Heimilisritið - 01.03.1947, Side 12

Heimilisritið - 01.03.1947, Side 12
mætt plagg, sem hann vildi ekki glata fyrir nokkurn mun“. „Var það — leit það út eins og ávísun?“ spurði Emma eftirvænt- ingarfull. „Já — það var álíka stórt — svona“, og stúlkan leiknaði með báðum höndum út í loftið. „Það er vel líklegt, að það hafi einmitt verið ávísun. Já, nú þegar þér minnist á það, þori ég næstum að sverja, að það var ávísun“. Emma hugsaði sig ekki lengi um. ,.Ef þér viljið verða mér samferða til Roekhampton stöðvarinnar, skal ég sjá svo um, að þér hittið unnustann. Þér þurfið bara að bíða í hálftíma á stöðinni, svo kémur hann“. í Rockhampton hvatt.i Emma samferðakonu sína til að bíða ró- lega í biðsalnum, en sjálf hljóp hún eins hratt og hún komst heim til Prinsfólksins og flýtti sér beina leið upp í herbergi Rikarðs Purvis. Eftir fáeinar mínútur var húu þotin af stað í áttina til árinnar. Ríkarður Purvis heyrði hana brölta um borð. Hann kallaði til hennar og spurði, hvort hún vildi hleypa sér tafarlaust út, að öðrum kosti skyldi hann gefa henni eftirminnilega ráðningu. „Sparið hótanirnar“, svaraði Emma gegnum gatið. „Ef ég sleppi yður út, viljið þér þá lofa mér því að fara samstundis burt með lest- inni og láta ekki nokkurn hér sjá yður framar?“ „Þér hljótið að vera snarvitlaus ... “ sagði Purvis, en Emma greip fram í fyrir honum: „Ónei, en ég veit um stúlku, sem veröur það. Hún situr sem stendur heima hjá Agötu og bíður eftir yð- ur. Ilún er rauðhærð og röddin er ekkert blíðleg ... “ „Guð sé oss næstur“, hrópaði Purvis. „Hleypið mér út — lofið mér að komast burt. Ég fer — fer samstundis. Þér gerið svo vel að láta senda mér farangurinn“. Enima hló meðan hún losaði slárnar og opnaði dyrnar. Purvis var náfölur. Hann horfði flóttalega umhverfis sig, eins og hann byggist við óvini í nágrenninu. „Ef þér flýtið yður þarna upp stíginn yfir engið“, sagði Emma og benti, „komið þér nógu snemma til stöðvarinnar, lestin fer eftir tuttugu mínútur“. „Þakka yður kærlega fyrir“, stamaði Purvis og stökk r land. „Hæ, hæ, á ég ekki að skila kveðju til þeirrar rauðhærðu?“ „Segið henni að fara til fjand- ans“, svaraði Purvis. „Bíðið aðeins. Hafið lj'klana með yður!“ Emma kastaði lykla- kippunni á eftir honum. Emma raulaði glaðlega lagstúf í bátnum á heimleiðinni. Yið land- gönguna tók áhyggjufullur hópur á móti henni. 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.