Kjarninn - 22.08.2013, Page 39
Deildu með
umheiminum
hEilbrigðisMál
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is
Íþyngjandi
heilbrigðisþjónusta
1/01 kjarninn HEILBRIGðISmáL
R
ekstur íslenska heilbrigðiskerfisins byggist
fyrst og fremst á framlögum úr ríkissjóði.
Einkaaðilar sinna þó margvíslegri starfsemi,
sem og félagasamtök og sveitarfélög. Tölur sem
Kjarninn fékk afhentar frá Velferðarráðuneytinu
sýna að hlutur einkaaðila og félagasamtaka jókst lítið eitt
milli áranna 2012 og 2013 sé horft sérstaklega til fjárlaga
fyrir árin. Árið 2012 var ríkið rekstraraðili 71,7 prósenta af
heildarframlagi til heilbrigðisþjónustu en sambærileg tala
var 71,1 prósent miðað við fjárlög 2013. Afgangurinn, sé horft
til fjárlaga 2013, skiptist á einkaaðila (9,43%), félagasamtök
og sjálfseignarstofnanir (12,86%) og sveitarfélög (6,61%). Hið
opinbera, þ.e. ríki og sveitarfélög, er því rekstraraðili 77,7%
heilbrigðisþjónustunnar, sé horft til þeirra þjónustu sem er
inni á fjárlögum fyrir árið 2013.
staðan kortlögð
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur þegar
sett af stað vinnu innan ráðuneytis síns sem miðar að því
að skoða hvort mögulegt sé að hagræða með því að breyta
um rekstrarform. Það er að segja að einkaaðilar geti talist
betri rekstraraðilar heldur en hið opinbera í einhverjum
tilvikum. Þessi vinna er stutt á veg komin en er eitt af því
sem horft er til þegar kemur að fjárlögum fyrir árið 2014.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn nefnir í nýjustu skýrslu sinni um
stöðu efnahagsmála hér á landi, sem birt var 7. ágúst sl., að
mögulegt sé að spara í heilbrigðiskerfinu með margvíslegum
hætti, meðal annars með því að fækka innlögnum sjúklinga
á sjúkrahús og taka í staðinn upp heimahjúkrun, sem kosti
minna. Alþjóðlegar fyrirmyndir eru margar í þessum efnum.
Á Norðurlöndum er fyrirkomulagið víðast hvar svipað því
sem þekkist hér á landi, þ.e. blandað kerfi þar sem hið
opinbera annast oftast reksturinn en í hluta kerfisins eru
einkaaðilar og félagasamtök rekstraraðilar.
þungt í rekstri
Á meðal ríkja OECD hefur framlag til heilbrigðismála, í
hlutfalli við árlega landsframleiðslu, verið að aukast að
meðaltali allt frá árinu 2000. Fyrir því eru ýmsar ástæður
en sú sem vegur þyngst, samkvæmt skýrslum OECD er
málaflokkinn varða, er sú staðreynd að meðalaldur fólks
er að hækka víðast hvar, með tilheyrandi vaxandi álagi og
kostnaði.
Eins og sést á grafískri mynd sem Kjarninn setti saman
fer ríflega helmingur framlaga sem eru á fjárlögum til
reksturs sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og sérhæfðrar
sjúkraþjónustu. Skiptinguna á framlögum sem tilheyra
fjárlögum til heilbrigðismála, þegar horft er sérstaklega til
rekstraraðila þjónustunnar, má sjá á grafísku myndinni hér
að neðan.
HlutFall aF FjárlöguM 2012
rekstraraðili
Smelltu á gulu punktana á
skífuritinu til að skoða sundurliðun
innan rekstrarformanna.
einkaaðili
9,45%
Félagasamtök/
sjálfseignarstofnun
12,40%
sveitarfélag
6,44%
ríkisaðili
71,72%
HlutFall aF FjárlöguM 2013
rekstraraðili
einkaaðili
9,43%
Félagasamtök/
sjálfseignarstofnun
12,86%
sveitarfélag
6,61%
ríkisaðili
71,10%
G
RA
FÍ
K:
K
ja
rn
in
n/
Bi
rg
ir
Þó
r
Smelltu til að kynna þér kostnað
við heilbrigðiskerfi þjóða