Heimilisritið - 01.03.1947, Page 28

Heimilisritið - 01.03.1947, Page 28
Þetta undanhald hersins lá í gegn um einskonar göng, þar sem suðurveggurinn lá undir sífelldum skriðdrekaárásum óvinanna, en norðurveggurinn í stöðugri hættu fyrir herjunum, sem voru um það bil að yfirbuga hina belgisku bandamenn okkar. í því öngþveiti, sem skapaðist við hinn mikla sigur óvinanna á Níunda franska hernum, tókst her- mönnum okkar þegar í stað, af mikilli fyrirhyggju og hugkvæmni, að skipuleggja varnir fyrir hina nauðstöddu fylkingaranna, til þess að unnt væri að framkvæma und- anhaldið án stórkostlegs tjóns og slysa. Heimurinn hefur ekki ennþá áttað sig á þessum snilldar úrræð- um eða metið þau að verðleikum. Óvinirnir réðust á Belgíu og Hol- land 10. maí. Hinn 15. maí höfðli þeir rofið varnir Frakka, og sóttu fram til sjávar. Herinn okkar lét undan síga til Escaut-línunnar. Sunnudaginn, 19. maí, var fund- ur í London, til þess að „athuga viðhald og birgingu brezka Megin- landshersins um Dunkirk, Calais og Boulogne, og í öðru lagi hugs- anlegan brottflutning liðsins, sem taKnn var ósennilegur, frá þessum þrem hafnarborgum". Þriðjudaginn, 21. maí, var hald- inn annar fundur „til þess að at- huga skyndibrottflutning mikils herliðs, nauðsyn flugvélaverndar, og þörfina á miklum fjölda smá- skipa, til þess að flytja liðið um borð í flutningaskipin úti fyrir“. Hinn 23. maí höfðu óvinirnir tekið Abbeville, rofið varnirnar hjá Somme, umkringt Boulogne og Calais, en Dunkirk varð fyrir svo miklum og stöðugum loftárásum, að erfitt var að nota höfnina. All- ar þær hafnir, sem áttu að birgja herinn okkar, voru því ónothæfar. Hann skorti bæði vopn og vistir, en átti hvorugt víst framar, eins og nú var komið. Menn okkar létu undan síga til strandar. Óvinirnir þrýstu á til allra hliða. Ilinn sterki flugher þeirra gerði harðar loftárás- ir. Skriðdrekar sóttu að úr öllum áttum. Flóttafólk og umferðaflækj- ur voru liðinu til stöðugs trafala. Boulogne féll að morgni hins 24. maí. Óvinirnir áttu allskostar við Calais, og reyndu nú að rjúfa sam- band hins hörfandi liers okkar við Dunkirk með því að senda skrið- drekasveitir til Aire-skurðsins, sem var aðalskjól hægra fylkingar- armsins. Vörn þessa fylkingararms gegn stöðugum árásum óvinar, sem var margfalt liðfleiri, bæði að skrið- drekum og sprengjuflugvélum, afl- aði þeim herflokkum mikillar frægðar, er tóku þátt í henni. Hinn 25. maí rufu óvinirnir vatúsveituna til Dunkirk eða eyði- lögðu hana í sprengjuárásum. Það voru að vísu allmargir brunnar í héraðinu. En um þessar mundir 26 HEIMILISRITID

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.