Fréttablaðið - 29.12.2011, Side 66
42
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUDAGUR
sport
líS sport@fre
sport@frettabIadid. is
ELÍAS MÁR HALLDÓRSSON handknattleiksmaður er sagður vera á heimleið frá Noregi.
Bæði Haukar og HK hafa mikinn áhuga á að fá leikmanninn sem spilaði áður með báðum liðum.
ÚRSLIT
Deildarbikar karla:
Haukar-FH 25-20
Haukar - Mörk (skot): Stefán Rafn Sigurmanns-
son 7 (15/1), Þórður Rafn Guðmundsson 5 (6),
Gylfi Gylfason 4/3 (5/4), Jónatan Ingi Jónsson 3
(3), Sveinn Þorgeirsson 3 (4), Heimir Óli Heimis-
son 1 (1), Árni Steinn Steinþórsson 1 (3), Freyr
Brynjarsson 1 (3).
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 17 (36/3,
47%), Birkir Ivar Guðmundsson (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 2 ( Gylfi, Freyr)
FÍskuð vfti: 3 ( Þórður 2, Árni )
Utan vallar: 6 mínútur.
FH - Mörk (skot): Ari Magnús Þorgeirsson 5 (5),
Þorkell Magnússon 4/4 (6/4), Sigurður Ágústs-
son 3 (4), Hjalti Þór Pálmason 3 (7), örn Ingi
Bjarkason 2 (4), Atli Rúnar Steinþórsson 1 (2),
Andri Berg Haraldsson 1 (4), Halldór Guðjónsson
1 (4), Baldvin Þorsteinsson (3),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 4 (23/2,
17%), Pálmar Pétursson 3/2 (9/3, 33%),
Hraðaupphlaup: 4 (Ari 4)
Fiskuð vfti: 1 (Atli )
Utan vallar: 6 mínútur.
Valur-Fram 30-25
Valur Mörk (skot): Dagný Skúladóttir 7 (7),
Hrafnhildur ósk Skúladóttir 6 (8/1), Þorgerður
Anna Atladóttir 6 (9), Karólína B. Gunnarsdóttir
3 (3), Ágústa Edda Bjórnsdóttir 3 (6/1), Kristín
Guðmundsdóttir 3/1 (8/1), Heiðdís Guðmunds-
dóttir 1 (1), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1 (3).
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 11 (34/3,
32%), Sigrfður Arnfjörð Ólafsdóttir 1 (3/2, 33%),
Hraðaupphlaup: 8 (Dagný 6, Karólfna 2)
Fiskuð víti: 3 ( Anna Úrsúla 3)
Utan vallar: 4 mínútur.
Fram - Mörk (skot): Stella Sigurðardóttir 7/2
(14/2), Elísabet Gunnarsdóttir 5/3 (5/3), Ásta
Birna Gunnarsdóttir 4 (7), Birna Berg Haralds-
dóttir 4 (9), Sunna Jónsdóttir 3 (4), Sigurbjörg
Jóhannsdóttir 2 (10),
Varin skot: Guðrún Maríasd. 16/1 (46/2, 35%),
Hraðaupphlaup: 2 (Stella, Elísabet)
Fiskuð víti: 5 ( Elfsabet 4, Ásta Birna )
Utan vallar: 6 mfnútur.
Luis Suárez:
Dæmdur í eins
leiks bann
fótbolti Luis Suárez, leikmaður
Liverpool, hefur verið dæmdur
í eins leiks bann fyrir að gefa
stuðningsmönnum Fulham
fingurinn í leik liðanna í upphafi
mánaðarins.
Suárez fékk á dögunum átta
leikja bann fyrir að vera með
kynþáttaníð í garð Patrice Evra
hjá Manchester United. Áfrýjun-
arfrestur er þó ekki liðinn út og
hefur bannið því ekki enn tekið
gildi.
Suárez játaði sök í þessu máli
og verður því í banni þegar Liver-
pool mætir Newcastle í ensku r
úrvalsdeildinni á föstudagskvöld-
ið. Hann var sektaður um 20 þús-
und pund.
Liverpool var einnig sektað
um 20 þúsund pund fyrir að hafa
ekki stjórn á sínum leikmönnum í
umræddum leik gegn Fulham.
- esá
STAPPAÐ Gamla íþróttahúsið við Strandgötu var þéttsetið í gær. fréttablaðib/danIel
Haukar og Valur fögnuðu
Bestu handboltalið landsins í karla- og kvennaflokki um þessar mundir fögn-
uðu sigri í deildarbikarkeppninni í gær. Úrslitaleikirnir báðir ollu nokkrum
vonbrigðum enda var afar lítil spenna í þeim báðum.
FH-ingar náðu að minnka mun-
inn í eitt mark eftir gott hraðaupp-
hlaupsmark um miðbik fyrri hálf-
leiksins en eftir það tóku Haukar
völdin og juku forystu sína jafnt
og þétt og voru að lokum með fjög-
urra marka forystu þegar flautað
var til hálfleiks.
Haukar skelltu í lás á upphafs-
mínútum síðari hálfleiksins og
spiluðu þeir virkilega sterka vörn
ásamt góðri markvörslu sem FH-
ingar áttu fá svör við.
Haukar héldu áfram að auka
forystuna og var hún komin í átta
mörk snemma í hálfleiknum. FH
tókst að minnka muninn í sex mörk
stuttu seinna með tveimur mörk-
um frá Sigurði Ágústssyni en aftur
svöruðu Haukar og voru þeir með
átta marka forystu um miðbik
hálfleiksins.
FH-ingar voru þó ekki alveg
hættir því að þeim tókst að minnka
muninn jafnt og þétt og voru þeir
einungis þremur mörkum undir
þegar sjö mínútur voru eftir af
leiknum.
Lokamínúturnar voru æsispenn-
andi og fengu FH-ingar dæmda á
sig tveggja mínútna brottvísun
þegar fimm mínútur voru eftir af
leiknum ásamt því að ísak Rafns-
son var rekinn af velli fyrir ljótt
brot í lok leiks. Haukar nýttu sér
liðsmuninn og unnu að lokum
fimm marka sigur. - kPt. shf
handbolti Topplið Nl-deildanna,
Haukar og Valur, lentu í litlum
vandræðum með andstæðinga
sína þegar úrslitaleikir deildar-
bikarsins fóru fram í íþróttahús-
inu við Strandgötu í gær.
Valsstúlkur unnu í gær annað
árið í röð sigur í deildarbikar-
keppni kvenna í handbolta eftir
sigur á Fram. Fyrstu mínútur
leiksins voru í járnum en þegar
korter var liðið af fyrri hálfleik
í stöðunni 8-6 tók Valur leikhlé
og eftir það var ekki aftur snúið.
Þær kláruðu hálfleikinn á góðum
10-2 kafla og hleyptu Fram aldrei
aftur inn í leikinn og unnu að
Iokum öruggan sigur.
„Það var auðvitað erfiður
undirbúningur fyrir þennan leik,
stelpurnar eru nýkomnar aftur
frá Brasilíu og margar hverjar
þreyttar. Við vinnum hins vegar
mikið út frá liðsheild, þær spila
alltaf allar fyrir sigrinum og þær
fá hrós fyrir hvernig þær koma
inn í alla leiki, þetta eru sannir
afreksíþróttamenn," sagði Stefán
Arnarson, þjálfari Vals.
„Þetta er þroskað lið sem veit
að það þarf að hafa fyrir hlut-
unum og ef þú leggur þig fram
þá uppskerðu árangur. Þegar við
tökum leikhlé fer vörnin okkar að
virka, Jenný fer að verja í mark-
inu og við fáum hraðaupphlaupin
í gang, Fram náðu aldrei vinna
BESTAR Valskonur lyfta bikarnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANlEL
sig aftur inn eftir það,“ sagði
Stefán.
„Það er alltaf sárt að tapa
úrslitaleik en ég er að mörgu leyti
mjög sáttur með liðið, það voru
margir góðir hlutir hérna í dag. Á
tíu mínútna kafla í fyrri hálfleik
ná þær sex marka forystu og það
er allt of mikið gegn liði eins og
Val,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari
Fram.
Öruggt hjá Haukum gegn FH
Leikur Hauka og FH var rafmagn-
aður og létu áhorfendur vel í sér
heyra í þessum Hafnarfjarðarslag.
Stefán Rafn Sigurmannsson,
leikmaður Hauka byrjaði leikinn
af krafti og var kominn með þrjú
mörk á fyrstu mínutunum. Mikil
barátta einkenndi fyrri hálfleikinn
og var það greinilegt að bæði lið
voru tilbúin að berjast fyrir mál-
staðnum.
Dimitar Berbatov:
Orðaður við
Leverkusen
fótbolti Forráðamenn þýska liðs-
ins Bayer Leverkusen eru sagðir
hafa áhuga á að fá Búlgarann
Dimitar Berbatov hjá Manchester
United aftur í sínar raðir.
Berbatov fékk lítið að spila
framan af tímabili en hefur nú
skorað í tveimur leikjum í röð -
nú síðast gerði hann þrennu í 5-0
sigri á Wigan.
Berbatov var á mála hjá
Leverkusen í fimm ár áður en
hann gekk til liðs við Tottenham
árið 2006 og svo Manchester
United tveimur árum síðar.
Samningur hans við United
rennur út í lok tímabilsins en
Alex Ferguson, stjóri United,
hefur hingað til ekki viljað selja
hann. United á einnig þann kost
að framlengja samninginn um
eitt ár til viðbótar en fresturinn
til þess rennur út 2. janúar næst-
komandi. - esá
GUÐMUNDUR Stendur í ströngu sem
þjálfari RN Löwen. nordic PHOTos/CEnY
Guðmundur nýtur trausts:
Metnaðarfullur
og nákvæmur
handbolti Thorsten Storm, fram-
kvæmdastjóri þýska úrvalsdeild-
arfélagsins Rhein-Neckar Löwen,
ber fullt traust til þjálfarans Guð-
mundar Guðmundssonar.
Guðmundur sagðist sjálfur í
viðtali við Fréttablaðið á dögun-
um finna fyrir trausti og óttaðist
ekki að missa starfið.
„Guðmundur er afar metnaðar-
fullur og nákvæmur starfsmaður.
Hann leikgreinir andstæðinginn
100 prósent og er eins vel undir-
búinn og kostur er,“ sagði Storm
við þýska fjölmiðla. „Hann er
hins vegar að þjálfa lið sem er
ekki eins vel samansett og æski-
legt væri. Þjálfarinn þarf tíma
til að móta sitt lið og þróa það.
Það þýðir ekkert að gagnrýna
þjálfarann þegar einstaklings-
mistök leikmanna ráða úrslitum á
vellinum. Mér finnst mjög gott að
vinna með Guðmundi.“ - esá
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 14. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 11. febrúar. 2012 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Aðkoma Jespers Nielsen að Rhein-Neckar Löwen:
Óvissan er ólíðandi
HANDBOLTI Síðustu þrjú árin hefur
danski skartgripasalinn „Kasi-Jes-
per“ Nielsen lagt meira en tíu millj-
ónir evra í þýska handboltafélagið
Rhein-Neckar Löwen. Nú virðast
tengsl hans við félagið vera að
rofna og var í gær fjallað um fjár-
hagslega framtíð Löwen í þýska
dagblaðinu Mannheimer Morgen.
„Ég vona að þessi mál kom-
ist fljótlega á hreint. Annars líða
allir fyrir það og það væri ekki
sanngjarnt," sagði framkvæmda-
stjórinn Thorsten Storm í samtali
við blaðið. Nielsen er þó enn með
styrktarsamning við Löwen sem
gildir til ársins 2015. Hvað tekur
við er óvíst en sjálfur neitaði Niel-
sen því að hann væri að stíga frá
borði. „Framkvæmdastjórinn virð-
ist vita eitthvað annað en ég. Það
er óvenjulegt - í hefðbundnum við-
skiptum ganga hlutirnir öðruvísi
fyrir sig,“ sagði Nielsen.
KASl-JESPER Rhein-Neckar Löwen hefur
fengið háar upphæðir frá Jesper Nielsen
síðustu fjögur árin. mvnd/ac
Guðmundur Guðmundsson er
þjálfari liðsins og sagði í viðtali
við Fréttablaðið á dögunum að
tíðinda væri að vænta af þessum
málum. „Það mun koma í ljós fljót-
lega en það eru ýmis jákvæð teikn
hér á lofti.“
Alexander Petersson mun ganga
til liðs við Rhein-Neckar Löwen í
sumar. - esá