Kjarninn - 22.08.2013, Side 24

Kjarninn - 22.08.2013, Side 24
má benda á að öll landsframleiðsla Íslendinga var um 1.700 milljarðar króna í fyrra, eða 68 prósent af þeirri upphæð sem Davidson Kempner stýrir. Burlington, eða aðrir sjóðir David­ son Kempner, eru langstærstu kröfuhafar Glitnis, ásamt því að vera fimmti stærsti kröfuhafi Kaupþings og eiga kröfur á Landsbankann. Þeir eiga einnig stóran hlut í Straumi, Klakka (áður Exista) og Bakkavör. Talið er að Burlington hafi keypt alls kyns kröfur og hluti í íslenskum fyrirtækjum, að lang­ mestu leyti í fjármálageiranum, fyrir vel á annað hundrað milljarða króna frá hruni. Sú upphæð endurspeglar ekki umfang samþykktra krafna Burlington í bú bankanna. Sú upphæð er mun hærri. Kröfur Burlington á Glitni einan voru til að mynda 241 milljarður króna í lok maí. Sjóðurinn hafði þá keypt kröfur upp á 110 milljarða króna að nafnvirði frá því í byrjun mars. Þau uppkaup vekja athygli, enda fóru þau fram á þeim tíma sem digurbarkalegar yfirlýsingar stjórnmálamanna um upptöku á eignum kröfuhafa féllu nánast daglega. Ljóst er að vogunar­ sjóðurinn sem oft er nefndur „eigandi Íslands“ í einka­ samtölum hræddist ekki kosningaáróðurinn. Auk Burlington hafa vogunarsjóðir á borð við York Capital, Perry Luxco, Hillcrest Investments og margir fleiri keypt mikið af kröfum á íslensk fjármálafyrirtæki á undan­ förnum árum. Mestu uppkaupin áttu sér stað á árinu 2009 og framan af árinu 2010. Á þeim tíma voru kröfurnar seldar á hrakvirði. Vogunarsjóður sem keypti kröfu á Glitni í uppboðunum sem fóru fram í nóvemberbyrjun 2008 greiddi þrjú prósent af virði kröfunnar fyrir hana. Það þýðir að krafa upp á einn millj­ arð króna var seld á 30 milljónir króna. Alþjóðlegir bankar, meðal annars hinn breski Barclays, halda utan um verðþróun á kröfum á íslensku bankana. Samkvæmt tölum frá Barclays voru væntar endurheimtir á Glitni 30 prósent í lok apríl. Það þýddi að ef milljarðskrafan yrði seld á þeim degi hefði hún tífaldast í verði og myndi hún fara á 300 milljónir króna. Hagnaður inn yrði því 270 milljónir króna. Á sama tíma hafa kröfur á Kaupþing tæplega fjórfaldast í verði frá hruni 8/11 kjarninn EFnAHAGSmáL Smelltu til að lesa um Paulson Credit Opportunities risi Kaupir KröFur Paulson Credit Opportunities master keypti kröfur á Glitni fyrir tæpa 15 milljarða króna í mars. Stofnandi og stjórnandi þess sjóðs er John Paulson en fyrirtæki hans, Paulson & Co., er sjöundi stærsti vogunarsjóður Bandaríkjanna. Paulson sjálfur er í 91. sæti yfir ríkustu menn heims. Hann öðlaðist heimsfrægð þegar upp komst að hann hafði veðjað stórkostlega á fall húsnæðislánamarkaðins í Bandaríkjunum. á árinu 2007 einu saman hagnaðist Paulson & Co. um 15 milljarða dala. Smelltu til að loka
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.