Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 14.01.2011, Blaðsíða 4
Ú tgerðardrottningin Guðbjörg Matthíasdóttir er meðal ríkustu Íslendinga. Ársreikningar félaga í hennar eigu árið 2009 bera það glögglega með sér. Guðbjörg, sem er ekkja Sigurð- ar „ríka“ Einarssonar, greiddi sér 2,8 milljarða í arð út úr félaginu Kristni ehf. á árinu en viðskipti þess félags með bréf í Glitni rétt fyrir hrun eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Hlynur A, félag í eigu Guðbjargar, er stærsti hluthafinn í Þórsmörk sem er eig- andi Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins. Guðbjörg lagði 200 milljónir í það félag á árinu 2009. Nokkur styr hefur staðið um Morgunblaðið eftir að Davíð Odds- son var ráðinn ritstjóri þess í september 2009. Mikið tap hefur verið á útgáfunni á undanförnum árum og ljóst er að það verður ekki ódýrt fyrir Guðbjörgu og aðra eigendur Árvakurs að halda útgáfunni gangandi. Guðbjörg á mörg félög sem eru gríðar- lega sterk. Móðurfélagið Fram ehf. er til að mynda með rétt rúma þrettán milljarða í eiginfé. Helstu eignir þess eru áðurnefnt Kristinn ehf. og ÍV Fjárfestingar. Það fyrr- nefnda heldur utan um fjárfestingarhluta veldis Guðbjargar. Þar eru eignir upp á þrettán milljarða í formi ríkistryggðra markaðsbréfa og erlendra hlutabréfa. Áhyggjuefnið í því félagi gæti þó verið að það þurfti að standa skil á greiðslu 7,6 milljarða láns á síðasta ári. Miðað við stöðu félagsins hefur það varla verið mikið vandamál. ÍV Fjárfestingar heldur utan um rétt tæplega 90% eignarhlut Guð- bjargar í útgerðarfyrirtækinu Ísfélagi Vestmannaeyja. Ekki verður annað sagt en að það standi vel. Eignarhlutur þess í Ísfélaginu er metinn á rúma sjö milljarða en skuldirnar eru engar. oskar@frettatiminn.is Guðbjörg á mörg félög sem eru gríð- arlega sterk. Móðurfélagið Fram ehf. er til að mynda með rétt rúma þrettán milljarða í eiginfé.  ársreikningar arðgreiðslur Útgerðardrottning greiddi sér 2,8 milljarða í arð Guðbjörg Matthíasdóttir, stærsti eigandi Árvakurs, á milljarða eiginfjár í móðurfélaginu Fram ehf. Guðbjörg Matthíasdóttir kom vel út úr keppunni. Guðbjörg Matthías- dóttir græddi milljarða þegar félagið Kjarr- hólmi keypti hlut hennar í Trygginga- miðstöðinni haustið 2007. Þessi kaup voru þáttur í því að FL Group eignaðist tryggingafélagið að fullu stuttu seinna. Sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort þessi viðskipti hafi verið lögleg. Fari svo að niðurstaðan verði að viðskiptin hafi verið ólögleg þarf Guðbjörg væntanlega að greiða kaupverðið til baka og fá þá hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni aftur. Slík niðurstaða væri bagaleg fyrir Guðbjörgu enda hefur verðmæti fyrirtækis- ins hrunið frá því að hún seldi sinn hlut. Þarf hún að borga TM-peninga til baka? Sérstakur sak- sóknari rannsakar kaupin á bréfunum í Tryggingamið- stöðinni. Ljósmynd Hari. Er þinn auður í góðum höndum? Byrjaðu árið með Auði • Séreignarsparnaður • Sparnaður • Eignastýring Borgartúni 29 S. 585 6500 www.audur.is Óháð staða skilar árangri Aratúnsfrú höfðar mál gegn blaðamanni Margrét Lilja Guðmundsdóttir hefur stefnt Jóni Bjarka Magnússyni, blaðamanni á DV, fyrir meiðyrði. Málið varðar umfjöllun DV um nágrannadeilu í Aratúni á síðasta ári. Margrét Lilja og eiginmaður hennar áttu þá í harðvít- ugum deilum við nágrannahjón sín. DV fjallaði um málið af miklum ákafa og birti meðal annars frétt þar sem rifjuð var upp fortíð Margrétar og eiginmanns hennar. Jón Bjarki segir í samtali við Fréttatímann að hann hafi ekki áhyggjur af málinu. Ekki þannig,“ segir hann. -óhþ Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, hefur beðið embætti ríkissaksóknara að hefja rannsókn á ásökunum lögmannsins Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar sem Rannsókn vegna gagnaleyndar Áfrýja dómi í smyglmáli Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjaness í máli þar sem tveir menn voru sýknaðir af ákæru um innflutning á amfetamíni, skipulagningu og dreifingu. Í ljós kom að efnið var ekki amfetamín heldur afleiða af því og ekki á bannlista, auk þess sem ekki tókst að færa sönnur á aðild annars mannsins að málinu. Saksóknari áfrýjaði sýknudómi þess sem gerði tilraun til að smygla efninu en lögmaður hans er Sveinn Andri Sveinsson. birtust í Fréttatímanum í síðasta mánuði. Þar sakaði Vilhjálmur Hans embættið um að hafa leynt niðurstöðum efnarann- sóknar á meintu amfetamíni sem smyglað var til landsins með bréfi 20. desember. Í ljós kom að efnið var ekki á bannlista og telur Vilhjálmur að embættið hafi leynt niðurstöðunum í rúman mánuð með þeim afleiðingum að skjólstæðingur hans og annar sakborningur, sem voru síðan báðir sýknaðir, sátu lengur í gæsluvarðhaldi en eðlilegt sé. - óhþ veður Föstudagur laugardagur sunnudagur VeðRið LAGAST Mikið uM MeST ALLT LAnd, LæGiR SMáMSAMAn oG HLýnAR upp fyRiR fRoSTMARk uM LAndið SunnAnVeRT. VíðAST úRkoMuLíTið. HöfuðBoRGARSVæðið: SLyDDuHRAGGL- AnDi FRAMAn AF DEGi oG HæGT HLýnAnDi. SkApLeGASTA VeðuR uM MeST ALLT LAnd, Þó VinduR oG éL á VeSTfJöRðuM. RiGninG SuðAuSTAnLAndS oG HLákA VíðAST á LáGLendi. HöfuðBoRGARSVæðið: MiLD GoLA oG úRKoMuLAuST Að MESTu. SVipAð áfRAM oG MeinLeySiSVeðuR VíðAST HVAR, en SnýST í n-áTT Með VeRSnAndi VeðRi noRðAnTiL uM kVöLdið. HöfuðBoRGARSVæðið: SéSt lÍklega til SóLAR oG Bæði FRoST- oG úRKoMuLAuST. Stund milli stríða Eftir storminn sunnanlands og alla snjókom- una fyrir norðan og vestan, ætlar veðrið að róast mikið um helgina. Á laugardag og sunnudag er meira að segja að sjá sem það ætli að verða væg hláka víðast hvar á láglendi. Það er helst á Vestfjörðum þar sem Kári eða vindurinn sleppir ekki alveg klónni. Þar verður nA-átt áfram, ekki þó alveg jafn hvöss en éljagangur og skafrenningur. Eftir helgina er margt sem bendir til þess að við taki n-átt með kólnadi veðri.... það er jú hávetur.... 2 1 3 0 2 4 0 1 2 5 3 1 2 3 3 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Klæddu þig vel www.66north.is Magni barna parka 4 fréttir Helgin 14.-16. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.