Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 4
OPIÐ
10-17
virka daga
10-12
laugardaga
Nokkuð stöðugt gengi krónunnar
113
gENgISVÍSITALA
KRÓNUNNAR STÓÐ Í
113 STIgUM
10. FEBRÚAR 2011
Greining Íslandsbanka
A thafnamaðurinn Sigurður Gísli Pálmason, einatt kenndur við Hag-kaup ásamt bróður sínum Jóni, hefur
höfðað mál á hendur fasteignafélaginu 101
Skuggahverfi ehf. Sigurður Gísli vill rifta
kaupum á lúxusíbúð af félaginu í hálfkláruðu
háhýsi við Vatnsstíg 16 til 18. Hann greiddi
rúmar fimmtíu milljónir við undirskrift kaup-
samnings síðsumars 2008 og vill fá
þá greiðslu endurgreidda. Sig-
urður Gísli átti að greiða eina
greiðslu þegar húsið væri
fokhelt, eftir því sem
Fréttatíminn kemst
næst, en gerði það
ekki heldur fór fram
á riftun á kaupunum.
Hann reynir nú með
dómsmálinu að fá þá
riftun viðurkennda
en fasteignafélagið
telur hana ekki gilda
og krefst þess að Sig-
urður Gísli standi við
gerða samninga.
Ljóst er að töluvert
hefur dregist að
afhenda íbúðirnar. Í
opinberum gögnum
kemur fram að af-
hendingardagur eigi
að vera 30. júní 2009
en íbúðin er ekki
tilbúin enn.
Íbúðin sjálf er
stórglæsileg. Hún er
á 17. hæð, alls 269
fermetrar að stærð. Í henni eru tvö svefnher-
bergi, gufubað og 32 fermetra þakgarður. Og
grannarnir eru ekki af verri endanum því á
hæðinni fyrir ofan, þeirri átjándu og efstu,
keyptu hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og
Ingibjörg Pálmadóttir, sem er jafnframt syst-
ir Sigurðar Pálma, 312 fermetra
þakíbúð í lok árs 2007. Þau
borguðu ríflega 200 milljónir
fyrir íbúðina.
Sigurður Gísli hefur helst
verið í fréttum undanfarin
ár sem mikill umhverfis-
verndarsinni og var einn af
framleiðendum kvikmyndar-
innar Draumalandsins sem
gerð var eftir vinsælli bók
Andra Snæs Magnasonar.
Sigurður Gísli átti 12% hlut
í MP banka í gegnum félag
sitt Dexter fjárfestingar.
Auk þess á hann helmings-
hlut á móti Jóni bróður
sínum í Eignarhaldsfélag-
inu Miklatorgi sem rekur
meðal annars Ikea og á
flestar fasteignir á Kaup-
túnsreitnum í Garðabæ.
Ekki náðist í Sigurð Gísla
þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Dómsmál Riftun í skuggAhveRfinu
Hagkaupsbróðir vill rifta
kaupum á lúxusíbúð
Hefur stefnt 101 Skuggahverfi ehf. og vill rifta kaupsamningi um lúxusíbúð við Vatnsstíg.
Svona lítur lúxusturninn við
Vatnsstíg út. Ljósmynd/Hari
SA Stormur og jAfNvel ofSAveður
geNgur yfir lANdið með rigNiNgu og
leySiNgu.
HöfuðborgArSvæðið: VEÐURhAMUR-
INN VERÐUR LÍKLEgA Í háMARKI á MILLI
KL. 6 og 9, EN dREgUR úR VINdI SMáM
SAMAN EfTIR þAÐ.
Ný Skil með SA-átt gANgA yfir
lANdið, eN ÓljÓSt eNN HverSu
HvASS HANN verður.
HöfuðborgArSvæðið: hVASS-
VIÐRI og RIgNINg A.M.K. UM TÍMA.
Að öllum líkiNdum verður
veður orðið muN rÓlegrA og
komiN Sv-átt með kÓlNANdi
veðri.
HöfuðborgArSvæðið: ÉLjA-
gANgUR, hITI UM fRoSTMARK og
hægT KÓLNANdI.
tími óveðranna
Stundum er sagt að febrúar sé mánuð-
ur djúpu lægðanna og óveðra. Í fyrra
var febrúar kaldur og þurrviðrasamur
og lítið bar á óveðri. Nú erum við hins
vegar í miðjum illviðrakafla, fyrsta
lægðin í þessari syrpu gekk yfir á þriðjudag
og miðvikudag, sú nr. 2 fer yfir í dag með
verulegu roki þar sem spáð hefur
verið ofsaveðri. Sú þriðja kemur
í kjölfarið en þegar þessi spá
er skrifuð er stefna hennar og
umfang enn nokkuð á huldu.
5
4 2 3
6 4
0 2
1
5
0
1 3
3
0
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
veðuR föstuDAguR lAugARDAguR sunnuDAguR
veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
Sigurður Gísli vill ekki lengur kaupa lúxusíbúðina í Skuggahverfinu. Ljósmynd/365
Hæsta olíuverðið frá
hruni haustið 2008
Olíuverð hélst hátt á alþjóðamörkuðum
í gær eftir allsnarpa hækkun í fyrradag.
Fyrir hádegi í gær var viðmiðunarverð
á Brent-hráolíu 101,3 dollarar á tunnu.
Olíuverð hefur ekki verið svo hátt frá
haustdögum árið 2008, að því er fram
kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Pólitískur órói í Egyptalandi og áhyggjur af
birgðastöðu Norðursjávarolíu hafa þrýst
verðinu upp á við, sér í lagi á evrópskum
markaði, á meðan tiltölulega rúm birgða-
staða vestanhafs hefur haldið nokkuð aftur
af verðhækkun þar. Umfangsmikil hækkun
á olíu- og hrávöruverði undanfarið hefur
orðið til þess að auka áhyggjur af vaxandi
verðbólguþrýstingi erlendis. -jh
Stefnir að kaupa
kjölfestuhlut í Högum
Viðræður eru nú á lokastigi um að Arion
banki selji kjölfestuhlut í Högum, stærsta
smásölufyrirtæki landsins. Stefnir, dóttur-
félag bankans, og hópur fagfjárfesta, eru
taldir líklegastir til að kaupa hlutinn, að því
er fram kom í Morgunblaðinu í gær. Arion
tók Haga yfir árið 2009, eftir að Jón Ás-
geir Jóhannesson og fjölskylda hans gátu
ekki staðið við skuldbindingar sínar við
bankann. Hagar eru móðurfélag Bónuss,
Hagkaups og margra annarra matvöru- og
fataverslana. Í Viðskiptablaðinu í gær kom
fram að tíu tilboð hefðu borist í hlutinn en
Stefnir og fagfjárfestarnir hafi orðið einir
eftir við samningaborðið, ásamt banda-
ríska fjárfestingarsjóðnum Yucaipa. -jh
Yfirvinnubann
flugumferðarstjóra
Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur
samþykkt yfirvinnubann og þjálfunarbann.
Um 90% þeirra sem tóku þátt í atkvæða-
greiðslu félagsins samþykktu bannið. Það
hefst 14. febrúar og stendur ótímabundið
eða þar til nýr kjarasamningur hefur verið
undirritaður. Þjálfunarbannið hefst 21.
febrúar. Sigurður Jóhannesson, varafor-
maður félagsins, sagði á mbl.is að bannið
þýddi að flugumferðarstjórar ynnu ekki
yfirvinnu ef starfsmaður forfallaðist vegna
veikinda. Yfirvinnubannið gildir frá klukkan
20 á kvöldin til 7 á morgnana á virkum
dögum og allan sólarhringinn um helgar
og á sérstökum frídögum. -jh
Gengi krónunnar hefur verið nokkuð stöðugt
það sem af er febrúarmánuði. Gengisvísitala
krónunnar stóð í gær, fimmtudag, í 113 stigum
en í byrjun mánaðarins var hún rétt rúm 112
stig. Einhver veiking hefur átt sér stað á gengi
krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar á þessum
tíma, segir Greining Íslandsbanka; dollarinn
kostar nú um 117 krónur á innlendum milli-
bankamarkaði en í byrjun mánaðarins kostaði
hann rúmar 115 krónur. Nokkuð minni breyt-
ing hefur orðið á gengi krónu gagnvart evru og
kostar evran nú rúmar 159 krónur sem er það
sama og hún kostaði í upphafi mánaðarins. - jh
Hann
greiddi
rúmar
fimmtíu
millj-
ónir við
undir-
skrift
kaup-
samn-
ings síð-
sumars
2008 og
vill fá þá
greiðslu
endur-
greidda.
4 fréttir Helgin 11.-13. febrúar 2011