Fréttatíminn - 21.01.2011, Síða 42
42 tíska Helgin 21.-23. janúar 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Kæruleysið sem
stjórnar
Nú stöndum við á hinum árlegu tímamót-
um með dollaramerkið í augunum. Nýtt
tímabil er við það að hefjast. Útsölurnar
eru að syngja sitt síðasta í bili og líklega
er verðlækkunin nú í hámarki. Verslanir
landsins keppast við að koma út öllum
gömlu vörunum til þess að rýma fyrir
þeim nýju. Verðlækkunin er með ólíkind-
um og freistingar í hverju horni.
Á tímum sem þessum leyfum við gjarna
kæruleysinu að ráða en þó vona ég, ykkar
vegna, að varkárnin hafi verið í fyrirrúmi.
Það getur verið mikil blekking þegar
stóru skiltin með 70% áletruninni þekja
alla veggi og glugga. Við gætum misst
vitið. Í kaupæðisbrjálæði tökum við upp
hverja flíkina af annarri, tilbúin að strauja
kortin – teljum þetta vera mikilvægasta
kauptímabil ársins. Við hunsum mátunar-
klefana því að við teljum það vera algjört
óþarfa stúss.
Að sjálfsögðu er hagstætt að gera góð
kaup á útsölunum. En stöldrum nú aðeins
við. Eru þetta ekki allt saman afgangs-
vörur sem seldust ekki á síðasta tímabili
– vörur sem enginn vildi leggja út fyrir.
Og viðskiptavinurinn sem blekkist svona
svakalega situr uppi með nokkrar gamlar
flíkur. Þá er bara tvennt sem kemur til
greina: Annaðhvort hefur þetta ákveðna
fórnarlamb gjörsamlega ekkert vit á því
hvað er í tísku og er jafnvel nokkrum
árum á eftir. Eða þá að einstaklingurinn
býr yfir svakalegri heppni – sem ég tel þó
ólíklegri kostinn.
Miðvikudagur
Skór: Forever 21
Sokkabuxur: Oriblu
Pils: Vintage búð í Danmörku
Skyrta: Rokk og rósir
Fimmtudagur
Peysa: Nostalgia:
Skór: Jeffrey Campel
Sokkabuxur: Oroblu
Monki í uppáhaldi
Rósa María Árnadóttir er nítján ára, á síðasta ári í Verslunarskóla Íslands
og vinnur í Rokki og rósum samhliða náminu. Hún hefur fyrst og fremst áhuga
á tísku, tónlist, handbolta og vinum. „Minn stíll er fremur einfaldur, stíl-
hreinn en samt öðruvísi. Ég kaupi helst fötin mín í „vintage“-verslunum, H&M,
Weekday og Monki, sem er sænsk verslun, er líklega uppáhaldsbúðin mín.
Tískuinnblástur fæ ég mest frá fólkinu í kringum mig og svo fylgist ég vel með
tískublöðum. Mér finnst margar af stjörnunum klæða sig rosalega flott en ég á
líklega enga almennilega fyrirmynd.“
Mánudagur
Skór: Din sko
Samfestingur: H&M
Belti: Kolaportið
Þriðjudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Buxur: Gina Tricot
Skyrta: Weekday
Hálsmen: Nostalgia
Föstudagur
Kápa: Nostalgia
Skór: Din sko
Sokkabuxur: Oroblu
Slá: H&M
Feldurinn: Kolaportið
5
dagar
dress
Fljótlega verða það ekki einungis
dömur sem glitra á rauða dregl-
inum. Austurríski skartgripa- og
fylgihlutahönnuðurinn Daniel
Swarovski mun gera karlmönnum
kleift að njóta sín jafn vel á dregl-
inum. Hann hefur fengið í lið með
sér sex aðra tískuhönnuði, menn á
borð við Emporio Armani, Hugo
Boss og Roberto Cavalli, og munu
þeir hanna flottan samkvæmis-
fatnað fyrir karlmenn. Þessi nýja
lína verður kynnt laugardaginn 22.
janúar, í Mílanó.
Kynnir nýja skólínu
Leikkonan Lindsay Lohan
stofnaði sína eigin hönnunarlínu
árið 2008 þar sem aðeins legg-
ings voru í boði. Nú hefur hún
bætt í safnið og býr sig undir að
kynna eigin skólínu, Courtesy
6126, nú í vor. Megináhersla er
lögð á að skórnir verði þægilegir
og tímalausir. Skór sem geta
auðveldlega breyst úr hvers-
dagsskóm í samkvæmisskó.
Hún er vel undirbúin og getur
ekki beðið eftir að hrinda hug-
myndinni í framkvæmd. Efnið
mun hún flytja inn frá Evrópu og
fjölbreytnin á að vera í hámarki.
Glitrandi
á rauða
dreglinum
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud. - föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugard.11:00 - 16:00
ÚTSALA
ALLT AÐ 70 %
AFSLÁTTUR
Borgar 2 og 3 flíkin fylgir frítt
ódýrasta flíkin er frí.