Fréttatíminn - 17.05.2013, Page 80
8 ÍSLENSKT GRÆNMETIVOR 2013Geymið blaðið
Einfaldleikinn er bestur þegar grilla á grænmeti. Það er í raun nóg að hafa salt og olíu og svo
þetta stórkostlega íslenska grænmeti“,
segir Völundur Snær Völundarson
matreiðslumaður, sem flestir þekkja úr
þáttunum „Delicious Iceland ,Gómsæta
Ísland“, sem sýndir voru á RÚV í
fyrrasumar. Þættirnir voru sýndir á bresku
sjónvarpsstöðinni BBC og einnig í yfir
fimmtíu löndum. Í þáttunum var farið
landshorna á milli á Íslandi og heilsað upp
á fólk sem sinnir ræktun, bústörfum og
hverju því sem viðkemur mat. Völundur
Snær ætlar að taka upp þráðinn aftur og
undirbýr nú þætti um íslenskt sjávarfang.
„Ég grilla helst á kolagrilli, en gasgrillin
eru einnig góð. Hægt er að leggja
viðarspæni í álpappír í gasgrillið og þá
kemur svipað bragð af matnum og af
kolagrilli“, segir Völundur, eða Völli Snær,
eins og landsmenn þekkja hann.
Í sumar bregður honum fyrir í
sjónvarpsauglýsingum, þar sem hann
kennir landsmönnum að grilla grænmeti
og gefur góðar uppskriftir.
„Mér finnst óskaplega gott að grilla
spergilkál, smá salt og smjör, það þarf
ekkert annað“, segir Völli Snær. „Ef ég á
að nefna uppáhalds grænmeti til að grilla
þá er það spergilkál, en þetta er auðvitað
allt svo gott að erfitt er að velja“.
Völli Snær er kominn heim eftir
fimmtán ára dvöl í útlöndum, þar af var
hann tólf ár á Bahamaeyjum og rak þar
veitingastað. Nú eru Hótel Borg og Nora
Magasin staðirnir hans.
„Nora Magasin er nýr staður við
hliðina á Borginni sem við opnuðum í
vor. Þar verður ferskleikinn í fyrirrúmi.
Þar verður opið fram yfir miðnætti á
virkum dögum og til þrjú um helgar.
Hægt er að fá léttan hádegisverð,
kvöldverð eða smárétti á góðu verði
og allt miðast þetta við hollustu og
ferskleika“.
Yfirkokkurinn á Nora Magasin er
Akane Sophie Monavon Youdogawa,
hún er frönsk í móðurætt og japönsk í
föðurætt og hún leiðir matargerðina, sem
er mjög spennandi þar sem hún þekkir vel
franskar og japanskar hefðir í matargerð.
Í sumar verður Völli Snær einnig með
veitingastaðinn Pallinn á Húsavík, en
þar notar hann aðeins grænmetið frá
Hveravöllum í Reykjahverfi. „Íslenska
grænmetið er miklu bragðmeira og
betra en það innflutta. Allt vex hægar
hér á Íslandi og það gerir þennan mikla
bragðmun“, segir Völli Snær og lét fylgja
nokkrar einfaldar uppskriftir af grilluðu
grænmeti.
Völli Snær kennir landsmönnum
að grilla grænmeti í sumar
„Mér finnst
óskaplega
gott að grilla
spergilkál,
smá salt og
smjör, það
þarf ekkert
annað.“
„Íslenska grænmetið er miklu bragðmeira og betra en það innflutta. Allt vex hægar hér á Íslandi og það gerir þennan mikla bragðmun.“
Sæt, safarík
og full af
C-vítamíni
Framboð af íslenskum jarðarberjum verður
meira í sumar en verið hefur.
Garðyrkjubændur á suður- og
vesturlandi eru að bregðast við
mjög mikilli eftirspurn eftir
jarðarberjum. Íslensku berin
eru rómuð fyrir bragðgæði
og ferskleika, enda stutt á
markaðinn frá ræktunarstað.
Jarðarber eru ræktuð í
góðurhúsum hér á landi og
koma á markað í maí/ júní og
eru fáanleg fram á haust. Í sumar
koma á markaðinn jarðarber
frá fjórum garðyrkjustöðvum,
Sólbyrgi, Jarðarberjalandi,
Silfurtúni og Kvistum.
Jarðarber eru ekki
eiginleg ber heldur blómbotn
jarðarberjablómsins. Litlu
örðurnar sem líta út eins og
fræ eru hin eiginlegu aldin
jarðarbersins. Þau geyma
hvert um sig lítið fræ. Líkt
og brómber og hindber eru
jarðarber samsettur ávöxtur.
Jarðarber hafa verið ræktuð
frá ómunatíð. Þau voru í miklu
uppáhaldi hjá rómverskum
keisurum og þegar Spánverjar
komu til Ameríku kynntust þeir
jarðarberjarækt indíána. Þar
voru berin smá og uxu víða villt.
Frönskum garðyrkjumönnum
tókst að rækta stór jarðarber
snemma á 18. öld með því að
blanda saman ræktun evrópskra
berja og berja frá Chile.
Jarðarber vaxa víða villt hér á
landi en þau eru smá og oft ná
þau ekki fullum þroska.
Oft er sagt að jarðarber
séu tákn ástar og rómantíkur.
Þau eru borin fram
súkkulaðihjúpuð með
kampavíni þegar við á. Jarðarber
með rjóma er dásamlegur
eftirréttur við öll tækifæri.
NæriNGarGildi
Jarðarber eru mjög rík af
C-vítamíni. Í 100 gr. af ferskum
jarðarberjum eru aðeins 45
hitaeiningar. Margir telja að
jarðarber hafi góð áhrif á gigt.
GeymSla
Þegar velja á jarðarber er
mikilvægt að þau séu stinn, þurr
og vel rauð. Best er að fjarlægja
ekki krónublöð og stilk fyrr en
rétt áður en berin eru skoluð
og þeirra er neytt. Ef krónublöð
og stilkur eru fjarlægð áður en
berin eru skoluð sjúga þau í sig
vatn og linast.
Þegar frysta á jarðarber
er best að skola þau undir
rennandi köldu vatni með
krónublöðunum á og frysta
í bökkum. Þegar berin eru
gegnfrosin má pakka þeim í
aðrar umbúðir og frysta þannig.
jarðarber Ferskur salatdiskur
Salatið rifið sundur í blöð, þvegið og þerrað og síðan er
blöðunum raðað á stóran, kringlóttan disk eða fat. Tómatarnir
skornir í báta, paprikurnar í ræmur og eggin í báta. Osturinn í bita.
Öllu raðað ofan á salatblöðin og basilikuknippi sett í miðjuna.
Kryddað með pipar og sjávarsalti og berið fram með nógu af
góðu brauði, annað hvort sem forréttur eða léttur aðalréttur. - NR
grand salat
3-4 íslenskir tómatar, vel þroskaðir
1-2 íslenskar paprikur, ferskar eða grillaðar
2 – 3 harðsoðin egg
½ höfðingi, dala-brie eða annar ostur
hráskinka eða annað kjötálegg í sneiðum
grænar eða svartar ólífur
½ knippi fersk basilika
nýmalaður pipar
sjávarsalt
Grillaðir tómatar
Efsti hluti skorinn af og tómaturinn fræhreinsaaður
Rauðlauk, rjómapiparosti og steinselju blandað
saman
Tómatarnir fylltir með blöndunni
Blómkál á Grillið
Blómkálið snyrt og skorið í litla vendi
Salt, pipar og smjör sett yfir
öllu pakkað inn í álpappír
Grænmeti Grillað á spjóti
Gúrkur, sveppir, rauðlaukur, spergilkál og tómatar
þræddir á spjót
Salt og pipar
Grillaður eftirréttur
Jarðarber þrædd upp á spjót
Hunang, minta og engifer hrært saman og penslað
á berin
paprika á Grillið
Rauð, græn og gul paprika
Velt upp úr rósmarin og hunangi
Gulrætur, hnúðkál oG rófur
Grænmetið skorið í strimla
Grænmetið grillað í eldföstu móti eða álbakka
Timjan og smjör sett yfir
fylltir sveppir
Fóturinn tekinn af sveppunum
Hatturinn fylltur með döðlum, camenbertosti og
graslauk