Svíþjóðardvöl hans þar sem hans bíður ákæra fyrir tvö kynferðisbrot. Assange ákvað í kjölfarið að vinna frekar með The Sunday Times en Guardian. „Saga Wikileaks hefur aldrei verið sögð en hér gefst lesendum einstakt tækifæri til að fylgjast með þróun þessa fyrirbær- is. Þetta er saga um opinberun á leyndar- skjölum, njósnir og ásakanir um kynferðis- brot eftir blaðamenn á Guardian sem unnið hafa með Assange og fylgst náið með hon- um sinna köllun sinni. Bókin færir lesand- ann eins nærri hrollköldum sannleikanum og hægt er að komast,“ segir Leigh í til- kynningu. Höfundarnir hafa haft haft ótakmark- aðan aðgang að öllum helstu persónum og leikendum í þessu sögulega máli, allt frá diplómötum og stjórnmálamönnum til Julians Assange sjálfs. Sögusviðið er vítt; allt frá Ástralíu til Noregs og frá Írak til Íslands, með viðkomu í Bretlandi, Belgíu og víðar og minnir bókin á löngum köflum einna helst á spennusögu. oskar@frettatiminn.is  höfundarréttur Birtíngur fer í hart Birtíngur bannar notkun á efni í leyfisleysi Krefst 75 þúsund króna fyrir hverja frétt sem tekin er úr blöðum félagsins. Það mun koma við pyngju fréttamiðla að birta fréttir upp úr Séð og heyrt. Lekið í 9 7 7 1 0 2 5 9 5 6 0 0 9 Gerir lífið skemmtilegra ! ERFIÐLEIKAR HJÁ JÓNI GNAR R! GEIR H . HAARDE SÝKNAÐUR! TOBBA MARIN ÓS SKRIFAR LEIKR IT! BÁLSKOTNIR BLAÐAMENN! Kristinn Hrafnsson og Margrét Erla Maack: Völvuspá Nr. 1 – 2011 Verð: 795 kr. 6. jan. 2011 Ástin hjá fræga fólkinu: Viltu byr ja með mér ? Himna- sending! Óperusöngkonan Signý Sæmundsdóttir: ALLT UM PÖR ÁRSINS! GÍSLI GÍSLA Í RÚSSNESKU GLÆSIDRESSI! ÁSDÍS RÁN – BOMBA Í BLEIKU! Glamúr! Elegant áramót: UPPGJÖR Í HOLLYWOOD! FÉKK NÝRA FRÁ MÖMMU! Erlendur annáll: Það er hreint og beint sjálfsagt að menn verndi sitt efni.” Bókin færir lesandann eins nærri hrollköldum sannleikan- um og hægt er að komast.  BókaÚtgáfa allt um assange og Wikileaks Bók um Assange og Wikileaks kemur út á íslensku í febrúar Bókaforlagið Veröld hefur tryggt sér útgáfuréttinn að bókinni Wikileaks – Stríðið gegn leyndarhyggju eftir blaðamenn breska blaðsins Guardian. Bókin kemur út um miðjan febrúar í átta löndum auk Bretlands. Hrollkaldur sannleikur um julian Assange og Wikileaks bíður lesenda í febrúar. Nordic Photos/Getty Images Þriðjudagsmorgun einn í nóvember 2010 sást sérkenni- legur hópur fólks troða sér inn í lúna bifreið í Padd- ington-hverfinu í London: hörkulegur Íslendingur, nördaleg ungmenni og óvenju hávaxin eldri kona í kápu og með slæðu. Konan var sjálfur julian Assange í dulargervi. Hópurinn var á leið á leyni- legan felustað, með slökkt á öllum farsímum af ótta við að starfsmenn varnarmálaráðu- neytis Bandaríkjanna fylgdust með þeim. Förinni var heitið á sveitasetur fyrrum foringja í breska hernum sem skotið hafði skjólshúsi yfir það sem kallað var mesti leki sögunnar. Brot úr bókinni Wikileaks – Stríðið gegn leyndarhyggju Assange dulbjó sig sem kona 58 Íslendingar á hverjum leik á Old Trafford ásókn Íslendinga á leiki í enska boltanum virðist hvergi nærri á enda þrátt fyrir svartnætti í íslensku samfélagi. lúðvík Arnarson, yfirmaður íþrótta- ferða hjá Vita, segir í samtali við Fréttatímann að ferðaskrif- stofan eigi 58 ársmiða á heimaleiki manchester united á Old Trafford og þeir hafi allir verið notaðir á alla heimaleiki í vetur. lúðvík segir að ferðirnar séu að breytast úr hreinrækt- uðum karlaferðum í fjölskyldu- ferðir, sem sé að sjálfsögðu breyting til batnaðar. „Fólk er farið að hugsa öðruvísi og nýta ferðirnar sem verslunar- og afslöppunarferðir,“ segir lúðvík. -óhþ Íbúðalánasjóður á 0,82% íbúða „Þrátt fyrir efnahagshrun hefur Íbúðalánasjóður ein- ungis eignast 0,82% íbúða á Íslandi. Íbúðalánasjóður á nú 1.070 íbúðir sem sjóðurinn hefur leyst til sín. Íbúðir á Íslandi eru alls 130.074. Ótrúlega lágt hlutfall miðað við erfitt efnahagsástand,“ segir Hallur Magnússon á bloggsíðu sinni og gagnrýnir Eyjuna fyrir að láta eins og sjóðurinn sé að eignast hálft landið og standi illa. Hallur segir að reynt sé að fá almenning til að halda að Íbúðalánasjóður sé að fara á hvolf vegna þessa. Því fari fjarri. Umtalsverður hluti íbúða sem sjóðurinn hafi leyst til sín sé frá leigufélögum. Stór hluti þeirra sé í leigu. Því má ekki gleyma, segir Hallur, að Íbúðalána- sjóður var eina stóra fjármálastofnunin sem stóð af sér fjármálahrunið. -jh Meiri kortavelta sýnir aukna einkaneyslu Einkaneysla jókst undir lok síðasta árs, samkvæmt kortaveltutölum Seðlabankans. Kreditkortavelta í desember nam 26,5 milljörðum króna sem var 4% meiri velta en í mánuðinum á undan. Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengis- vísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 12,7% milli ára. Þetta er mun meiri raunaukning en sést hefur á milli ára síðan í janúar 2008, en kortavelta dróst mikið saman í kjölfar hrunsins. Aukningin er, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka, fyrst og fremst vegna mikillar raunaukningar í erlendri kortaveltu á milli ára, en erlend kortavelta jókst um ríflega 47% að raungildi og á sama tíma jókst innlend kreditkortavelta um 7,4%. Þróun debetkortaveltu bendir í sömu átt sem og tölur rannsóknarseturs verslunarinnar um veltu í smásöluverslun í desember. -jh 2 fréttir Helgin 14.-16. janúar 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.