Fréttatíminn - 14.01.2011, Side 33
andlegur. Ég nenni ekki að lesa leik-
fimibækur! Ég vil lesa um eitthvað sem
gerist í höfðinu eða hjartanu.“
Þótt þú lesir ekki leikfimibækur hugs-
arðu vel um heilsuna, samanber það
að þú drekkur ekki áfengi og stundar
sjósund.
„Já, ég drekk ekki og reyki ekki.
Ég hreyfi mig reglulega og hjólaði til
dæmis 30 km í dag í frostinu. Ég hef
mikla hreyfiþörf og myndi springa ef ég
hætti að hreyfa mig.“
Af hverju hættirðu að drekka?
„Mér fannst það bara ekkert
skemmtilegt. Og ef ég er að gera eitt-
hvað sem er ekki skemmtilegt þá hætti
ég því. Ef mér finnst einhver bók ekki
skemmtileg þá hætti ég að lesa hana.
Þannig vil ég lifa lífinu.“
Hvað gefur lífi þínu tilgang?
„Ég er rithöfundur númer eitt, tvö og
þrjú. Ef ég væri ekki að skrifa væri ég
ekki neitt. Þótt ég eigi börn og sé mann-
eskja þá er það að vera rithöfundur aðal-
málið fyrir mér. Það er tilgangurinn.“
Er ekkert pláss fyrir einkalíf?
„Það er allt í öðru sæti þessa dagana.
Einkalífið er ekkert stórkostlegt. Það er
bara ég.“
Engin rannsóknarvinna og gagnaöflun
í gangi?
„Nei, mínar rannsóknir snúast um
annað. Ég get ekki sagt það. Vinnan er
númer eitt.“
En þú varst í sambandi og átt tvö
börn. Breytti það þér sem rithöfundi að
verða faðir?
„Já, ekki spurning. Ég get ekki hugs-
að mér lífið án barnanna. Það er svo
margt sem breytist þegar maður eign-
ast börn. Maður þroskast gífurlega og
sér alla hluti í nýju ljósi. Ég fór að nýta
tímann miklu betur, hætti að slæpast á
kaffihúsum og sólunda tímanum. Núna
sinni ég börnunum þegar ég er með þau
og vinn þess á milli. Blanda þessu ekk-
ert saman. Ég er pabbakarl og sakna
barnanna mikið þegar þau eru ekki hjá
mér. Þetta er litla fjölskyldan mín – og
það er ekkert lítið. Það kemur ekkert í
staðinn fyrir þau.“
Líður vel einum
Þú varst nefndur sem einn af heitustu
piparsveinum landsins í Vikunni á dög-
unum. Hvernig líður þér með slíka titla?
„Æ, mér var bara strítt með því.
Það kitlaði hégómann og egóið. En
það breytti lífi mínu ekki neitt! Ég
fékk kannski smá „add“ á facebook en
ekkert mikið meira en það. Þetta er
tvíeggjað sverð. Annars vegar langar
mig til að fólk lesi bækurnar mínar og
kaupi þær. Ná árangri. Hins vegar er
ég ekkert alltaf til í að vera þekktur.
Mér finnst það eiginlega meiri galli en
kostur. Ég vil bara fá að vera ég, án við-
hengis eða vinkils. Það er ekki auðvelt
að kynnast fólki þegar það hefur fyrir
fram mótaðar hugmyndir um mann. Þá
get ég ekki hitt það á jafnræðisgrund-
velli. Það er kannski búið að gúgla mig,
lesa bækurnar mínar eða viðtöl við mig.
Mér finnst þetta ekkert skemmtilegt.
Stundum vil ég bara fá að vera maður
sem er ófullkominn, gallaður og rugl-
aður. Ég er ekkert með allt á hreinu þótt
fólk viti hvað ég heiti.“
Að hverju ertu að leita í fari kvenna?
Svona ef einhver efnileg skyldi vera að
lesa ...
„Nú ertu komin út á hálan ís! Það
verður að vera einhver innri ró og jafn-
vægi. Ekki glamúr eða hraði. Ekkert
svoleiðis. Eitthvað rólegt, gott og heim-
ilislegt. Það er það sem ég þarf. Allir
eru að leita að sálufélaga; einhverjum
sem hefur svipaðan tónlistar-, bíó- og
bókmenntasmekk og svipaðan húmor.
En svo kynnist maður einhverjum sem
er gjörólíkur og það er líka frábært.
Af því að þá fær maður að kynnast ein-
hverju nýju og sjá hlutina í nýju ljósi.
Ég veit betur hverju ég er ekki að
leita að. Ég er til dæmis með fordóma
gagnvart frægu fólki. Ég þoli ekki
„celebrity“-pör. Mér finnst skelfileg til-
hugsun að vera í „celebrity“-sambandi.
Mér leiðist athygli á einkalíf. Ég vil ekki
vera á rauða dreglinum í kokteilboðum
eða í áramótapartíum á Austri; þoli ekki
þetta yfirborðskennda Séð og heyrt-líf.
Mér finnst gaman að fara í göngutúra,
í sund, að elda góðan mat og halda
lítil boð. Ég held að ég sé bara að leita
að einhverju kósí. Mér líður mjög vel
einum en langar ekkert að vera alltaf
einn. Það er ekkert að því að hitta fólk í
kaffi og svona. Ég er félagslyndur þótt
ég sé einfari.“
Þú ert þá fullur af andstæðum?
„Já, ég er alltaf bæði. Félagslyndi ein-
farinn og drungalegi sprelligosinn.“
Rúmenski þjóðlagadiskurinn hefur
runnið sitt skeið á enda. Stefán Máni
grípur umslagið utan af diskinum.
„Þetta er ekta ég. Hann syngur „rum-
anian blues from the suburbs with a
sweet, subtle voice, offers consolation
for the lonely and heals the wounds of
the deserted ...“ Ég hrífst af öllu sem er
dramatískt. Það verður að vera drama.“
Stundum vil
ég bara fá að
vera maður
sem er ófull-
kominn,
gallaður og
ruglaður.
Ég er ekkert
með allt á
hreinu þótt
fólk viti hvað
ég heiti.
Stefán
Máni um ...
FYRIRMYNDIR
„Uppáhaldsfyrirmyndin mín
hefur alltaf verið Jesús. En það
er náttúrlega hræðilegt að segja
það. Ég lít á hann sem uppreisnar-
mann. Ég hrífst af mönnum sem
stíga fram og leggja lífið að veði
við að breyta heiminum til hins
betra. Þora að leggja allt undir,
hafa eitthvað að segja – og segja
það.“
HRYÐJUVERK
„Mig langaði til að verða
hryðjuverkamaður þegar ég yrði
stór. Ég sá fyrir mér að ég gæti
orðið „grænn“ hryðjuverkamaður
og barist fyrir dýravernd og
svoleiðis. En þessi draumur varð
ekki að veruleika. Ég er búinn að
leggja hryðjuverkaskóna á hilluna.
Kannski getur maður snúið sér að
þessu aftur. Það er ennþá markað-
ur fyrir góða hryðjuverkamenn.“
TÓNLIST
„Ég hef mjög breiðan tónlistar-
smekk. Ég hlusta á þjóðlagatón-
list, klassíska tónlist, djass, blús,
rokk og þungarokk.“
TRÚ
„Ég er trúaður, kristinn Vestur-
landabúi. Ég hef endalausan
áhuga á heimspekilegu hliðinni á
trúmálum: af hverju við trúum og
trúum ekki. Þessum stóru tilvistar-
spurningum. Ég velti þeim mikið
fyrir mér í bókunum mínum.“
EFANN
„Efinn er uppáhaldstilfinningin
mín. Efinn er stórkostlegur. Hann
hjálpar manni að halda áfram að
hugsa og endurskapa. Uppáhalds-
setningin mín í þessari deildinni
er: Ef þú efast, efastu þá líka
um efann. Ég vil ekki komast að
niðurstöðu, heldur halda áfram að
hugsa og efast.“
viðtal 33 Helgin 14.-16. janúar 2011