Kjarninn - 22.08.2013, Page 69
út 2. júlí síðastliðinn. Niðurstaða hennar var afgerandi og
í henni var starfsemi sjóðsins gagnrýnd harkalega. Því er
haldið fram að afglöp hafi verið framin við ákvörðunartöku
um starfsemi sjóðsins bæði af stjórnmálamönnunum sem
höfðu með hann að gera og af stjórnendunum sem stýrðu
sjóðnum. Afrakstur þeirra afglapa er sá að Íbúðalánasjóður
mun kosta íslenska skattgreiðendur tugi, ef ekki hundruð
milljarða króna. Endanlegt tap liggur þó ekki fyrir.
Sú gagnrýni hefur endurkastast yfir á Framsóknar
flokkinn, enda heyrði sjóðurinn undir félagsmálaráðuneytið,
sem flokkurinn stýrði árum saman. Auk þess var fyrrverandi
varaformaður Framsóknarflokksins, Guðmundur Bjarnason,
ráðinn forstjóri Íbúðalánasjóðs árið 1999 og gegndi því starfi
fram á árið 2010.
Sigmundur Davíð kveðst hafa náð að kynna sér skýrsluna
ágætlega frá því að hún kom út. „Mér finnst áhyggjuefni
hvað virðast vera margir gallar á skýrslunni. Það breytir
því ekki að þetta eru hlutir sem þarf að skoða og læra af
reynslunni. Það mun þurfa að taka á málum Íbúðalánasjóðs.
Ég geri ráð fyrir að þingið muni vinna með þessa skýrslu
áfram. Raunar hefur formaður stjórnskipunar og
eftirlitsnefndar látið hafa eftir sér að svo verði.“
Hluti þeirra ákvarðana sem voru gagnrýndar harðlega
í skýrslunni var annars vegar sú ákvörðun að leggja
húsbréfakerfið niður og hins vegar að ráðast í 90 prósenta
lánveitingar, sem var gert á grunni kosningaloforðs
7/12 kjarninn VIðmæLAnDI VIKunnAR
sigMundur daVíð uM breytingar á Veiðigjaldinu
„Augljóslega eru menn ekki það
miklir nýgræðingar í pólitík að
þeir geri sér ekki grein fyrir því að
þetta var ekki vinsælt útspil víða.
ástæðan fyrir því að málið var tekið
fyrir á sumarþingi var að fiskveiði-
árið miðast við september. Það
var ekkert um annað að ræða því
þær reglur sem ella hefðu gilt voru
óframkvæmanlegar og, að okkar
mati, líka skaðlegar. Það voru þegar
komin upp allmörg dæmi þar sem
minni fyrirtæki voru að falbjóða sig
stærri fyrirtækjum vegna þess að
það var ekki hagkvæmt fyrir þau að
vera í rekstri. En þetta var redding til
eins árs. Svo tekur við nýtt kerfi sem
vonandi verður til þess að hámarka
arðsemi samfélagsins í heild af
sjávarútvegi.“