Kjarninn - 22.08.2013, Page 124
s
kapandi greinum til þess að deila reynslu sinni
og þekkingu til að rannsaka nýja möguleika í
samvinnu, sköpun og framleiðslu“, og það sem
einkenndi skipulag hennar var traust og trú á
kraft fjöldans til þess að koma hlutunum í verk.
Frá frystihúsi til sköpunarmiðstöðvar
Stöðvarfjörður er lítið þorp sem situr undir gnæfandi
austfirskum fjallstoppum. Þar hefur verið mikil
fólksfækkun og lokun frystihússins fyrir nokkrum
árum hafði neikvæð áhrif á atvinnuhorfur, en íbúum
hefur nú fækkað niður í um 190. Þegar frystihúsið
hafði staðið tómt um skeið og loks átti að rífa það, tók
hópur listafólks og frumkvöðla sig til og keypti húsið
með það að markmiði að koma þar upp sjálfbærri
sköpunarmiðstöð. Hetjulegt starf við að snúa vörn í sókn
hefur verið unnið á undanförnum árum við að koma þar
upp listasmiðjum, vottuðu eldhúsi og samkomusal.
Hópurinn sem stóð að skipulagningu Pólar hafði
laðast að þorpinu í gegnum það starf sem átti sér stað
við uppsetningu miðstöðvarinnar. Meðal þeirra er Gígja
Sara Björnsson, sem ólst upp í París en fjárfesti nýlega
í húsi á Stöðvarfirði ásamt unnusta sínum. Gígja var í
skýjunum yfir því hvernig tókst til með hátíðina. Hún
áætlar að hátt í 200 manns hafi verið með í námskeiðum
og listviðburðum sem áttu sér stað, en sérstaklega
var hún ánægð með hve reiðubúnir þátttakendur
hátíðarinnar voru til þess að taka þátt og hjálpast að við
að framkvæmd hennar.
skak og hristingur á föstudagsmorgni
Hátíðin einkenndist af vingjarnlegu andrúmslofti og
virku framlagi allra viðstaddra. Fyrsta daginn kynntust
þátttakendur hver öðrum við „lunch beat“ – dansleik
undir berum himni um hádegisbilið. Á eftir tóku við
námsstofur um allt frá vistvænni ræktun til skapandi
skrifa. Þegar kvölda tók stóð BNG danshópurinn síðan
2/04 kjarninn ExIT
Smelltu til að
heimsækja vefsíðu
Karolina Fund