Fréttablaðið - 29.12.2011, Qupperneq 34
10 MARKAÐURINN
29. DESEMBER 2011 FIMMTUDAGUR
NBA komin upp úr skotgröfunum
NBA-deildin er komin af stað eftir harðar deilur. Leikmenn sýndu mikla samstöðu. Framkvæmdastjóri NBA, David Stern, segir verkfallið hafa
valdið „óbætanlegu tjóni" en það muni styrkja deildina þegar fram í sækir.
ÍÞRÓTTIR
Magnús Halldórsson
magnush@365.is
NBA-deildin í körfubolta er loksins
skriðin af stað eftir harðar deilur leik-
manna og forsvarsmanna NBA-deildar-
innar. Leikmenn fóru í verkfall vegna
deilna sem snerust um peninga, en eru
nú komnir upp úr skotgröfunum eftir að
hafa sýnt mikla samstöðu í deilunum við
forsvarsmenn deildarkeppninnar sem að
lokum leiddi til samkomulags.
Leikmenn vildu fá meiri hlutdeild í
tekjunum sem NBA-deildin fær en for-
svarsmenn deildarinnar töldu kröfur
leikmanna ganga alltof langt. Eftir meira
en hálfs árs daglegar samningaviðræð-
ur, ýmist bak við tjöldin eða á opinberum
samningafundum, tókst að ná samkomu-
lagi sem báðir deilendur gátu sætt sig
við. „NBA-deildinni hefur verið bjarg-
að,“ sagði David Stern, stjórnandi NBA-
deildarinnar, þegar samkomulagið var
undirritað. Derek Fisher, fyrrverandi
leikmaður LA Lakers, Utah og Golden
State Warriors, leiddi samningaviðræð-
urnar fyrir hönd leikmanna deildarinn-
ar. „Við tókum mikilvægt skref fram á
við, en sjálfir teljum við að leikmenn
deildarinnar eigi að fá stærri hlutdeild í
þeim miklu tekjum sem verða til í kring-
um NBA-deildina,“ sagði Fisher.
NBA-deildin risaiðnaður
Þó liðin 30 sem eru í NBA-deildinni
keppi sín á milli í íþróttahöllum í Banda-
ríkjunum og Kanada þá er heimavöllur
NBA í reynd heimurinn allur. Áætlað
er að heildar efnahagsleg áhrif NBA-
körfuboltans á ári séu yfir 5 milljarðar
dollara, eða sem nemur tæplega 600
milljörðum króna. Þá er horft til sjón-
varpsáhorfs á leiki og áhrifa á auglýs-
ingaiðnaðinn, sölu á varningi liðanna,
sölu á miðum á leiki og þess háttar.
Meginröksemd leikmannasamtak-
anna í samningaviðræðunum við NBA-
deildina var ekki síst að horfa yrði til
þess aðdráttarafls sem leikmennirn-
* ir sjálfir hefðu. „NBA
\ á allt undir leikmönn-
* unum, það væri eng-
inn körfubolti án leik-
manna,“ sagði Fisher
þegar deilan var í sem
mestum hnút, og lagði
þannig áherslu á að leik-
menn ættu rétt á að fá
meiri hlutdeild í heild-
artekjum. Svo einfalt er
þó málið ekki. NBA-liðin hafa mörg hver
verið að berjast við erfiðan rekstur und-
anfarin ár og þar vega þyngst himinhá
laun leikmanna. Þau hafa hækkað mikið
og eru að meðaltali á bilinu 50 til 60 pró-
sent af heildar rekstrarkostnaði liðanna,
samkvæmt frétt New York Times. Stern
hefur sagt að þetta hlutfall ætti að vera
nærri 30%.
Styrkur til framtiðar
NBA-deildin hefur vaxið jafnt og þétt
undanfarin ár eftir fremur dapran tíma.
Eftir að hetjurnar, sem m.a. mynd-
uðu Draumaliðið á Ólympíuleikunum í
Barcelona 1998, hættu ein af annarri
minnkaði áhuginn á NBA-deildinni tölu-
vert mikið á heimsvísu. Miðasala datt
niður um tíma, en tók síðan kipp upp á
við aftur og hefur farið vaxandi frá ári
til árs, ekki síst vegna nýrrar kynslóð-
ar frábærra leikmanna með mikið að-
dráttarafl. Þar fara ekki síst fremstir
í flokki Lebron James hjá Miami Heat,
Kobe Bryant hjá LA Lakers og Derek
Rose hjá Chicago Bulls.
Miklar áhyggjur eru þó af stöðu mála
núna, vegna þeirra áhrifa sem verkfall
leikmanna hefur þegar haft á NBA-deild-
ina. Markaðsstarf hefur ekki getað farið
af stað, nema að litlu leyti, sem hefur
valdið liðunum í deildinni miklum erfið-
leikum. „Við munum koma sterkari út úr
þessu í framtíðinni en tjónið er óbætan-
legt,“ svaraði David Stern er hann var
spurður um hver hefðu verið áhrifin af
verkfallinu.
A ^
DEREK FISHER
j.meiraprof.is
Farðu ekki án réttinda á vinnuvélar til
Evrópu, vertu klár í allt, heima sem erlendis
Skjót leió
til starfsmenntunar
Réttindanámskeiö fyrir stjórnendur vinnuvéla, kléraöu þetta ó móöurmálinu ef þú hefur
hug ó starfi í Evrópu. Hægt er aö byrja alla föstudaga kl. 17.30, námiö tekur 3 helgar,
sjá nánar ó heimasíöunni meiraprof.is eöa hringdu I sfma 588 45 □□
NÁMSKEIÐ SEM GEFA RÉTT1NDI UM GJORVALLA EVRÓPU
Skapaðu þár þitt eigið góðæri
ÖLL ÖKURÉTTIIMDI - ÖLL VIIMIMUVÉLARÉTTIIMDI
Nómskeiö til aukinno ökuréttinda og vinnuvélanémskoiöiö gefur eögeng eö þúsundum óhugeveröra starfa.
Fyrir þó sem ekki eru meö umtalsveróa framhaldsmenntun er þaö ekki spurning aó afla aér þeirra
réttinda sem þeaai nðmakeió veita. Fjöldi fólks meö mikia sérmenntun aækir þó þessi nómskeiö
til aö eiga möguleíka é aó komast út fró papplr og tölvum og Iðta til sfn taka ó sverum trukkum
og öflugum vinnuvélum, þó ekki sé nema I sumarfrfum.
Starfamenn skólans eru meó éralanga reynslu I kannalu ó þessu aviói og þjólfaöir I aó kenna
fólki sem aö öllu jöfnu hefur skóla ekki efst ó vinsælderlietenum. Viö starfsmenn skólans
kappkostum aö flytja hagnýtan fróóleik sem kemur nemendum og vinnuveitendum
þeirra ( og öltum vegfarendum ) aö gagni ella dago. Viö kennararnir trúum lika ó lif fyrir dauóann
og leggjum okkur fram um aó námið sé ekki bera hegnýtt. heldur einnig skemmtilegt.
Ekki bióa eftir tlma til aó framkvæma þetta sem þú hofur hugsoó lengi um. þaó er annaó oró yfir aldrei.
Búóu tfmann til. stattu meó sjálfum þér og byrjaóu strax. Vió fögnum þvl aó fá aó hitta þig
og aó fá þannig tækifæri ó aó auka órangur þinn I llfinu.
ALLAR FREKARl UPPLÝSIIMGAR í SÍMA 588 45 00
KLETTAGÖRÐUM 11 [ aohúslnu ) REYKJAVfK
SÉRSTAÐA NBA-DEILDARINNAR
Ólíkt mörgum af stærstu deildarkeppnum heimsins ( knattspyrnunni eru
peningarnir í NBA-deildinni ekki mestir i viðskiptum með leikmenn. Reglur
deildarinnar gera ráð fyrir að leikmenn gangi ekki kaupum og sölum fyrir hærri
fjárhæðir en l milljón dollara, eða sem nemur ll5 milljónum króna. Algengast
er því að leikmenn fari á milli liða í skiptum fyrir aðra leikmenn. Deildarkeppn-
in er löng og ströng. Hvert lið spilaryfir 80 leiki á tímabili, og um 100 leiki fari
það alla leið í úrslit.
Óheimilt er að reka félög með botnlausu tapi, ólíkt því sem þekkist t.d. (
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Manchester City setti á dögunum met í tap-
rekstri þegar tilkynnt var um yfir 190 milljóna punda tap félagsins I fyrra. Þar
vega kaup á leikmönnum larigsamlega þyngst. Til þess að sporna gegn þessu
samþykkja öll félögin að hafa eftirlit með rekstri hjá hverju öðru. Þetta er m.a.
útfært með sérstöku ráði innan NBA sem hefur það verkefni eitt að hafa eftirlit
með rekstri félaganna. Brjóti þau gegn reglunum hefur deildin heimild til þess
að hindra þátttöku þeirra í keppni deildarinnar.
Helsti drifkraftur deildarinnar hefur ávallt verið öflugt markaðsstarf. Það er
að hluta borið uppi af NBA-deildinni sjálfri og slðan af félögunum. Þau vinna
saman að dreifingu á vörum inn á markaði um allan heiminn, til þess að auka
hagkvæmni og halda I gildin um að orðspor NBA gangi framar orðspori félaga
eða einstakra leikmanna.
Ekki er langt slðan það náðist samkomulag um að taka leikmenn I lyfja-
próf. David Stern náði því í gegn eftir mikla baráttu. Prófin eru þó ófullkomin
enn sem komið er, og fara ekki fram með sama hætti og I mörgum öðrum
íþróttagreinum. Sérstaklega er prófað fyrir fíkninefnanotkun, en síðan eru leik-
menn teknir I skipulagðar prófanir á fyrirframákveðnum tímasetningum. Þetta
hefur verið gagnrýnt nokkuð, þar sem leikmenn geta einfaldlega passað upp á
að ná prófunum þegar þau eru tekin. En verið síðan á sterum þess á milli.