Dagfari - 01.11.2007, Blaðsíða 22
um í Reykjavík. Þá varð allt vitlaust og
ráðist á okkur á þeim forsendum að
við værum að spilla æskulýðnum með
kommúnistaáróðri. Það var einfald-
lega ekki mögulegt að koma skynsam-
legri umræðu af stað.
Það vakti því athygli mína að í bókinni
Óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhann-
esson, sem ijallar um símahleranir á
þessum tíma, er hvergi minnst einu
orði á ólöglegar handtökur eða ann-
Mynd: MBÓ
að slíkt. Ég trúði því varla fyrst að í
bók upp á rúmar 300 síður er hvorki
minnst á handtökur og fangelsanir né
komið nálægt öllu því sem var að ger-
ast á þessum tíma.
Á íslandi ríkti veruleg ólga frá 1961 og
fram á áttunda áratuginn og um leið
var gríðarleg þöggun í þessu samfé-
lagi sem hefur loðað við alveg síðan. I
dag er þetta þó af öðrum toga: Nú eru
nokkrir menn sem á er hlustað en þeir
hafa því miður engin áhrif. Jón Ormur
Halldórsson og Þorvaldur Gylfason
eru t.d. menn sem hafa fylgst með og
vita hvað er að gerast með heiminn
og tala um það af skynsemi en það er
enginn sem hlustar á þá. Breytingin
frá því sem áður var er sú að það er
ekki hægt að smella neinum stimpli á
þessa menn og útmála þá sem brjálaða
kommúnista eins og var gert í gamla
daga.
Að því leyti hefur þetta breyst. Menn
sjá það nú að Víetnamstríðið, einn
höfuðglæpur 20. aldarinnar, er
hliðstæða Íraksstríðsins. Þokunni hef-
ur létt en þegar farið var inn 1 Víetnam
þótti almenningi það alveg sjálfsagt.
En þegar farið var inn í írak var stór
meirihluti þjóðarinnar á móti því. Ætli
munurinn sé því ekki sá að nú þegar
þokunni hefur létt er enginn tilbúinn
til að standa fyrir sannfæringu sinni.
Fjölmiðlalandslagið hefur gjörbreyst
að því leyti að blöðin eru full af frétt-
um af leikurum frá Hollywood og
Mogginn virðist vera eina blaðið í
dag sem einhver umræða er í. Það
hefði enginn trúað því í gamladaga að
þetta mundi snúast svona við en nú
ríkir ótrúleg blinda um að peningar
séu upphaf og endir alls. Mér finnst
þessi fjölmiðlaheimur alveg ömurleg-
ur miðað við það sem áður var. Þótt
hann hafi ekki verið góður í gamla
daga þá voru allavega hreinar línur og
það var tekist á. Ég er mjög svartsýnn
á framtíðina en trúi því nú samt að ein-
hverjir hljóti að geta komið vitinu fyrir
okkur. Það er öruggt að Bush og hans
lið hverfi á braut og
þá er vonandi að
það verði gjörbreyt-
ing. Þetta er kannski
bara bláeygt hjá mér
en mér finnst maður
verða að halda í
þessa von. Því ef
ekki þá erum við á Texti: Magnús
heljarþröm. Björn Ólafsson
FRIDUR.IS
VEFUR UMFRIÐAR- OG AFVOPNUNARMÁL
22
Dagfari • nóvember 2007