Fréttatíminn - 14.01.2011, Side 63
Sköllótt
fegurðar-
drottning
Á morgun, laugardag-
inn 15. janúar, verður
fegursta kona Banda-
ríkjanna krýnd. Þetta er
ein stærsta fegurðar-
samkeppni heims og
er það mikill heiður
að hreppa titilinn
Ungfrú Ameríka. Kepp-
endurnir eru 53 talsins
en Ungfrú Delaware
hefur stolið senunni
og verið hvað mest
í fjölmiðlum. Kayla
Martell, sem kemur
frá Milford, Delaware,
er 22 ára. Hún hefur
einkennilegt útlit og
þjáist af ættarfylgju-
skalla. Hármissinn
segir hún hafa verið
erfiðan á sínum tíma
en en að hann sé ekki
feimnismál lengur. Hún
vill vera góð fyrir-
mynd fyrir aðra sem
eru hrjáðir af sama
vandamáli og vonar
hún eftir að stuðla að
jákvæðri umfjöllun um
sjúkdóminn. Í nýlegu
viðtali sagði hún frá því
að hárkollan væri alltaf
á sínum stað þegar hún
kæmi fram. Í uppáhaldi
væri síð, ljós hárkolla
en í rauninni færi það
algjörlega eftir skapinu
hverju sinni hvaða litur
yrði fyrir valinu. -kp
Ljósmynd/Nordic Photos,
Getty
Hefur barnið þitt brennandi áhuga á
hestum? En vantar hestinn?
Hestur í fóstur er reiðklúbbur fyrir
börn sem hittist einu sinni í viku með
leiðbeinendum. Mikil áhersla er lögð
á að börnin læri hvað felst í því að
eiga hest og að hverju þurfi að huga í
umhirðu hesta.
Laus pláss á laugardögum kl. 12:00!
Reiðklúbbar Íshesta í vetur
Við erum að byrja aftur með hinn
geysivinsæla reiðklúbb Íshesta sem
verður á sunnudögum frá kl. 11-14:00.
Leiðbeinandi verður Svandís Dóra
Einarsdóttir leikkona, sem er vinsæll
fararstjóri í sumarferðum Íshesta.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem
vilja njóta hestamennskunnar en hafa
ekki tíma til að eiga hesta sjálfir.
Nánari upplýsingar;
Íshestar-Sörlaskeið 26-220 Hafnarfjörður
S: 555-7000. info@ishestar.is - www.ishestar.is
Reiðklúbbur
fullorðinna
Helgin 14.-16. janúar 2011
NÆSTA ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNAR
SJÓÐI AURORU VERÐUR Í MARS 2011
���������������
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN
UMSÓKNUM RENNUR ÚT 15. FEBRÚAR.
HÖNNUNARSJÓÐUR Auroru hefur að mark miði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita
hönnuðum og arkitektum fjárhagslega
aðstoð. Nánari upplýsingar um úthlutaða
styrki og leið beiningar vegna um sókna
er að finna á www.honnunarsjodur.is.
Umsóknir og fyrir spurnir sendist á info@
honnunarsjodur.is � Seinni úthlutun úr
sjóðnum, fyrir árið 2011, verður á haust
mánuðum � Umsóknar frestur auglýstur
síðar � Hönnunarsjóður Auroru
Hönnun: Gunnar Vilhjálmsson, www.gunnarvilhjalmsson.net
Ertu fulltrúi,
ráðgjafi eða
teppahreinsir?
-er svarið
Árlega fletta Íslendingar 100 milljón sinnum upp á Já.is
og Símaskráin kemur út í 150 þúsund eintökum.
Ef þú vilt breyta skráningu þinni hafðu þá
samband við þjónustufulltrúa okkar í síma
522 3200, farðu inn á Já.is eða sendu
tölvupóst á ja@ja.is.
Skráningum í Símaskrána
lýkur 31. janúar.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
2
5
8
Óvenjuleg tískusýning
Fatahönnuðurinn færi, Stella McCartney, kynnti
nýjustu fatalínu sína með óvenjulegum hætti á
dögunum. Hún tók undir sig fjögurra hæða húsnæði
í New York og hélt heljarinnar samkomu þar sem
almenningur gat komið og hlýjað sér með tebolla og
fylgst með fyrirsætunum sýna flíkur hennar. Á fyrstu
hæðinni voru sýningarstúlkur sem sýndu glæsilegan
samkomufatnað.
Á annarri hæðinni
voru töskur og
aðrir fylgihlutir
með áherslu á
sjöunda áratuginn
og á þeirri næstu
voru snyrtivörur
kynntar. Því ofar
sem gestir leituðu
því meira varð
fjörið. Á efstu
hæðinni flæddi
kampavínið,
kórstelpur sungu
ljúfa tóna og hægt
var að fylgjast
með nýjustu nærfatalínu Stellu. Sýningin vakti mikla
athygli og hönnun hennar mikla lukku (myndin er frá
sýningunni). -kp
Ljósmynd/Nordic Photos/Getty images
Hrollvekjandi
auglýsingar
Nýjasta herferð bandaríska tískufyrirtæk-
isins American Apparel hefur valdið gríð-
arlegri umfjöllun síðustu daga. Auglýsing-
arnar brjóta allar hefðir og eru öðruvísi en
við má búast frá fyrirtækinu. Gefið er upp
að fyrirsæturnar vinni almennt ekki sem
slíkar heldur séu ungar stelpur úr ýmsum
stéttum samfélagsins. Þar er sagt frá
högum stúlknanna og talið er að herferð-
in brjóti gegn persónulegum rétti þeirra.
Þær eru ósmekklega lítið klæddar eða
með óvenjulega mikinn hárvöxt á líkama.
Gagnrýnendur telja þetta vera heldur
hrollvekjandi auglýsingar og hafa þær
verið bannaðar víðsvegar í heiminum. -kp
Ljósmynd/Nordic Photos/Getty images