Kjarninn - 22.08.2013, Page 86
E
ftir að íslenskt efnahagslíf hrundi hafa verið
skrifaðar mörg þúsund blaðsíður í formi
rannsóknaskýrslna og kostnaðurinn við þær
hleypur á hundruðum milljóna króna. Þessar
skýrslur eru eðli málsins samkvæmt nokkuð
kræsileg lesning og þær eru því mun vinsælli en skýrslur
sem gefnar voru út áður en allt fór í bál og brand. Þó var nóg
af skýrslum/greiningum/úttektum sem greindu stöðuna,
vöruðu við og komu með tillögur að úrbótum. En við nennum
ekkert að lesa þannig skýrslur og fyrir vikið erum við ítrekað
að skrifa skýrslur um það sem fór úrskeiðis; hvernig gátu
til dæmis allir bankarnir farið lóðrétt á hausinn á nokkrum
árum án þess að nokkur fengi rönd við reist? Hvernig
varð Orkuveitan ofurskuldsett? Hvernig stendur á því að
Íbúðalánasjóður stendur svo illa? Og hvað var í gangi í
lífeyrissjóðum landsins fyrir hrun, nú eða sparisjóðunum?
Fyrir nokkru rakst ég á grein í Peningamálum
Seðlabankans sem kom út árið 2000 og heitir
„Fjármálakerfið: styrkir og veikleikar“. Um er að ræða
ítarlega greiningu á því hvernig koma megi í veg fyrir
fjármálaáfall og gjaldeyriskreppu. Við lesturinn féllust
mér hreinlega hendur. Það má nefnilega færa rök fyrir því
að hefði okkur borið gæfa til að hafa þessa greiningu að
leiðarljósi hefði sennilega ekki orðið neitt hrun. Til að gefa
lesendum smá innsýn eru hér nokkrar lýsandi setningar;
„Í ljósi þess hve fjármálakreppur geta verið
kostnaðarsamar er mikilvægt að gripið sé til fyrirbyggjandi
aðgerða til þess að koma í veg fyrir þær.“
„Mikil peninga og útlánaþensla er eitt helsta
áhyggjuefnið í tengslum við stöðugleika fjármálakerfisins
um þessar mundir.“
„Mjög ör vöxtur hefur oft verið fyrirboði alvarlegrar
fjármálakreppu.“
„Peningaleg þensla getur stuðlað að óhóflegri hækkun á
verði hlutabréfa og fasteigna.“
„Óhóflegur viðskiptahalli kann einnig að vera vísbending
um gjaldeyriskreppu”
„Viðskiptahallinn er því áhyggjuefni frá sjónarmiði
fjármálastöðugleika. Hann eykur skuldsetningu þjóðarbúsins
og gerir það þannig viðkvæmara fyrir áföllum og getur til
lengdar grafið undan trausti á gengi krónunnar.“
„Sé auknu frjálsræði ekki fylgt eftir með öflugu eftirliti
getur það leitt til alvarlegra bresta í fjármálakerfinu“.
„Skuldir íslenskra heimila eru nú með því hæsta sem
gerist að tiltölu við ráðstöfunartekjur“.
„Miklum vexti útlána fylgir sú hætta að ekki sé nægilega
hugað að greiðslugetu lánþega og því gætu lánastofnanir
orðið fyrir útlánatöpum þegar þrengir að í efnahagslífi.
Þessi hætta er þeim mun meiri sem fyrirtæki og heimili eru
skuldsettari.“
„Veð sem eru farin að nálgast 80% af fasteignaverði gætu
því reynst ótraust.“
Og lokaorðin:
„Hættan við ríkjandi aðstæður felst í því að núverandi
þróun, ofþensla, mikill viðskiptahalli, verðbólga og
hækkandi raungengi, leiði til vaxandi erfiðleika í
efnahagsmálum og auki líkur á gjaldeyriskreppu. Áföll í ytra
umhverfi hagkerfisins gætu haft hliðstæðar afleiðingar.
Hæfni fjármálakerfisins til þess að takast á við skyndilegar
breytingar yrði meiri ef betra jafnvægi ríkti í viðskiptum
þjóðarbúsins gagnvart útlöndum. Auk þess að draga úr
verðbólgu ætti stjórn efnahagsmála því öðru fremur að
beinast að því að draga úr viðskiptahallanum.“
Skýrslur ofan í
skúffum
álit
Brynhildur Pétursdóttir
þingmaður
Bjartar framtíðar
Deildu með
umheiminum
Smelltu til
að fara aftur í
yfirlit
m
Yn
D
A
F
RA
n
n
SÓ
Kn
AR
SK
ýR
SL
u
: F
lic
kr
/b
ria
ns
ud
a
m
Yn
D
á
S
Íð
u
2
: K
ja
rn
in
n/
Bi
rg
ir
Þó
r