Fréttatíminn - 14.01.2011, Side 22
M eðgöngusykursýki, of hár blóðþrýst-ingur og blóðtappi eru tíðari meðal of þungra kvenna á meðgöngu en þeirra
grennri og fæðingin sjálf gengur oft brösug-
lega. Þær eru einnig líklegri til að þurfa að fara
í bráðakeisaraskurð í fæðingunni. Þessar stað-
reyndir eru feimnismál sem lítið hefur verið rætt
um. „Auðvitað er málið viðkvæmt, rétt eins og
þegar tekið var á reykingum á meðgöngu sem
skaða fóstrið. Reykingakonur upplifðu á þeim
tíma reiði og fundu til sektarkenndar. En áhætta
ofþyngdar er staðreynd og því fyrr sem konur
taka á vandanum því betra,“ segja hjúkrunar-
fræðingarnir Guðrún Gunnlaugsdóttir og Elín
Arna Gunnarsdóttir. Þær útskrifuðust sem ljós-
mæður síðasta vor og hafa sagt offitunni stríð
á hendur með tíu vikna námskeiði sem kallast
Heilbrigður lífsstíll á meðgöngu. Það er haldið
í heilsumiðstöðinni 9 mánuðir fyrir konur í of-
þyngd og hefst um miðjan febrúarmánuð.
Brjóstamjólkin lengur að myndast
„Þessir áhættuþættir á meðgöngu of þungra
kvenna sem nefndir eru hér að ofan eru ekki þeir
einu. Þær eiga einnig frekar á hættu að fá sýk-
ingu því oftar þarf að gera innri skoðanir vegna
þess að líkurnar aukast á því að fæðingin dragist
á langinn,“ segir Guðrún. „Þá er mjög mikilvægt
að konur viti að séu þær of þungar fer brjósta-
gjöfin seinna af stað. Þær vita það oft ekki og gefa
því brjóstagjöfinni ekki nægan séns og halda að
mjólkin komi ekki fram. Þær þyrftu því oft meiri
stuðning fyrir brjóstagjöfina og þá vitneskju að
barnið þarf þá einhverja ábót á meðan beðið er,“
segir Guðrún.
„Já, svo má ekki gleyma því að konur í ofþyngd
eru einnig almennt með börn sín styttri tíma á
brjósti, þær byrja seinna og hætta fyrr. Þær eru
feimnari gagnvart brjóstagjöfinni og fela hana
frekar þótt það sé að sjálfsögðu ekki algilt,“ segir
hún.
Í gögnum Lýðheilsustöðvar má sjá að árið 2003
voru um tólf prósent kvenna í mæðravernd með
BMI-stuðul yfir 30, sem þýðir að 160 cm há kona
sem er tæp 77 kíló telst í flokki of feitra. Um fjög-
ur prósent þeirra voru yfir 35 eða meira sem telst
til sjúklegrar offitu. Sextíu prósent kvenna voru
með BMI-stuðul undir 25, en konur með 18,5 til
25 í BMI teljast í kjörþyngd.
Þær Elín og Guðrún segja að í starfi sínu hafi
þær séð hve offita hefti konur í fæðingu og hafi
mikil áhrif á meðgönguna. „Okkur finnst kon-
urnar ekki fá þjónustu sem skyldi,“ segir Guðrún
og bendir á að samkvæmt klínískum leiðbein-
ingum landlæknis eigi of feitar konur að vera í
áhættumæðravernd og fara oftar í skoðun, en
konur komi almennt 8 til 10 sinnum í mæðravernd
og fái stuttan tíma með ljósmóður. „Í slíkum
skoðunum er lítið hægt að gera annað en að mæla
blóðþrýsting, skoða stærð legsins og athuga
þvagið. Það gefst því lítill tími í tveggja manna tal
um líðan og mataræði.“ Þær taki því á slíku með
næringarþerapista á námskeiðnu. „Auðvitað er
ekki hægt að alhæfa um þungar konur. Þung
kona er ekki endilega í lélegu formi og getur verið
mjög hraust. Þess vegna er málið viðkvæmt.“
Erfitt að hlusta fóstrin
En vandræðin hefjast ekki þegar þungar kon-
ur verða óléttar því þeim gengur einnig verr að
verða ófrískar. Þeim er hættara við fósturláti
snemma á meðgöngunni og erfiðara er að greina
fósturgalla á meðgöngunni. „Það er einfaldlega
erfiðara að sónarskoða í gegnum mikla kviðfitu.
Vandinn er því ekki aðeins kvennanna heldur
er einnig erfitt fyrir ljósmæður að vinna með
of þungum konum,“ segja þær Elín og Guðrún.
Margar konur eigi erfitt með að kyngja þessari
staðreynd og vilji vita sem minnst af áhættunni
sem þær eru í vegna offitunnar.
„Í fæðingunni er líka erfitt að hlusta eftir
fósturhjartslættinum, þær eiga erfiðara með
að hreyfa sig og legið dregst verr saman. Eftir
fæðinguna eru einnig meiri líkur á fylgikvillum
því meiri hætta er á að þær fari í keisaraskurð
séu þær of feitar og því hætta á að það blæði eftir
fæðingu,“ segir Elín Arna. „Ef kona er of þung
er það hagur hennar að þyngjast sem minnst á
meðgöngu. Hún þarf í rauninni ekki að þyngjast,
borði hún næringarríka fæðu. Hún getur sjálf
verið að léttast án þess að barninu stafi hætta af
því. Barnið fær samt sem áður betri næringu en
áður en tekið var á lífsstíl móðurinnar.“
Guðrún grípur orðið og bendir á að offita eigi
oft sínar sálrænu orsakir sem kafa verði í og það
geri þær með sálfræðingi á námskeiðinu. „Við
vitum líka að konur sem eru í ofþyngd og verða
ófrískar eiga það til að leyfa sér að borða meira
því þær eru hvort eð er að fitna. Þær hugsa sem
svo að tíu kíló til eða frá skipti litlu og að þær
taki á því eftir fæðinguna. En þær sem passa
upp á mataræðið upplifa mun ánægjulegri með-
göngu. Þeim líður betur og eru fljótari að jafna
sig eftir fæðingu,“ segir Guðrún og bendir á að
ófrískar konur séu oft mjög móttækilegar fyrir
því að breyta um takt.
„Þær vita til dæmis mikið um hvað má og
hvað ekki. Þær vita að þær mega ekki borða
hráan fisk og velta því fyrir sér hvort þær megi
borða harðfisk. Núna um jólin borðuðu þær
hvorki reyktan né grafinn lax og veltu því fyrir
sér hvort eggjarauðan í kökukreminu, svo og
rauðvínssósan með jólasteikinni, gætu valdið
skaða,“ segir Guðrún. „Að sama skapi var sykur-
inn hugsanlega skammt undan og þær gripu í
konfekt og gos – jafnvel í kílóa- og lítravís. Sykri
fylgir hins vegar engin næring fyrir barnið.“
Elín bendir því á að það vanti meiri fræðslu. „Við
líkjum stundum fæðingu við maraþonhlaup.
Passa þarf upp á að konurnar hafi næga orku og
borði svo að þær verði ekki orkulausar í miðri
fæðingu, en kona sem er í lélegu formi og borðar
næringarlausan mat á ekki svo auðvelt með að
fara í þetta maraþon,“ segir hún og bætir við að
vel sé hægt að taka á ofþyngdinni eftir að konur
verði ófrískar.
„Það er að sjálfsögðu æskilegast að kona komi
sér sem næst kjörþyngd áður en meðgangan
hefst. Næsti kostur er að hún fái aðstoð mjög
snemma á meðgöngunni og sé hvött áfram. Það
ætlum við að gera og hjálpa þeim sem koma að
setja sér heilsumarkmið, velja holla fæðu, ná
tökum á streitu og slökun og að setja sjálfa sig í
fyrsta sæti.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Taka á vanda of þungra þungaðra kvenna
Íslenskar konur, eins og þjóðin öll, eru að þyngjast. Nú er svo komið að nær önnur hver kona er yfir kjörþyngd. Við meðgöngu aukast áhættuþættirnir margfalt og of
þungar konur eiga frekar á hættu að fá blóðtappa, missa fóstur eða fara í bráðakeisaraskurð svo dæmi séu tekin. Þær eru lengur að fæða og erfiðara er að fylgjast
með börnunum í móðurkviði. Ljósmæðurnar Guðrún Gunnlaugsdóttir og Elín Arna Gunnarsdóttir aðstoða of þungar konur við að ná tökum á mataræðinu og bæta líðan
sína á meðgöngu.
Matseðill
Skynsamleg næring í einn dag*
Eftir næringarþerapistann Fríðu
Nicholls Hauksdóttur
MorgunMatur: Hafragraut-
ur með kanil, fræjum, hnetum,
þurrkuðum ávöxtum og hunangi.
Morgunhressing: Orkubiti
eða ávöxtur.
hádegisMatur: Ferskt salat
með hnetum, fræjum, ólívum, eggi
og balsamik- og ólívuolíudress-
ingu.
eftirMiðdagshressing:
Heimatilbúinn banana- eða berja-
hristingur með avókadó, dálítið
af vatni. Ef viðkomandi getur ekki
útbúið sér heimatilbúinn hristing
má notast við tilbúinn, t.d. Froosh.
Hnetur og fræ. Útbúa má hristing-
inn að morgni eða deginum áður
og geyma á flösku þar til síðdegis.
KvöldMatur: Kjúklinga-
bringur steiktar á pönnu. Settar
í eldfast mót ásamt sætum kart-
öflum og grænmeti eftir smekk,
t.d. papriku, gulrótum, sveppum
og engiferi. Kókósmjólk hellt yfir.
Bakað í ofni vð 200°C í 40 mín.
Gott að bera fram með hýðishrís-
grjónum.
snarl á Kvöldin: Hrein
jógúrt með t.d, teskeið af hunangi
og niðurskornu epli.
*AðeinS til Að gefA hug-
myndir.
Elín Arna Gunnarsdóttir og Guðrún
Guðlaugsdóttir ljósmæður hjálpa,
ásamt sálfræðingi og nær-
ingarþerapista, konum sem glíma
við ofþyngd í gegnum meðgöngu.
Ljósmynd/Hari
Of þungar konur:
eiga frekar á
hættu að fá fæð-
ingarþunglyndi
ættu ekki að
þyngjast um
meira en sex kíló
á meðgöngu
þurfa þó að huga
að hollri næringu
þurfa að sjá til-
gang í að hreyfa
sig, t.d. ganga í 20
mínútur á dag
22 úttekt Helgin 14.-16. janúar 2011