Dagfari - 01.11.2007, Blaðsíða 5
John Lennon skömmu fyrir dauða sinn
á íslandi og stuðningi íslands við
loftárásirnar á Júgóslavíu og inn-
rásina í írak og hafa hafnað tillögum
um kjarnorkuvopnlaust ísland - bauð
Yoko Ono, ekkju Johns Lennons og
baráttufélaga, velkomna til Reykja-
víkur til að setja upp þetta friðartákn
í Viðey á meðan þingmannasamtök
hernaðarbandalagsins sátu bakvið
luktar dyr í Laugardalshöllinni.
Árið 2002 samþykkti þáverandi borg-
arstjórn Reykjavíkur, eins og flest önn-
ur sveitarfélög hafa gert, að umferð
og geymsla kjarnorku-, efna- og sýkla-
vopna yrði bönnuð í borgarlandinu.
Sú ákvörðun stendur enn og væntan-
lega mun seint verða vikið frá henni
frammi fyrir friðarsúlunni í Viðey. Og
vonandi mun borgarstjórn Reykja-
víkur stíga enn frekari skref í friðar-
baráttunni, svo sem með því að setja
reglur um að herskip komi ekki í höfn
í Reykjavík, eða að borgarstjórinn í
Reykjavík sameinist um 1800 öðrum
bæjarstjórum í friðarsamtökum bæj-
arstjóra (Mayors for Peace) sem borg-
arstjórarnir í Hírósíma og Nagasakí
komu á fót árið 1982.
Það er þá aukaatriði þótt gleymst hafi
að bjóða út í Viðey fulltrúum virkustu
friðarsamtaka íslands, Samtaka hern-
aðarandstæðinga og Menningar- og
friðarsamtaka íslenskra kvenna, sem
hafa t.d. í liátt á þriðja áratug staðið
íyrir árlegri friðargöngu í Reykjavík
á Þorláksmessu og kertafleytingu á
Reykjavíkurtjörn í minningu fórnar-
lamba kjarnorkusprengjanna í Híró-
síma og Naga-
saki. Má vera
að þessi sam-
tök þyki of
pólitísk,enlát-
um það bggja
milli hluta.
(Greinin birt-
ist áður á
fridur.is, vef
SHA, hinn
10. október
síðastliðinn.) Einar Ólafsson
FRIDUR.IS
VEFUR UM FRIÐAR- OG AFVOPNUNARMÁL
Dagfari • nóvember 2007
5