Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUPAGUR
Eiga lögreglumenn að hafa að-
gang að skotvopnum í lœstum
hirslum í lögreglubílum?
Já
Nei
69,6%
50,4%
SPURNING DAGSINS í DAG:
Ferð þú eins oft til tannlæknis
og þér finnst þú þurfa?
Segðu skoðun þlna á visir.is vism
Lögmaður hjóna á Blönduósi segir engin lög hafa verið brotin við rannsókn kynferðisbrotamáls:
Kvartar til Persónuverndar vegna
dÓmsiviÁL Móðir unglingsstúlku hefur lagt
fram kvörtun til Persónuverndar vegna birt-
ingar dagbókar stúlkunnar í Héraðsdómi
Norðurlands vestra. Dóttir konunnar kærði
lögreglumann á Blönduósi fyrir að hafa káfað
á sér innanklæða í fyrra, þegar hún var 15 ára.
Málið er nú komið til Héraðsdóms Norður-
lands vestra á ný, eftir sýknu þar og ógildingu
hennar fyrir Hæstarétti.
Ástæða kvörtunar móðurinnar er sú að eig-
inkona ákærða, sem er skólastjóri grunnskól-
ans á Blönduósi, lagði fram dagbók stúlkunnar
til ríkissaksóknara. Þá segist stúlkan ekki hafa
gefið samþykki sitt fyrir því að bókin, sem er á
tölvutæku formi, yrði send til skólayfirvalda á
sínum tíma. í erindinu segir að meðferð skóla-
stjórans á einkamálefnum stúlkunnar sem lyst
er í dóminum sé gróft brot á grundvallarreglu
um friðhelgi einkalífs. Sökum þess að málið er
enn fyrir dómi, vísaði Persónuvernd því frá.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður skóla-
stjórans og eiginmanns hennar, segir að skóla-
stjórinn hafi afhent dagbókina, eftir að krafa
þess efnis barst frá ríkissaksóknara, eins og
henni bar skylda til.
„Þá verður að líta svo á að héraðsdómur hafi
einnig metið það svo að efni dagbókarinnar
gæti skipt máli varðandi niðurstöðu sakamáls-
ins,“ segir meðal annars í bréfi Vilhjálms til
Persónuverndar. Því er alfarið hafnað að skóla-
stjórinn hafi brotið lög með áframsendingu
dagbókarinnar. - sv
dagbókar
Hægt að koma í veg fyrir slys:
Eitt bílslys varð
á dag á árinu
löggæsla Um það bil eitt slys varð á
hverjum degi ársins 2011, eða sam-
tals 358 á tímabilinu 1. janúar til 27.
desember, samkvæmt bráðabirgða-
tölum lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu um umferðarslys.
Tölur um fjölda slasaðra liggja
ekki fyrir en ljóst er að slasaðir eru
nokkuð fleiri en fjöldi slysa segir til
um. Meiðsli fólks eru meðal annars
tognanir, beinbrot, innvortis meiðsl,
mænuskaðar og höfuðáverkar.
Lögreglu telur að hægt sé að
koma í veg fyrir umferðarslys legg-
ist allir á eitt um að aka gætilega.
Til að freista þess að sýna fram á
tengsl orsaka og afleiðinga slysa
mun lögreglan senda út tilkynningu
tvisvar í viku með upplýsingum um
umferðarslys sem hún kemur að. -js
AKRANES
Þjófur olli stórskemmdum
Lögreglunni á Akranesi barst til-
kynning um óvenjulegan þjófnað
fyrir jól. Þá hafði verið brotist inn í
húsnæði sem staðið hefur autt og
þaðan stolið hitaveitugrind í heilu
lagi. Eftir þjófnaðinn var tengt á milli
með vatnsslöngu en hún hélt ekki
og skemmdist húsnæðið töluvert
vegna leka.
SKIPULAGSWIÁL
Hringbraut öll í 101
Hringbraut mun hér eftir öll tilheyra
póstnúmeri 101. Þau hús sem áður
töldusttil póstnúmers 107fluttust í
101 um síðustu mánaðamót. Áður
voru hús norðvestan Melatorgs, við
Suðurgötu, I póstnúmeri 107, en þau
suðaustan torgsins í 101. Ibúum sem
flytjast milli númera hefur verið til-
kynnt um breytinguna.
Sérfrxðingorlbilum
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is
W VI fi' 1 ir \ j \
M? IbV Mlf ' n 1
I .i 1 Wm [f í-
■ i H V' ' j|
§&' m l\ jm n wflgw SBBf \ 'Ws j
Dregið hefur verið í happdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota YarisTerra 1.0 að verðmæti kr. 2.590.000 hverbifreið
komu á miða númer:
10800 14880 27609 60219 73911 74669 78943 94218 101110
Toyota i.Q 1.0 að verðmæti kr 2.140.000 kom á miða númer.
35971 43987 53555 58022 88656
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan
stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju.
Handhafarvinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu félagsins að
Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535-0900.
Byrjað verðurað afhenda vinninga 5. janúar2012.
STYRKTARFÉLA6 LAMAÐRA OG FATLAÐRA
íslenskur arkitekt
þéttir danska byggð
Framlag tveggja arkitekta, annars íslensks og hins dansks, varð hlutskarpast í
samkeppni Europanll um endurskipulagningu og þéttingu byggðar í Allerod í
Danmörku. Opnar nýútskrifuðum arkitektum dyr og vekur á þeim athygli.
TÖLVUGERÐ FRAMTÍÐARSÝN Svona gæti orðið umhorfs I Ny Blovsrod I Allered þegar
unnið hefurverið úrvinningstillögunni I Europanll-samkeppninni. mvnd/mew
skipulagsmál íslensk-danskt
framlag fór með sigur úr býtum í
samkeppni um endurskipulag 50
hektara svæðis í sveitarfélaginu
Allerpd í Danmörku, skammt norð-
ur af Kaupmannahöfn. Keppnin er
haldin annað hvert ár undir merkj-
um Europan, en að henni standa 20
Evrópulönd. Þátt geta tekið arki-
tektar undir 40 ára aldri. Löndin
leggja fram svæði sem þarfnast
endurskipulagningar og leggja
ungir arkitektar fram tillögur um
úrvinnslu þeirra.
Að vinningstillögunni í Allerpd
standa arkitektarnir Eyrún
Margrét Stefánsdóttir og Mette
Blankenberg, en þær útskrifuðust
saman úr arkitektanámi í Kaup-
mannahöfn fyrir einu og hálfu ári.
„Þetta er náttúrlega mikið tæki-
færi. Við erum báðar ungar og
óreyndar og þetta opnar okkur tví-
mælalaust dyr víða,“ segir Eyrún.
Þá skemmir vinningsféð ekki fyrir,
12 þúsund evrur, eða sem sam-
svarar tæpum tveimur milljónum
íslenskra króna.
„Síðan á eftir að koma í ljós
hvað við höfum mikla aðkomu að
úrvinnslu og áframhaldandi vinnu
með tillöguna,“ segir Eyrún, en
næsti fundur með forsvarsmönn-
um sveitarfélagsins er í janúar.
„Þeir voru hins vegar áhugasamir
um samstarf við okkur. Tilkynnt
var um úrslitin 16. desember og
við vorum komnar á fund til þeirra
klukkan tíu daginn eftir. Þannig að
við munum að öllum líkindum koma
eitthvað að lokaútfærslum."
í umsögn um tillöguna kemur
fram að meðal þess sem orðið hafi
til þess að hún
varð ofan á hafi
verið hversu
sveigjanleg hún
var. Markmiðið
er að þétta
byggð og mæta
um leið kröfum
sveitarfélagsins
um vistvæna
lifnaðarhætti.
„Kommúnan er
með miklar væntingar og mark-
mið um að verða koltvísýringslaus
árið 2020. Við fórum því í gang með
skipulagningu svæðisins með það
að takmarki að það yrði laust undan
allri bílaumferð,“ segir Eyrún. Þá
segir hún hugað að því hvernig
hvernig hús séu staðsett í landslagi
og hæðarlínur séu hafðar þannig að
útsýni á milli íbúða og blokka verði
sem best. Þá er nýbreytni í hönn-
un varðandi upptöku regnvatns til
margvíslegra nota. „Til dæmis taka
ákveðin svæði á sig breytta mynd
eftir veðráttu og árstíðum þegar
pollar stækka og minnka," segir
hún. „Þá færðum við sólarsellur
niður af húsþökum og reistum hálf-
gerð skýli, bæði gegn rigningu og
sól. Þar gæti verið svona tilviljana-
kenndur nágrannahittingur."
Eyrún segir til standa að fyrstu
íbúðirnar verði byggðar árið 2015
eða jafnvel fyrr, því töluverður
áhugi sé á verkefninu ytra.
olikr@frettabladid.is
EYRÚN MARGRÉT
STEFÁNSDÓTTIR
Aldrei lengra tímabil með samfelldri snjóhulu sunnan- og vestanlands:
Snjóamet slegið í höfuðborginni
veður Snjór hefur nú legið yfir
höfuðborgarsvæðinu og nágrenni
þess samfleytt frá 26. nóvember.
Aldrei áður frá upphafi mælinga
hefur snjór verið samfleytt svo
lengi á fyrri hluta vetrar, segir
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu íslands.
„Þetta hefur ekki verið sérstak-
lega mikil snjódýpt, en hann er
óvenju þrálátur," segir Trausti. Ekk-
ert bendir til þess að snjórinn fari
á næstunni, þó að spáð sé örlítilli
hláku um helgina.
Snjórinn hefur ekki verið sér-
staklega mikill allt tímabilið, en
náði þó 21 sentímetra dýpt á þriðju-
dag, segir Trausti. Að meðaltali
hefur snjórinn verið á bilinu 13 til
14 sentímetra djúpur á tímabilinu.
Þó að snjórinn hafi spillt færð hefur
hann ekki valdið verulegum vand-
ræðum. Það gerist yfirleitt ekki fyrr
en snjórinn nær 28 til 30 sentímetra
dýpt, segir Trausti.
Desember hefur verið kaldur,
METSnjórinn hefur ekki verið sérlega djúpur f höfuðborginni það sem af er vetri en
hann hefur verið óvenju þrálátur. fréttablaðið/gva
og miðað við mælingar í gær er mánuður frá því mælingar hófust,
hann sautjándi kaldasti desember- segir Trausti. - bj