Kjarninn - 22.08.2013, Page 6
F
jármálaeftirlitið fól endurskoðunarfyrirtækinu
Price Waterhouse Coopers að gera úttekt á tiltekn
um þáttum í starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík,
með samningi dagsettum 7. júlí árið 2010. Á
þeim tíma hafði Fjármálaeftirlitið tekið stjórn
sparisjóðsins yfir, vikið stjórn hans frá og skipað bráða
birgðastjórn. Ákvörðun FME um að taka sparisjóðinn yfir
byggðist á því að frá lokum mars árið 2009 hafði eiginfjár
staða hans verið undir lögbundnum mörkum og ítrekaðar
samningsviðræður við kröfuhafa um fjárhagslega endur
skipulagningu skilað engu.
Price Waterhouse Coopers (PwC) skilaði Fjármála
eftirlitinu niðurstöðum sínum í formi svartrar skýrslu þann
7. apríl árið 2011. Kjarninn hefur umrædda skýrslu undir
höndum, en henni hefur verið haldið frá stofnfjárhöfum,
sem margir hverjir urðu fyrir miklum fjárhagslegum bú
sifjum vegna falls sjóðsins. Stofnfjáreigendur í Sparisjóðnum
í Keflavík voru 1.750 talsins, en þeir töpuðu tæplega sautján
milljörðum króna á falli sparisjóðsins.
Kjarninn birtir nú skýrslu PwC í heild sinni. Skýrslan er
í senn ótrúleg og skuggaleg yfirlestrar. Ekki stóð steinn yfir
steini í rekstri sparisjóðsins.
Vítaverð vinnubrögð – mögulega saknæm
PwC óskaði ekki eftir aðgengi að tölvupóstum starfsmanna
sjóðsins, en áréttar í skýrslunni að Fjármálaeftirlitið verði að
ákveða hvort ráðast eigi í frekari rannsóknir á sviði saka
mála byggðar á niðurstöðum skýrslunnar. Þannig yrðu tölvu
póstar og síðar yfirheyrslur yfir lykilstjórnendum sjóðsins
grunnur að frekari rannsókn ásamt niðurstöðum PwC.
Í almennum niðurstöðum PwC í skýrslunni segir hins
vegar: „Stjórn og stjórnendur [Sparisjóðsins í Keflavík, innsk.
blaðamanns] voru undir miklum þrýstingi að sýna góða
afkomu, tryggja fjármögnun og halda uppi virði sjóðsins.
Stutt getur verið á milli þess sem augljóslega telst ekki til
venjulegra viðskiptahátta og þess sem hugsanlega gæti verið
saknæmt.“
fjárMál
Ægir Þór Eysteinsson
aegir@kjarninn.is
Deildu með
umheiminum
2/12 kjarninn FJáRmáL
Smelltu til að sækja
leyniskýrsluna