Dagfari - 01.11.2007, Side 14

Dagfari - 01.11.2007, Side 14
Fátt hefur valdið meiri heila- brotum og jafnvel hrein- um og beinum deilum milli kvikmyndafræðinga (og áhugamanna) en það hvernig í ósköpunum eigi að skilgreina stríðsmyndina: Hvað er og hvað er ekki stríðsmynd? Verður stríðsmynd- in beinlínis að sýna stríð eða bardaga eða líf hermanna? Er hægt að kalla epískar sverða- og sandalamyndir á borð við Spartacus (Stanley Kubrick, 1960) stríðsmynd? Hvað þá með myndirnar sem sýna aðdraganda, eða þá afleiðingar stríðs? Hvað með Kalda stríðið? Eru myndir sem fjalla um visst stríð meiri stríðsmyndir en þær sem fjalla um annað? Þessum pistli er sannarlega hvorki ætl- að að svara þessum spurningum né mörgum öðrum af sama tagi. Honum er frekar ætlað að vekja lesendur til umhugsunar um hvers lags óskapa skepna þessi kvikmyndagrein er og mun alltaf verða. í mörgum merkum greinum, ritgerðum og bókum sjást hinar ýmsu birtingarmyndir þessara deilna. Þeir sem setja kannski ströng- ustu skilyrðin einskorða stríðsmynd- ina við það sem á góðri ensku kallast World War II Combat Film, sem mætti snara á íslensku sem Seinni-heims- styrjaldar-bardagamynd. Þetta er ekki svo galið svið, en ansi þröngt. Þessar myndir verða af augljósum ástæðum helsta birtingarmynd stríðsmynda frá og með 1942, og er Hollywood-mynd- in Bataan (1943) oft kölluð fyrsta „alvöru“ stríðsmyndin. Þetta þýðir að hún inniheldur hóp sem á að vera þverskurður og táknmynd (yfirleitt) bandarísks þjóðfélags. Hópurinn inniheldur þ.a.l. erkitýpur eins og kvensama ítalann, sálmasyngjandi svertingjann, sveitalubbann sem talar mikið um hversu ólíkt umhverfið sé Kansas og að sjálfsögðu engan mann af asískum uppruna. Hópinn leiðir atvinnuhermaður (gjarnan kallaður Lifer) sem þarf að kljást við þann eina í hópnum sem ekki fellur alveg inn í og táknar því hvað sundrung í öllum samfélögum er skelfileg. Þegar há- punkti frásagnarinnar er náð verður eitthvað til þess að sundrungaraðil- inn skilur loksins að hann verður að vera hluti af heildinni, oft eftir að hafa óvart orðið valdur að dauða einhvers í hópnum eða hafa bjargað saklausum borgara. Við þessa uppgötvun verður hann fljótt hetja hópsins og vinnur tilhlýðilegar dáðir sem stundum enda Mörgumfinnst jy stríðsmyndin stöðnuð, að hún sé lítið annað en heilalausasta form afþreyingar og höfði tilfrekar aumra hvata. Þetta er bæði rétt og ekki að dómi ritara... með hetjulegri fórn. Þessi uppbygg- ing, sem inniheldur ýmsa fleiri þætti, á við um velflestar „alvöru“ stríðs- myndir. Eins og gefur að skilja var þessi bygging allsráðandi á tímabilinu frá 1942-1949 og hefur sannarlega ekki dáið út, en eins og flestar klass- ískar greinauppbyggingar hefur hún hlotið töluverða endurskoðun. Það liggur kannski í hlutarins eðli að stríðsmyndin hefur breyst með tíman- um, enda voru eldri stríðsmyndir gjarnan uppfullar af þjóðernisstolti eða þjóðernishyggju og á stríðstím- um voru margar þeirra lítið annað en áróðursverk á alla kanta sem blessun- arlega hafa gleymst eða glatast. En áhrif Hiroshima og Nagasaki voru mikil á kvikmyndagerð. Stríðsmynd- ir einkenndust yfirleitt af annaðhvort ótta og ofsóknaræði eða ákalli á frið. Stundum er farið bil beggja og gert grín að öllu heila klabbinu. Það er vand- meðfarið og erfitt að gera „gaman“- stríðsmynd en þegar vel tekst til er erfitt að slá þær út. Af einhverjum orsökum hefur þetta tekist mun betur í sjónvarpi, s.s. Allo Allo, Dad’s Army og Hogan’s Heroes. Eins og áður hefur verið getið þá ganga flestar greinar í gegnum endur- skoðun með tímanum og það á vel við um stríðsmyndir. Hið sígilda „hreina" form greinarinnar hefur verið endur- skoðað í bak og fyrir og er farið að hafa áhrif á nýrri útgáfur. Víetnam-myndin kom og fór, flestar þeirra höfðu meiri áhuga á að sýna hvað gerðist eftir stríðið fremur en í því (t.d. Taxi Driver og Coming Home). Myndir um Persa- flóa eru enn fáar en mun vafalítið fjölga með tímanum. Mörgum finnst stríðsmyndin stöðnuð, að hún sé lítið annað en heilalausasta form afþreyingar og höfði til frekar aumra hvata. Þetta er bæði rétt og ekki að dómi ritara; þegar stríðsmynd- ir eru gerðar sem hrein afþreying stýra förinni hvatir sem eru í besta falli óæskilegar. Þegar þær eru hins vegar gerðar sem eitthvað meira, vekja umhugsun og hafa tilgang fram yfir gróðahugsjón verða þær meðal þess besta sem er gert. Hér eru svo nokkrar af merkustu stríðsmyndum sem hafa verið gerðar í engri sérstakri röð og uppröðunin háð umtalsverðum duttlungum ritara: 14 Dagfari • nóvember 2007

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.