Dagfari - 01.11.2007, Síða 12

Dagfari - 01.11.2007, Síða 12
Frá Nagasaki Herir og kjarnorkuvígbúnaður Formlega séð hefur NATO engan her. Herinn sem NATO beitir er einfaldlega herir þeirra ríkja sem að bandalaginu standa. Það sama gildir um flest vopn og hernaðartól, en sum þeirra eru þó í eigu NATO. Auk þess sér NATO um þróun ýmiskonar hernaðartækni í þar til gerðum rannsóknarstofnunum á vegum bandalagsins. Eitt helsta hlutverk NATO felst í stjórn á kjarnorkuvopnum. Það eru Banda- ríkjamenn og Bretar sem eiga öll þau kjarnorkuvopn sem bandalagið hótar að beita, en ef til stríðs kemur áskilja Bandaríkjamenn sér þann rétt að deila kjarnorkuvopnunum með sér til bandalagsþjóða sinna í NATO. Aðrar NATO-þjóðir (utan við Frakkland sem íyrr segir) eiga því engin kjarnorku- vopn, þótt þau geti engu að síður beitt þeim í stríði. Þessi furðulega tilhögun er til komin vegna þess að dreifing kjarnorkuvopna er bönnuð samkvæmt Kjarnorkuafvopnunarsamningnum frá 1968, og því gætu Bandaríkjamenn ekki selt eða gefið aðildarþjóðum kjarnorkuvopn með hefðbundnum hætti. Allar NATO-þjóðirnar eru því hugsanleg kjarnorkuvopnaveldi ef til stríðsátaka kemur, þrátt fýrir að hafa undirritað samning sem ætlað var að banna þessum þjóðum að taka við kjarnorkuvopnum. Þessi sameigin- lega kj arnorkuvopnastefna bandalags- ins er talin koma í veg fyrir þátttöku einstakra ríkja í stofnun yfirlýstra kjarnorkuvopnalausra svæða. Stefnan stóð til dæmis í vegi fyrir kjarnorku- vopnalausum Norðurlöndum þótt hugmyndin hafi notuð yfirburða- stuðnings meðal almennings. Þess má geta að NATO hefur hafnaðþví að útiloka beitingu kjarnorkuvopna að fyrra bragði. Þýskaland lagði fram til- lögu um að útiloka slíkt á fundi NATO- ríkja í Washington 1 apríl 1999, en til- lögunni var hafnað. Samkvæmt áliti Alþjóðadómstólsins í Haag frá 8. júlí 1996 brýtur beiting kjarnorkuvopna að fyrra bragði gegn alþjóðalögum, en einnig telur dómstóllinn að ríkjum heims beri að stefna að útrýmingu allra slíkra vopna. í samræmi við þetta lagði Malasía hinn 1. desember 1999 tillögu fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna um eyðingu allra kjarnorku- vopna. 114 ríki samþykktu þessa til- lögu, en 22 sátu hjá og 28 greiddu atkvæði gegn henni. Þar á meðal voru næstum öll aðildarríki NATO og er ís- land þar ekki undanskilið. Tvö NATO- ríki, þ.e. Kanada og Noregur, sátu hjá, en ekkert NATO-ríki greiddi atkvæði með tillögunni. Andstada og stuðningur NATO hefur alla tíð mætt öflugri mót- spyrnu friðelskandi fólks og þeirra sem gagnrýnt hafa vígvæðingu þess og utanríkisstefnu. Krafturinn í and- stöðunni hefur verið mismikill eftir tímabilum og líklega varð hann einna mestur í byrjun níunda áratugarins, þegar uppi voru áform um að koma skamm- og meðaldrægum kjarna- flaugum fyrir á meginlandi Evrópu. Þau áform voru fyrst og fremst stöðvuð vegna gríðarlegrar mótmælabylgju al- mennings í löndum Vestur-Evrópu sem leidd var af friðarhreyfingunni. Á íslandi hefur andstaðan við NATO sömuleiðis alla tíð verið mikil og tengdist lengst af herstöðvarmálinu, en inngangan í NATO var á sínum tíma talin forleikur að komu erlends hers til landsins. Þá var herstöðin á Miðnesheiði skilgreind sem NATO- herstöð, þótt þar þjónuðu fyrst og fremst bandarískir hermenn. Allar helstu friðarhreyfingar síðustu áratuga á íslandi hafa haft úrsögn úr NATO á stefnuskránni. Það er nokkuð frábrugðið því sem verið hefur í grann- ríkjunum, þar sem meiri hefð er fyrir eins-máls-hreyfingum, sem t.d. ein- beita sér að baráttu gegn herskyldu, kjarnorkuvopnum eða einstökum stríðum, en skjóta sér undan því að taka afstöðu til hernaðarbandalagsins NATO. íslenskir NATO-vinir hafa einnig haft sín félagssamtök. Ungliðar úr þeim stjórnmálaflokkum sem stutt hafa NATO-aðild halda úti félagsskapnum Varðbergi. Þeir sem eldri eru geta leitað til Samtaka um vestræna sam- vinnu (SVS). Meginhlutverk beggja samtaka hefur á síðustu árum verið skipulagning á heimsóknum stjórnar- manna til höfuðstöðva NATO í Brussel og Norfolk. Adildarþjóðir Nú eru 26 ríki í NATO og hefur þeim fjölgað mjög síðustu ár. Stofnendur (apríl 1949): Belgía, Kanada, Danmörk, Frakkland, ísland, Italía, Lúxemborg, Holland, Noregur, Portúgal, Bretland, Bandaríkin. Fyrsta stækkun (febrúar 1952): Grikkland, Tyrkland. Önnur stækkun (maí 1955): Þýskaland. Þriója stækkun (maí 1982): Spánn. Fjórða stækkun (mars 1999): Tékkland, Ungverjaland, Pólland. Fimmta stækkun (mars 2004): Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía. Finnur Dellsén tók saman Dagfari • nóvember 2007 12

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.