Kjarninn - 22.08.2013, Page 80

Kjarninn - 22.08.2013, Page 80
var tekið lán upp á þá upphæð hjá Glitni. Í júlí 2007 ákvað stjórnin síðan að greiða hluthöfum sínum út 1,9 milljarða króna í arð og að kaupa eigin bréf af hluthöfum fyrir tæplega 1,4 milljarða króna. Í ágúst 2007 var tekið þriggja milljarða króna lán hjá Glitni til að standa undir þessum útgreiðslum. Í stefnunni segir: „Að teknu tilliti til kaupa á eigin bréfum af hluthöfum í desember 2006 og uppgreiðslu lána til hluthafa höfðu hluthafar stefnanda á þessum tímapunkti ákveðið að greiða sér út úr félaginu samtals 6.500.000.000 króna og hafði félagið þá einungis verið starfsrækt sem fjárfestinga­ félag hluthafanna í 8 mánuði.“ Slitastjórn Glitnis hefur ekki stefnt vegna desember­ útgreiðslunnar. Hún vill hins vegar fá til baka þá rúmu þrjá milljarða króna sem greiddir voru út sumarið 2007. Fons FéKK líKa lánað til að greiða út arð Gnúpur var alls ekki eina íslenska fjárfestingarfélagið sem tók lán til að greiða sér út háan arð. á aðalfundi fjárfestingarfélagsins Fons hf. í ágúst 2007 var samþykkt að greiða 4,4 millj- arða króna arð til eigenda þess félags, sem var afar umfangsmikið í íslensku viðskiptalífi fyrir bankahrun. Lúxem- borgskt félag, matthew Holding SA, fékk 4.180 milljónir króna af þessari arðgreiðslu. Eigendur þess félags voru Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson. áður en arðurinn var greiddur út þurfti lánanefnd Lands- bankans að samþykkja greiðsluna, enda lánaði bankinn fyrir henni. Fons fór síðan á höfuðið og var tekið til gjaldþrotaskipta í lok apríl 2009. Lýstar kröfur í búið námu 39,8 milljörðum króna. Skiptastjóri þrotabús Fons stefndi þeim Pálma og Jóhannesi og vildi að þeir endurgreiddu þá 4,2 milljarða króna sem runnu til matthews Holding. Krafan byggði á að ársreikningur Fons fyrir árið 2006 hefði verið verulegum ann- mörkum háður og í andstöðu við lög og reikningsskilareglur. Hann hafi því ekki getað verið grund- völlur úthlutunar og greiðslu arðs úr félaginu, auk þess sem arð- greiðslan hafi verið í andstöðu við góðar rekstrarvenjur og hafi í raun verið gjafagerningur. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu þeirra í júlí 2013. Í niðurstöðu hans sagði að Fons hefði verið gjaldfært félag þegar arðurinn var greiddur. Smelltu til að kynna þér 77. grein hluta- félagalaga 4/05 kjarninn DÓmSmáL Smelltu til að fara aftur í yfirlit 99. grein Hluta­ Félagalaga Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagnaði samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikn- ingsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hefur verið frá tap sem ekki hefur verið jafnað og það fé sem samkvæmt lögum eða félagssamþykktum skal lagt í varasjóð eða til annarra þarfa. Í móðurfélagi er óheimilt að úthluta það miklum arði að andstætt sé góðum rekstrarvenjum með tilliti til fjárhagsstöðu samstæðunn- ar, enda þótt arðsúthlutun sé annars heimil. Smelltu til að loka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.