Dagfari - 01.11.2007, Síða 33
beitt herþotunum. Þeir þarfnast kunn-
áttu í að fljúga þeim og í að skjóta
flugskeytunum. Eitt stærsta verkefni
flughers hlýtur að vera þjálfun her-
flugmanna svo að þeir geti gert það
sem þeim er ætlað í stríði.
Ríkisstjórn íslands hefur ákveðið að
gera ísland að æfingasvæði fyrir her-
flugmenn NATO-ríkja. Því hefur verið
haldið fram, meðal annars af Árna
Páli Árnasyni þingmanni Samfylk-
ingarinnar og varaformanni utan-
ríkismálanefndar Alþingis, að hér sé
einkum um að ræða æfingar í einhvers
konar löggæsluaðgerðum. Hefur Árni
Páll til dæmis haldið því fram að mikil
áhersla sé lögð á frelsun gísla (sjá
grein hans í Morgunblaðinu 24. ágúst
síðastliðinn).
Ekki er um auðugan garð að gresja
þegar leitað er að dæmum um notkun
flugherja til frelsunar á gíslum. Að vísu
gerði ísraelsher miklar loftárásir á
íbúðahverfi á herteknu svæðunum og í
Líbanon á síðasta ári til að knýja fram
frelsun á ísraelskum hermönnum sem
teknir höfðu verið í gíslingu. í þessurn
loftárásum létust yfir 1.000 óbreyttir
borgarar. Ósennilegt er að Árni Páll
hafi haft þessar árásir í huga.
En hvað hafa Árni Páll og aðrir
stuðningsmenn heræfinga á íslensku
landi þá í huga? Jú, þeir eru mjög
áfram um að hér á íslandi séu svokall-
aðar sýnilegar varnir vegna einhverr-
ar óskilgreindrar ógnar sem enginn
veit almennilega hver er. Það hefur
enda aldrei verið skýrt út fyrir fólki og
telja þeir sig raunar ekki þurfa þess.
Svo augljóst megi það vera hverjum
manni að hér á íslandi sé svonefndra
hervarna þörf.
Þessi málflutningur heræfingasinna er
hriplekur. Og því kemur það kannski
síst á óvart að þeir koma ekki auga
á nokkuð sem öllum ætti þó að vera
ljóst - tengslin á milli athafna NATO-
herjanna hér og aðgerða þeirra annars
staðar í heiminum. Bandarískur her-
flugmaður, sem fær þjálfun á íslandi
og skýtur síðar flugskeytum á óbreytta
borgara í írak eða Afganistan, hefur
öðlast nokkurn hluta kunnáttunnar til
þess við æfingarnar hérlendis.
Sviptum hulunni af hinu aug-
ljósa
Ber Island þá enga ábyrgð á mannfall-
inu í þessum stríðshrjáðu löndum?
Getum við hér á landi látið eins og það
komi þessum heræfingum ekki við?
Eða er þetta ekki sami herinn sem æfir
sig hér og drepur óbreytta borgara úti
Frá mótmælum gegn heræfingum
í heimi? Er hægt að líta á þetta sem
tvennt aðskilið og algjörlega ótengt?
Auðvitað ekki. En því miður er meiri-
hluti íslenskra stjórnmálamanna
blindur á hið skýra orsakasamhengi
heræfinga og stríðsaðgerða. Hern-
aðarandstæðingar verða stöðugt að
vekja athygli á staðreyndunum og upp-
lýsa pólitíkusana og almenning um
hið augljósa.
Þórður Sveinsson
Myndir: Harpa Stefánsdóttir
LÖGFRÆÐISTOFA ATLA GÍSLASONAR HRL.
Ingólfsstræti 5, 4. hæð, sími: 562-2024
Dagfari • nóvember 2007
33